Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 12
12 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
DANMÖRK, AP Starfsfólk danskra
sendiráða í Alsír og Afganistan
hefur verið flutt úr húsakynnum
sendiráðanna af ótta við hryðju-
verk. Hætta er talin á hefndar-
árásum vegna þess að skopteikn-
ing af Múhameð spámanni var
endurbirt í dönskum dagblöðum í
febrúar síðastliðnum.
Starfsfólkið í báðum löndunum
hefur fært sig annað, þar sem það
mun halda áfram störfum sínum
með leynd, þótt hægt verði að ná
sambandi við það símleiðis og með
tölvupósti.
Hættan „er svo áþreifanleg að
við urðum að taka þessa ákvörð-
un“, sagði Erik Laursen, talsmað-
ur danska utanríkisráðuneytisins.
Hollendingar skýrðu einnig frá
því í gær að þeir hefðu fyrir tveim-
ur dögum rýmt sendiráð sitt í
Kabúl, höfuðborg Afganistans.
Starfsfólk þess sendiráðs er sömu-
leiðis tekið til starfa á leynilegum
stað.
Í síðustu viku var starfsfólk
sendiráðs Hollands í Pakistan flutt
á hótel í Islamabad, þar sem það
hefur starfað síðan.
Hollensk stjórnvöld telja veru-
lega hættu á hryðjuverkum gegn
sendiráðum landsins vegna
umdeildrar stuttmyndar hollenska
þingmannsins Geerts Wilders, þar
sem farið er ófögrum orðum um
Kóraninn, trúarrit múslima.
- gb
Danir og Hollendingar óttast hryðjuverk vegna skopteikninga og stuttmyndar:
Sendiráð rýmd í öryggisskyni
VIÐ DANSKA SENDIRÁÐIÐ Í KABÚL Oft
hafa orðið átök við sendiráðið. Þessi
mynd var tekin í febrúar árið 2006,
þegar deilurnar um skopteikningarnar
stóðu sem hæst. NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN, AP Bandaríski
herforinginn David Petraeus,
sem undanfarið ár hefur verið
yfirmaður bandaríska heraflans
í Írak, verður yfirmaður alls
stríðsreksturs Bandaríkjanna í
Írak og Afganistan.
Ray Odierno tekur við af
honum, sem yfirmaður heraflans
í Írak. Petraeus tekur hins vegar
við af William Fallon, sem lét
skyndilega af embætti eftir að
hafa andmælt stefnu George W.
Bush forseta gagnvart Íran.
Robert Gates, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, skýrði frá
þessu í gær. Hann bjóst við að af
þessu yrði eftir fjóra til fimm
mánuði.
- gb
Skipulagsbreytingar hjá Bandaríkjaher:
Fer með stjórn í
Írak og Afganistan
DAVID PETRAEUS Verður yfirmaður
stríðsreksturs Bandaríkjanna í Írak og
Afganistan. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
ÞYRST KRÁKA Þessi kráka fær sér að
drekka úr lekum krana í dýragarði í
Jamshedpur á Indlandi, þar sem hitinn
fer nú óðum hækkandi þegar sumar
nálgast. NORDICPHOTOS/AFP
Sokkabuxur, leggings og sokkar í flottum
sumarlegum litum fyrir káta krakka á öllum aldri.
Fæst í flestum apótekum.
BANDARÍKIN, AP Þótt Hillary
Clinton hafi unnið sannfærandi
sigur í prófkjörsbaráttu Demó-
krataflokksins í Pennsylvaníu, þá
náði hún ekki að saxa neitt að
ráði á forskot Baracks Obama,
sem enn er með á annað hundrað
fleiri kjörmenn á sínu bandi á
landsvísu.
Sigurinn nægði þó til að tryggja
henni framhaldslíf í kosninga-
baráttunni næstu vikurnar í það
minnsta. Clinton og stuðnings-
menn hennar eru vongóðir um að
þetta dugi til að tryggja henni á
endanum sigur á Obama.
„Þegar nær dregur þarf fólk að
taka ákvörðun um það hver það
telur að verði, ekki bara besti
forsetinn, sem er mikilvægasta
spurningin, heldur hver yrði
betri frambjóðandi gegn McCain
öldungadeildarþingmanni,“ sagði
Clinton í sjónvarpsviðtali í gær.
Hún lét engan velkjast í vafa
um að nú ætli hún að halda áfram
baráttu sinni þar til síðasta próf-
kjöri flokksins lýkur, sem verður
í byrjun júní: „Við ætlum að halda
áfram næstu níu prófkjörin og ég
vona að okkur gangi vel í mörg-
um þeirra,“ sagði hún í gær.
Hún er þegar farin að skipu-
leggja kosningabaráttu sína í
Indiana og Norður-Karólínu, þar
sem næstu prófkjör verða haldin.
Clinton vill fá Obama með sér í
sjónvarpskappræður í báðum
ríkjunum. Í Indiana nýtur Obama
meira fylgis, en í Norður-Karól-
ínu eru þau nokkuð jöfn.
Spurningin, sem stuðnings-
menn Clinton hafa spurt síðustu
daga, er hins vegar áleitin fyrir
stuðningsmenn mótherja hennar:
„Hvers vegna getur Barack
Obama ekki klárað dæmið?“
Obama hafði varið gífurlegu fé
í kosningabaráttu sína í
Pennsylvaníu, og náði að saxa
nokkuð á fylgi hennar þar en
hafði þó ekki sigurinn af henni.
Clinton á þó enn verulega á
brattann að sækja. Úrslitin ráð-
ast sem fyrr af afstöðu nærri 800
svonefndra ofurfulltrúa á lands-
þingi Demókrataflokksins í
haust, það er þingmanna og ann-
arra forystumanna flokksins sem
ganga óbundnir til atkvæða þegar
forsetaefni flokksins verður
valið.
Samkvæmt talningu fréttastof-
unnar AP hefur Obama tryggt
sér stuðning um það bil 1.720
kjörmanna, en Clinton innan við
1.600. Alls þarf atkvæði frá 2.025
landsfundarfulltrúum til að hljóta
útnefningu flokksins.
gudsteinn@frettabladid.is
Mun berjast
allt til enda
Eftir sigurinn í Pennsylvaníu á þriðjudaginn segist
Hillary Clinton staðráðin í að halda áfram baráttu
sinni í þeim níu prófkjörum flokksins sem eftir eru.
Á FERÐ OG FLUGI Hillary Clinton veifar til ljósmyndara um borð í flugvél á leið til
Indianapolis, þar sem prófkjörsbaráttan heldur áfram að loknum sigri í Pennsylvaníu.
NORDICPHOTOS/AFP
BANDARÍKIN, AP Hundruð vísinda-
manna við bandarísku umhverf-
isverndarstofnunina EPA
segjast hafa orðið fyrir pólitísk-
um óþægindum og þrýstingi frá
yfirmönnum sínum, sem vildu að
þeir hagræddu niðurstöðum
rannsókna.
Þetta kemur fram í skoðana-
könnun, sem birt var í gær.
Samtökin Union of Concerned
Scientists segja að þriðjungur af
þeim tæplega 1.600 starfsmönn-
um EPA sem tóku þátt í könnun-
inni, segi að þeir hafi orðið fyrir
óeðlilegum þrýstingi.
Könnunin var send til 5.500
vísindamanna en svör bárust frá
1.586 þeirra.
- gb
Umverfisstofnunin EPA:
Þrýstingur á
vísindamenn
ÍRAN, AP Kjarnorkueftirlit
Sameinuðu þjóðanna skýrði frá
því í gær að írönsk stjórnvöld
hefðu fallist á að sýna fulltrúum
eftirlitsins fulla samvinnu.
Yfirmaður kjarnorkueftirlits-
ins, Mohammed el-Baradei,
segir það mikilvæg tímamót að
írönsk stjórnvöld hafi ákveðið að
ræða ásakanir á hendur þeim um
að þau séu að reyna að koma sér
upp kjarnorkuvopnum.
Írönsk stjórnvöld fullyrða
eftir sem áður að öll kjarnorku-
vinnsla í landinu sé eingöngu
ætluð til friðsamlegra nota.
- gb
El-Baradei fagnar árangri:
Íranar boða
samvinnu