Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 38
[ ]
Á dvalar- og hjúkrunarheimil-
inu Grund er boðið upp á kín-
verska leikfimi til heilsubótar.
Anna Kristín Kristjánsdóttir er
sjúkraþjálfari á Grund og kennir
kínverska leikfimi einu sinni í
viku.„Þetta byrjaði sem smá til-
raun síðasta vor með því að ég
bauð upp á tíu tíma í Tai Chi-leik-
fimi,“ útskýrir Anna. „Það komu
nú ekki margir í fyrstu tímana og
mætingin rokkar frá tveimur og
upp í níu manns. Tvær konur hafa
þó haldið áfram frá upphafi og
þær segja mér að þetta hafi hjálp-
að þeim mikið.“
Anna segir kínversku leikfim-
ina efla blóðrásina í líkamanum og
bæta styrk og jafnvægi. Leikfim-
in sé liður í átaki á Grund í að
fækka byltum. „Tai Chi hefur skil-
að sér í að fólk nær betra jafn-
vægi. Ég laga æfingarnar að getu
vistmanna og geri formið
einfaldara. Það er margt búið að
mæða á fullorðnum fótum svo við
stöndum uppréttari en venjan er
við þessar æfingar,“ útskýrir
Anna. Hún segir andrúmsloftið í
tímunum létt og skemmtilegt og
fólk mæti á sínum eigin forsend-
um. Æfingarnar eru hægar en
fólk getur sest niður ef það þreyt-
ist og það er í góðu lagi þótt það
ruglist í æfingunum, stemningin
er afslöppuð.
Anna lærði Tai Chi sjálf fyrir
mörgum árum og átti frumkvæði
að því að leikfimin var sett inn í
dagskrána, sem er annars þétt-
skrifuð. „Draumurinn er að kenna
leikfimina tvisvar í viku en það er
mjög margt í boði hérna á Grund
og ekkert auðvelt að koma þessu
inn í prógrammið. Íþróttakennar-
inn okkar er með fjölbreytta dag-
skrá og svo er einnig boðið upp á
fjölbreytta dægradvöl. Ég á hálf-
partinn í samkeppni um fólk í tím-
ana til mín því á sama tíma er
boðið upp á bridds,“ segir Anna
brosandi. „Það er erfitt að keppa
við briddsið á Grund.“
heida@frettabladid.is
Tai Chi stundað á Grund
Thai Chi-leikfimi bætir styrk og jafnvægi.Anna Kristín hefur kennt kínverska leikfimi á Grund í tæpt ár.
Andrúmsloftið í tímunum er afslappað og létt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vatn hressir mann við þegar syfjan sækir á. Drekktu stórt glas
af vatni eða skelltu því framan í þig.
KIDS
Kids 2 in 1 Shampoo, Kids Bath & Shower,
Kids Conditioner, Kids Shampoo
Fæst í apótekum og verslunum um land allt.
Kids línan miðar að því að gera þvott skemmtilegan fyrir börn, líflegu
útliti og góðum ávaxtailm. Vörurnar eru sérstaklega þróaðar fyrir
viðkvæma húð og hár barna.
Höf›abakka 9 Sími: 511-1575 www.hreyfigreining.is
S J Ú K R A fi J Á L F U N O G L Í K A M S R Æ K T
N‡r sjúkrafljálfari
Sandra Dögg Árnadóttir sjúkrafljálfari Bc
er komin aftur til okkar.
Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Maður Lifandi, Yggdrasill, Fjarðakaup
Lífsins lind í Hagkaup, Hagkaup Smáralind, Lyfja, Lyfjaval, Krónan,
Blómaval, Nóatún Hafnarfirði og Heilsuhornið Akureyri.
Vegna einstakra gæða nýtur SOLARAY
sívaxandi virðingar og trausts um allan heim