Fréttablaðið - 24.04.2008, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 24. apríl 2008 11
HAGTÖLUR Hinn 1. janúar á þessu
ári voru landsmenn 313.376 og
fjölgaði þeim um 1,9 prósent á
árinu 2007. Fólksfjölgun var minni
en árin tvö á undan en árið 2006
var hún 2,6 prósent, sem er með
því mesta sem mælst hefur. Þetta
kemur fram í Hagtíðindum
Hagstofu Íslands sem komu út í
gær.
Til samanburðar má nefna að í
fáum Evrópuríkjum nær árleg
fólksfjölgun einu prósenti en á
tíunda áratug síðustu aldar var
fólksfjölgun í Evróp að jafnaði 0,2
prósent.
Mest fjölgaði fólki á höfuðborg-
arsvæðinu og í næsta nágrenni
þess, á Suðurnesjum og á þéttbýl-
isstöðum á Suður- og Vesturlandi.
Íbúum á Austurlandi fækkaði
frá árinu 2007 eftir mikla fólks-
fjölgun árin þar á undan, eins og
áður hefur verið greint frá í
Fréttablaðinu. - mh
Fólksfjölgun á Íslandi:
Íslendingum
fjölgar stöðugt
Vilja sænskan tíma
Álendingar ræða nú hvort eyjarnar
geti ekki tekið upp sænskan tíma en
Álandseyjar tilheyra finnska ríkinu
og hafa því finnskan tíma. Finnskur
sumartími er þremur klukkutímum á
eftir þeim íslenska en sænskur tími
tveimur stundum.
ÁLANDSEYJAR
DÓMSMÁL Karlmaður á fimmtugsaldri, Sveinbjörn R.
Auðunsson, hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi
fyrir að nauðga fatlaðri stúlku. Hann var einnig dæmd-
ur til að greiða henni 800 þúsund krónur í miskabæt-
ur.
Í ákæru segir að maðurinn hafi notfært sér að stúlk-
an gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegra
annmarka og líkamlegrar fötlunar.
Maðurinn starfaði sem afleysingabílstjóri hjá Ferða-
þjónustu fatlaðra. Hann var fundinn sekur um að hafa
tvisvar brotið gegn stúlkunni með grófum hætti í bíl
þegar hann var að aka henni í skóla. Stúlkan var sautj-
án ára þegar brotin áttu sér stað árið 2006. Hún hafði
lent í alvarlegu bílslysi þegar hún var tólf ára og hlaut
þá meðal annars heilaskaða.
Dómurinn segir að manninum hafi ekki getað dulist
annmarkar stúlkunnar. Verði að telja sannað að hann
hafi notfært sér þá til að hafa við hana kynferðismök.
Enn fremur kemur fram að brot mannsins gegn
stúlkunni hafi haft alvarleg og víðtæk áhrif á hana.
Skerðing á vitsmunaþroska geri henni erfiðara fyrir
en ella að vinna úr þessu áfalli. - jss
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR Dómurinn var kveðinn upp í
Héraðsdómi Reykjavíkur.
Karlmaður á fimmtugsaldri dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot:
Braut gróflega á fatlaðri stúlku
LÖGREGLAN Fjögurra ára drengur
var hætt kominn þegar hann var
að leik í skurði rétt við bæinn á
Akranesi um klukkan fimm í
fyrradag. Vatnið náði honum að
höku þegar faðir hans kom honum
til bjargar.
Að sögn varðstjóra lögreglunn-
ar á Akranesi komu verktakar
skömmu síðar á gröfu og fylltu
upp í skurðinn svo að atburður á
borð við þennan endurtæki sig
ekki.
Miklar byggingaframkvæmdir
hafa verið á Akranesi að undan-
förnu og því eru skurðir sem
þessir rétt við túnfótinn í nýjustu
hverfum bæjarins. - jse
Faðir kom syni til bjargar:
Lítill drengur
fastur í skurði
DÓMSMÁL Báðir aðilar í máli
kennara í Mýrarhúsaskóla gegn
móður nemanda, munu áfrýja til
Hæstaréttar. Héraðsdómur
Reykjavíkur dæmdi móður
ungrar stúlku til að greiða
kennara í skólanum 9,7 milljónir í
skaðabætur og eina milljón í
málskostnað, eftir að stúlkan
hafði rennt hurð á höfuð kennar-
ans.
Stúlkan er með Aspergerheil-
kenni og hefur tryggingafélag
móðurinn tilkynnt að dómnum
verði áfrýjað.
Þá hefur lögmaður kennarans
gagnáfrýjað og vill að ábyrgð
skólans verði viðurkennd. - kóp
Mýrarhúsaskóli:
Áfrýjað til
Hæstaréttar
FERÐAMÁL Íslenskum ferðamönnum
í Þýskalandi hefur fjölgað um
helming á síðasta áratug.
Þýska ferðamálaráðið, DZT, sem
annast kynningu
á Þýskalandi
hefur því
ákveðið að setja
upp vefsíðu á
íslensku. „Já við
vorum orðin
nægilega mörg
til að Þjóðverj-
um þætti ástæða
til að splæsa í
sérstaka
heimasíðu fyrir
okkur,“ segir Arthúr Björgvin
Bollason, kynningarfulltrúi
Icelandair og umsjónarmaður nýju
síðunnar, en hana má finna á
slóðinni tyskalandsferdir.travel.
Síðuna segir hann verða uppfærða
reglulega með hliðsjón af þeim
upplýsingum sem Íslendingar leita
helst eftir séu þeir á ferð í
Þýskalandi. - kdk
Þýska ferðamálaráðið:
Fjölmenni nægt
fyrir Þýskaland
ARTHÚR BJÖRGVIN
BOLLASON