Fréttablaðið - 24.04.2008, Qupperneq 94
62 24. apríl 2008 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. örverpi 6. skammstöfun 8. örn 9.
stormur 11. samanburðart. 12. tólf
tylftir 14. beikon 16. í röð 17. mánuð-
ur 18. ennþá 20. átt 21. betl.
LÓÐRÉTT
1. klöpp 3. guð 4. fargið 5. málmur
7. glataður 10. eldsneyti 13. er 15.
ávöxtur 16. húðpoki 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. urpt, 6. eh, 8. ari, 9. rok,
11. en, 12. gross, 14. flesk, 16. hi, 17.
maí, 18. enn, 20. nv, 21. snap.
LÓÐRÉTT: 1. berg, 3. ra, 4. pressan,
5. tin, 7. horfinn, 10. kol, 13. sem, 15.
kíví, 16. hes, 19. na.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8.
1. Mahmoud Abbas.
2. Í Vestmannaeyjum.
3. John Arne Riise.
„Já, það verður gaman að rifja upp
gamla takta frá Sódómu Reykja-
vík. Þar var ég náttúrulega með
mína undirheimastarfsemi í Hafn-
arfirði en hef nú fært út kvíarnar í
höfuðborgina,“ segir Helgi Björns-
son sem leikur undirheimakóng-
inn Lárus eða Lalla í sjónvarps-
þáttaröðinni Svartir englar. Lárus
heldur sig oftast á ónefndum súlu-
stað í höfuðborginni og þykir fátt
jafn skemmtilegt og að horfa á
fáklæddar stúlkur skaka sér við
súluna. Tökur á Svörtum englum
hófust í fyrradag en þáttaröðin er
byggð á bókum Ævars Arnar Jós-
epssonar og verður sýnd á RÚV.
Helgi er ekki ókunnugur mönn-
um sem hafa lent utanvega í sam-
félaginu en hann fór á kostum sem
Moli í áðurnefndri Sódómu. Þá,
eins og nú, var Óskar Jónasson við
stjórnvölinn og Helgi hlakkaði
mikið til að endurnýja kynnin við
leikstjórann. Reyndar er fleira
Sódómufólk sem kemur að gerð
Svartra engla því Sigurjón Kjart-
ansson skrifar handritið ásamt
Margréti Örnólfsdóttur. Sigurjón
lék einmitt einnig stórt hlutverk í
Sódómu þar sem rokkhundarnir í
HAM fóru á kostum.
„Þetta er náttúrulega fyrst og
fremst manneskja sem er að reyna
að komast áfram í erfiðri veröld
og til þess þarf hann að nota marg-
vísleg meðul,“ segir Helgi sem var
nýkominn til Íslands frá Þýska-
landi þegar Fréttablaðið náði tali
af honum. Leikarinn og leikhúseig-
andinn tekur jafnframt fram að
það sé yfirleitt skemmtilegra fyrir
sig að fást við persónur sem eru
ekki með geislabauginn yfir höfð-
inu. „Þær eru oft litríkari og for-
vitnilegri en við meðaljónin, því
miður,“ segir Helgi og hlær. Hann
tekur þó ekki undir þær fullyrð-
ingar að hann sé alltaf valinn í
hlutverk óþokka í kvikmyndir og
leikrit en getur sér til að ef svo er
hafi hið vestfirska og harðgerða
útlit eflaust eitthvað með það að
gera.
freyrgigja@frettabladid.is
HELGI BJÖRNSSON: TÖKUR HAFNAR Á SVÖRTUM ENGLUM
Harðsvíraður Helgi Björns
í fylgd nektardansmeyja
Forsetafrúin Dorrit Moussaieff er
ekki sú eina sem þeysist um á
hlaupahjóli því starfsmenn lög-
fræðistofunnar Lex hafa einnig
tekið ástfóstri við þetta smáa en
knáa farartæki.
Stofan flutti í ný og stærri húsa-
kynni í Borgartúni 26 föstu-
daginn fjórða apríl og til að
bregðast við auknu rými hafa
tvö rafknúin hlaupahjól verið
tekin þar í notkun. „Okkur er
svo umhugað að vera snögg til
gagnvart kúnnanum og þess
vegna þarf að nota allar leiðir
til að vera fljótari,“ segir Helgi
Jóhannesson, framkvæmda-
stjóri hjá Lex, sem hefur sjálf-
ur prófað hjólin og líkað vel.
„Þetta er samt ekki aðalferða-
mátinn hérna heldur var
þetta bara í gríni gert.“
Fjörutíu manns starfa
hjá hinni ört vaxandi Lex,
þar af þrjátíu lögfræðingar, og því
eiga nýju húsakynnin eftir að
koma að góðum notum. „Það eru
allir rosalega hamingjusamir að
vera komnir í Wall Street-Íslands
eins og Borgartúnið er kallað,“
segir Helgi og hlær.
Til að fagna áfanganum
hélt Lex opnunarpartí í gær-
kvöld þar sem fjölmiðlum og
fleiri velunnurum lögfræðistof-
unnar var boðið í heimsókn. Hvort
boðið hafi verið upp á reynslu-
prófun á nýju hlaupahjólunum
verður aftur á móti látið liggja á
milli hluta. - fb
Lögfræðingar á hlaupahjólum
HELGI JÓHANNESSON Helgi hefur prófað
nýju hlaupahjólin og líkar ferðamátinn
afar vel.
HLAUPAHJÓL Tvö rafknú-
in hlaupahjól eru til taks
á lögfræðistofunni Lex í
Borgartúni.
SKUGGALEGUR Helgi
Björns er vígalegur
sem undirheimakóng-
ur og súlustaðaeig-
andi í sjónvarpsþátta-
röðinni Svartir englar.
„Annan daginn fæ ég mér
banana, appelsínu, hörfræolíu
og fimm frosin jarðarber, set
þetta í blandara og skelli þessu í
mig. Hinn daginn skef ég allt úr
vatnsmelónu, set það í blandar-
ann ásamt steinunum og smá
olíu með, hristi þetta saman og
drekk.“
Jón Sæmundur Auðarson myndlistar-
maður.
Menn hafa nýjustu
fjárfestingu Kaffi-
barsins til marks um
það að X-kynslóðin
sé að reskjast.
Þorsteinn
Stephensen
og fyrirtækið
Hr. Örlygur
eiga
barinn og
þeir hafa nú keypt skiptiborð og
barnastól til að hafa við höndina til
handa gestum staðarins.
Pétur Már Ólafsson hjá Veröld er
duglegur að koma höfundi sínum
Yrsu Sigurðardóttur á framfæri
víða um heim. Þannig heyrist nú
að hann hafi gengið frá samningi
um útgáfu á næstu glæpasögu
hennar í Þýskalandi en sú bók er
ófullgerð og enn án titils.
Yrsa situr sveitt við að
ljúka bókinni milli
þess sem hún sinnir
starfi sínu sem verk-
fræðingur í Reykja-
vík. Hún er nú á
upplestrarferð í
Þýskalandi, var í
Köln í gær og
Stuttgart í
kvöld.
Þó að æskudýrkunin hafi nú um
nokkurt skeið verið við lýði hér á
landi og víðar virðist reynslan ætla
að telja þegar kreppir að. Þetta sýnir
sig meðal annars í skoðanakönnun
þar sem hlustun á útvarp er mæld
með hinum nýja rafræna hætti. Þar
sem borið er saman síðdegisútvarp
Bylgjunnar og Rásar 2 (vika 16)
meðal þeirra sem eru á aldrinum
18 til 49 ára hlusta 70 prósent á
Bylgjuna, þar sem
einmitt situr
við míkróf-
óninn gamla
brýnið Þorgeir
Ástvaldsson, á
móti 30 prósent-
um sem hlusta
á Rás 2.
-jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hönnun Thelmu Bjarkar Jóns-
dóttur verður áberandi í sér-
stöku brúðarblaði sem hið virta
franska dagblað Le Figaro send-
ir frá sér í næsta mánuði. Thelma
hannar sérstakar spangir og hár-
skraut sem hafa vakið mikla
athygli. „Ég veit ekki nákvæm-
lega í hvaða formi þetta verður,
en þeir eru búnir að biðja um
heilmiklar upplýsingar um mig
og hönnunina, svo ég á von á að
þetta verði ágætis umfjöllun,“
segir Thelma.
Hún segir það frábært að kom-
ast inn á síður svo víðlesins dags-
blaðs. „Ég er líka að selja brúðar-
spangir hérna í Le bon marché,
svo þetta hjálpar örugglega
mikið til,“ segir Thelma, sem
hefur þó aðallega hannað brúðar-
spangir eftir sérpöntunum.
Hún er nú að leggja lokahönd á
vor- og sumarlínu sína fyrir
næsta ár, en næst á markaðinn er
lína hennar fyrir haust og vetur
2008. „Það er dálítið þjóðernis-
þema í henni, ég hugsaði svona
um prinsessuna í hverri konu og
tók fyrir prinsessu hverrar þjóð-
ar,“ útskýrir Thelma. Noregs-
prinsessan Mette Marit skartaði
spöng frá Thelmu við afhend-
ingu Nóbelsverðlaunanna í
desember síðastliðnum, en
Thelma segir það þó ekki hafa
verið innblásturinn. „Nei, hug-
myndin var nú komin á undan
henni,“ segir hún og hlær. „En
þetta fléttaðist mjög skemmti-
lega saman,“ bætir Thelma við.
Hönnun Thelmu má skoða
nánar á www.thelma-design.com.
- sun
Hönnuðurinn Thelma í frönsku stórblaði
THELMA DESIGN Hárspangir Thelmu
Bjarkar Jónsdóttur hafa vakið mikla
athygli.
GÓÐ KYNNING Thelma Björk Jónsdótt-
ir, hér í showroomi sínu í París, er að
vonum ánægð með þá kynningu sem
umfjöllun í Le Figaro felur í sér.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R