Fréttablaðið - 24.04.2008, Page 34
[ ]
Um helgina verður hægt að kynna sér íslenska
fathönnun eins og hún leggur sig.
Fatahönnunarfélag Íslands stendur fyrir sýningu í
Portinu í Hafnarhúsinu dagana 25. og 26. apríl undir
nafninu Showroom Reykjavik. Um tuttugu íslenskir
hönnuðir verða þar með bása og sýna vörur sínar.
Má þar nefna ELM, Farmers Market, GuST, Mundi
Design, Forynju, Steinunni, 66° Norður, Lykkjufall,
Ástu Creative Clothes og Starkiller.
„Þetta er í fyrsta skipti sem jafn margir fatahönn-
uðir koma saman og kynna hönnun sína. Þarna
verður allt frá nýútskrifuðum fatahönnuðum til
þeirra sem hafa starfað lengi, og ætti sýningin því
að gefa breiða mynd af faginu,“ segir Anna Clausen,
framkvæmdastjóri sýningarinnaren hún segir
fyrirmyndina vera erlendar sölusýningar sem
fataframleiðslufyrirtæki taki þátt í til að koma
vörum sínum á markað.
Verslunareigendum af öllu landinu verður
sérstaklega boðið á sýninguna til að þeir geti kynnt
sér íslenska hönnun en auk þess er öllum velkomið
að koma og sjá andlitin á bak við merkin og jafnvel
leggja inn pantanir.
Opnun sýningarinnar fer fram föstudaginn 25.
apríl á milli 17 og 19 og verður hún síðan opin frá 10
til 17 laugardaginn 26. apríl. vera@frettabladid.is
Breið mynd af faginu
Anna Clausen, framkvæmdastjóri Showroom Reykjavík, er
eigandi herrafataverslunarinnar Belleville og kennari við
Listaháskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Sumarskóna má fara að draga fram. Gylltir ballerínu-
skór eiga best við til að koma manni í sólskinsskapið.
Peysa
hönnuð
af Sigrúnu
Baldurs-
dóttur í
Lykkjufalli.
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
FLOTT FÖT
www.vefta.is
Vefta
Tískuföt Hólagarði
Hidden Goods taska
eftir Hrafnhildi
Guðrúnar-
dóttur