Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 42

Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 42
● fréttablaðið ● sumar í lofti 24. APRÍL 2008 FIMMTUDAGUR4 Það er gaman að eiga réttu tólin til garðvinnu, en nauðsynlegt að hafa á þeim eitthvert skipu- lag. Hægt er að festa hvers kyns snaga á vegg og leyfa verkfær- um að njóta sín sem súrrealísku listaverki um leið og aðgangur verður greiðari að því sem taka á næst til handargagns. Litlar hendur eru oft óðar og uppvæg- ar að leggja garðyrkjumeistur- um hússins lið og þá er snjallt að eiga til öruggari útgáfur af helstu verkfærum sem henta betur minna mannfólki til garð- starfans. - þlg Tólin til taks Litríkar og notadrjúgar skóflur, hrífur og kústar í sátt og samlyndi. NORDICPHOTOS/GETTY Hver vildi ekki eiga sitt eigið trjá- hús í garðinum heima? Að geta klifrað upp stiga og stungið sér inn í ævintýraheim trjáhúsa er draumur barna á öllum aldri, því víst er að margir fullorðnir eiga draum um notalegt athvarf í leyni- legum afdrepum sem að hluta til hverfa í laufskrúð trjáa. Það æðislegasta við trjáhús er algjör skortur á rafmagni, tölvu- leikjum og sjónvarpi. Þau eru hinn fullkomni staður til að njóta bóklesturs, skrifta og gamaldags dundurs, og besti staðurinn til að dreyma alla þá fögru drauma sem börn ala með sér. Gleymum ekki að börn nútímans hafa þörf fyrir sams konar athafn- ir og útiveru og algengar voru áður fyrr. Gamaldags verkefni og leikni sem sameinar fjölskylduna að ákveðnu takmarki skapar ógleym- anlegt veganesti og minningar út lífið. Leyfum börnum að njóta lífs- ins til fulls með allri þeirri útrás, hugmyndaflugi og hamingju sem æskunni fylgir. - þlg Leyniveröld í laufblaðaskrúði Börn vilja hafa krefjandi verkefni fyrir stafni en mikill þroski felst í eigin trjáhúsa- smíð. NORDICPHOTOS/GETTY Nú er sumarið á næsta leiti og sjálfsagt margir farnir að hugsa um hvernig best sé að snyrta garðinn til og fegra. Ein leið er að verða sér úti um falleg garðhúsgögn, borð, bekki og stóla, annað hvort í stíl eða á skjön, til að lífga upp á umhverfið. Þá er ekki verra að verða sér úti um fallega sólhlíf til að hafa með og diska, bolla og glös í sumarlegum og glaðlegum litum til að eiga við gott tækifæri. Fallega uppdekkað borð getur hæglega um- breytt venjulegum garði í fallega vin. Í eigin aldingarði Fátt er eins sumarlegt og falleg garðhúsgögn, sem henta vel á sólpallinn eða beint á grasflötina. Sólhlíf ver menn ekki eingöngu fyrir sólarljósi heldur er hún fínasta stáss í garðinum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.