Fréttablaðið - 24.04.2008, Page 85
FIMMTUDAGUR 24. apríl 2008 53
Tvær íslenskar hárgreiðslukonur
eru vinningshafar í alþjóðlegu
keppninni Global Salon Business
Awards, þar sem hárgreiðslustof-
ur sem þykja skara fram úr á
heimsvísu eru verðlaunaðar. Það
eru þær Sigrún Ægisdóttir á Hár-
sögu og Þórdís Helgadóttir, sem
rekur Hárný í Kópavogi. Þórdís
er nýkomin heim frá Ítalíu þar
sem farið var yfir dagskrá sjálfr-
ar verðlaunahátíðarinnar, sem
fram fer í Hollywood í júní
„Við vorum til dæmis látin æfa
okkur að ganga upp rauða dregil-
inn fyrir Hollywood,“ segir Þór-
dís brosandi, en hún segir það
mikinn heiður að hljóta verðlaun-
in. „Það má segja að þetta séu ein
virtustu verðlaun sem maður
getur unnið til sem hárgreiðslu-
maður,“ segir Þórdís, sem er jafn-
framt mjög ánægð með að fá við-
urkenningu fyrir það starf sem á
sér stað á bak við tjöldin. „Ég hef
unnið til verðlauna fyrir hár-
greiðslu, en það er gaman að fá
viðurkenningu fyrir það sem
maður gerir þegar maður er ekki
fyrir aftan stólinn. Það er stór
hluti af starfinu sem fer fram
baka til,“ segir Þórdís sem veit þó
ekki enn í hvaða flokki hún mun
hljóta verðlaun, enda verður það
ekki tilkynnt fyrr en á afhending-
unni. -sun
Hárgreiðslustofur fá verðlaun
MIKILL HEIÐUR Þórdís Helgadóttir
á Hárný segir það mikinn heiður að
hljóta Global Salon Business Awards,
enda séu verðlaunin mjög virt meðal
fagmanna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Burger King hyggst setja á mark-
að dýrasta skyndibita í heimi í
næsta mánuði. Þar verður á ferð-
inni hamborgari úr hinu margum-
talaða Kobe-nautakjöti frá Japan,
og í stað tómatsósu og ostsneiðar
verður meðlætið á borgaranum
sneið af foie gras, eða gæsalifur,
og gráðaostur. Borgarinn mun
kosta lítil 85 pund, andvirði um
12.500 íslenskra króna.
Ekki er víst hvort Kobe-borgar-
inn rati á Burger King hér á landi,
en slíkan borgara er hægt að fá á
veitingastaðnum Orange við
Geirsgötu. Samkvæmt heimasíðu
staðarins kostar hann þar 7.500
krónur.
Borgari á 12 þúsund
RÁNDÝR SKYNDIBITI Kobe-nautakjöts-
borgarinn hjá Burger King mun kosta 85
pund, um tólf þúsund og fimm hundruð
íslenskar krónur. NORDICPHOTOS/GETTY
Þursaflokkurinn ætlar að stíga á
svið í Edinborgarhúsinu á Ísafirði
föstudaginn 9. maí. Á tónleikun-
um, sem standa yfir í rúmar tvær
klukkustundir, spila þeir félagar
efni af öllum plötum flokksins.
Stutt er síðan Þursarnir spiluðu
á þrennum tónleikum á Akureyri
við frábærar undirtektir fyrir
fullu húsi. Í febrúar fylltu
Þursarnir Laugardalshöllina og
komu fram ásamt Caput-hópnum
á eftirminnilegum tónleikum.
Miðasala hefst á tónleikana á
Ísafirði á næstu dögum í Edin-
borgarhúsinu og á www.kaffied-
inborg.is. Miðaverð er 3.500
krónur og aðeins 250 miðar eru í
boði.
Þursarnir
til Ísafjarðar
ÞURSAFLOKKURINN Þursarnir spila á
Ísafirði föstudaginn 9. maí.
Þýski bílarisinn BMW notar
Ísland til að markaðssetja
nýjustu afurð sína, BMW
Hydrogen 7. Stjörnurnar í
Hollywood hafa fallið fyrir
bílnum og Ísland leikur þar
stórt hlutverk.
„Ísland hefur unnið mikið með
vetni og því var landið tilvalið fyrir
þessa herferð,“ segir Susanne
Spatz, talsmaður markaðsdeildar
BMW. „Þar að auki hentaði lands-
lagið fullkomlega fyrir þær mynd-
ir sem við vildum fá, það er nátt-
úrulega stórkostlegt og ótrúlega
fallegt,“ bætir Spatz við. Stór
bækl ingur var útbúinn þar sem
bíllinn er sýndur úti í náttúru
Íslands en auglýsingin sjálf hefur
verið sýnd í Þýskalandi, Bretlandi
og Bandaríkjunum. Spatz segir að
stjórnendur BMW séu himinlifandi
með auglýsingarnar og telji þær
ákaflega vel heppnaðar.
„Þetta var stórt auglýsingaverk-
efni og við erum mjög ánægðir
með útkomuna,“ segir Jón Bjarni
Guðmundsson, framleiðandi hjá
Saga Film, sem aðstoðaði við gerð
auglýsingarinnar. Hann segir það
mjög sjaldgæft hversu stórt hlut-
verk Ísland leikur í herferðinni en
fyrstu fjörutíu sekúndur hennar
eru eingöngu myndir af Íslandi.
Hydrogen 7-bifreiðin kemur síðan
eins og skrattinn úr sauðarleggn-
um út úr Skógafossi. „Þessi auglýs-
ing er gríðarlega góð kynning fyrir
landið, sérstaklega í ljósi þess til
hverra bíllinn á að höfða,“ útskýrir
Jón en BMW hefur að undanförnu
afhent hverri stórstjörnunni af
fætur annarri bíl af þessu tagi.
Meðal þeirra sem hafa fest kaup
á bifreiðinni eru bandarísku grín-
istarnir Jason Bateman og Will
Ferrell en auk þeirra keyra Edward
Norton, Jay Leno og Cameron Diaz
um á svona farartæki. Andrés
Jónsson hjá B&L-umboðinu segist
ánægður með stóran hlut Íslands í
herferðinni en hins vegar sé alls-
endis óvíst að Hydrogen-bifreið-
arnar eigi eftir að sjást á götum
borgarinnar alveg á næstunni. „Við
getum pantað þessa bíla. BMW
úthlutar ákveðnum kvóta í þessum
bílum og við þurfum að sækja um
ákveðinn fjölda.
Eins og efnahagsástandið er
núna eru þetta of dýrir bílar til að
geta haft á lager en við getum aftur
á móti sérpantað slíka fyrir áhuga-
sama,“ segir Andrés.
freyrgigja@frettabladid.is
Ísland í aðalhlutverki hjá BMW
BMW Á ÍSLANDI BMW Hydrogen 7 er fremur dýr bíll og frekar ólíklegt að hann sjáist
á götum borgarinnar eins og efnahagsástandið er um þessar mundir.
BMW hefur gert nýjustu
afurð sína út hjá
stórstjörnum í Holly-
wood en meðal þeirra
sem keyra um á BMW
Hydrogen 7 eru Jay
Leno, Edward Norton,
Jason Bateman og
Cameron Diaz. Ísland
leikur stórt hlutverk í
herferð þýska bílarisans.
BÍLL FYRIR
STJÖRNUR
UMM er spennandi nýjung í matarflóru Íslendinga sem hentar öllum sem hugsa um líkama
sinn og vilja b orða vel. UMM er bragðsterk veisla frá öllum heimshornum; salöt, tortillur,
veá xtir, kús kú s, orkustykki og ... umm, hvað þetta er gott.
UMM ER GLÆNÝR HEILSUBITI ÚR SPENNANDI HRÁEFNI
BORÐAÐU
VEL
–
BORÐAUVEL-B
O
L -
RÐ
AÐ
U
VE