Fréttablaðið - 24.04.2008, Síða 72
40 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Skyndilega: Atóm-Andri
kemur auga á bökumanninn...
Þarna ertu þá!
Ógeðslegi blending-
urinn þinn!
Stopp! Arg! Jú jú! Hetjan
deyr reyndar! Er
það vandamál,
heldurðu?
Ekki í þínum
teiknimynda-
sögum!
Á meðan Victoria
Beckham verst,
þýtur Naomi Camp-
bell niður kantinn
en Kate Moss eltir á
hælaskóm!
Þegar Gwen Stefani
hleypur allt í einu inn
á völlinn með fallhlíf,
aðeins klædd í gegn-
sæjan sumarkjól og
bros.
En flaggið fer
á loft...
Ertu
viss?
Já, það er annað
hvort flagg línuvarð-
arins eða bikinítoppur
Paris Hilton.
Við verðum
að sjá þetta
endursýnt.
Hey, hundar!
Þreyttir á að
sækja?
Nýtt!
Fúsi, ertu búinn
að borða
morgunmat?
Já.
Ég fékk mér
tvær samlokur.
„Ís-samlokur“
Sussssss...
Hvað er þetta?
Oj!
Þetta
virðist
koma
héðan!
Haldið ykkur í
burtu frá þessu.
Hvað sem þetta er
fer það versnandi
Ó, ert
þetta
þú?
Heyrðu mig! Veistu það, Jóna,
sumir geta sungið lög
Pat Benatar og aðrir
ekki. Farðu!
Þetta er allt
Idol-inu að
kenna.
Ég bjó um skeið erlend-
is þar sem ég hafði það
gott með góðu fólki. Á
móti mér bjó maður
sem vann við það að
selja sápuóperur frá
Suður-Ameríku. Maður-
inn hafði það mjög gott
og lifði nánast eins og
kóngur. Þessar sápuóperur eru án
nokkurs vafa furðulegasta sjón-
varpsefni sem finnst á þessari
jörð.
Leikurinn er skelfilegur og sögu-
þráðurinn innihaldslítill og leiðin-
legur. Þrátt fyrir þetta eru þær
mjög vinsælar í vestræna heimin-
um og hafa nokkrar verið sýndar í
sjónvarpi hér á Íslandi. Þessi
umræddi sölumaður sýndi mér eitt
sinn dæmi um sápuóperu sem hann
hafði á sínum snærum. Hún fjallaði
um ástir og örlög innan veggja
þinghúss í Kólumbíu. Þetta var hin
besta skemmtan þar sem fjármála-
ráðherrann og menntamálaráð-
herrann áttu í ástarsambandi og
dómsmálaráðherrann var öfund-
sjúkur fyrir allan peninginn. Þetta
vakti mig til umhugsunar um hvort
ekki væri hægt að lífga upp á
útsendingar frá Alþingi Íslendinga.
Hægt væri að bæta smá söguþræði
við frumvörpin um ástir og örlög
þingmanna og ráðherra á Íslandi.
Þetta mundi pottþétt vekja mikla
lukku og fólk færi loksins að fylgj-
ast með löggjafarvaldinu af ein-
hverju viti. Aðdáendaklúbbar yrðu
stofnaðir og ýmis störf myndu
skapast í þjóðfélaginu. Dæmi um
fléttu væri að forsætisráðherra
gæti verið svikarinn sem reynir
allt til þess að ná sér niðri á óvinum
sínum í stjórnarandstöðunni. Hann
yrði með það markmið að hrifsa
fjárlögin í sínar hendur. Ekki væri
slæmt ef utanríkisráðherra ætti
elskhuga í hverju kjördæmi og
skapaði það mikla afbrýðisemi af
hálfu viðskiptaráðherrans.
Svona væri hægt að spinna
spennandi söguþræði inni á Alþingi
með það í huga að lyfta upp áhorf-
inu og um leið gera málefni Alþing-
is áhugaverðari fyrir fólkið í land-
inu. Hver myndi ekki vilja sjá
fjármálaráðherra vakna úr dái dag-
inn sem hann ætti að tilkynna
afkomu ríkissjóðs?
STUÐ MILLI STRÍÐA Betra sjónvarpsefni
MIKAEL MARINÓ RIVERA VILL LÍFGA UPP Á ÚTSENDINGAR FRÁ ALÞINGI