Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 51

Fréttablaðið - 24.04.2008, Side 51
FIMMTUDAGUR 24. APRÍL 2008 Ef þú hefur fengið þér kanínu og vilt láta hana ganga lausa heima hjá þér þarftu að fara yfir heim- ilið og athuga hvort þar séu svæði þar sem hún gæti meitt sig eða sloppið í burtu. Einnig verður að fyrirbyggja að kanínur geti kom- ist í tæri við rafmagnssnúrur því þær hafa unun af að naga þær! Sjá www.dagfinnur.is - liz Nýr heimilisvinur Gæta þarf að ýmsu áður en kanínu er leyft að ganga lausri. Kettlingum þykir gott að sjúga, jafnvel eftir að búið er að venja þá frá móður sinni. Sumir kettlingar taka upp á því að sjúga ýmis efni, einkum ull. Þetta er óæskilegt þar sem ull getur valdið harðlífi eða þarmastíflum. Því er best að fjar- lægja efnið. Sumir telja að kett- lingar sjúgi ull vegna hungurs eða skorts á trefjum. Stundum er gott að gefa þurrmat með öðrum mat til að bæta úr þessu. Sjá www.dag- finnur.is Kettir sjúga ull Sumir kettlingar vilja sjúga ull. Umhirða á vatna- og hálfvatna- skjaldbökum er tiltölulega einföld eftir að grunnur hefur verið lagð- ur. Þær eiga ekki að vera í hinum svokölluðu skálum eða skjald- bökutjörnum (turtle pond) sem seldar eru erlendis, heldur þurfa þær stórt búr, hitara, hreinsi og ljós. Þær verða líka að hafa þurrt land til þess að geta farið upp á þegar þeim hentar. Sjá www.dyra- spjall.com. Glöð skjaldbaka Skjaldbökur þurfa stór búr. Hvolpurinn þinn á skilið það allra besta! Vörumerkið er eign Hill's Pet Nutrition, © 2003 Hill's Pet Nutrition, Inc. www.hills.is Hill’s kappkostar í hvolpafóðri sínu að mæta fjölbreyttum þörfum hvolpsins í vexti og þroska og stuðlar þannig að heilbrigðu lífi og fyrir vikið enn ánægjulegri samvistum þínum við hundinn þinn. Er félag allra hundaeiganda. Íshundar eru félagar af Union Cynologie International e.V sem er alþjóðlegt hundaræktarfélag í Þýskalandi og á aðildarfélag í allt að 30 löndum. Íshundar voru stofnaðir 27. Apríl 2000. Alþjóðleg sýning félagsins verður haldin helgina 3 og 4 Maí n.k. Ís í boði fyrir börnin frá Kjörís, kynningar og sölubásar verða á staðnum. 500 kr inn en frítt er fyrir börn 12 ára og yngri. Hundaræktunarfélagið Íshundar www.ishundar.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.