Fréttablaðið - 01.05.2008, Side 4

Fréttablaðið - 01.05.2008, Side 4
4 1. maí 2008 FIMMTUDAGUR AUSTURRÍKI, AP Læknar segja að líðan tveggja barna Elizabeth Fritzl, sem ólust upp hjá henni í dýflissu föður þeirra í Amstetten, sé merkilega góð. Elsta dóttirin, Kerstin, sem er 19 ára, er þó enn í lífshættu. Henni er enn haldið sofandi í öndunarvél og nýrnavél. Drengirnir tveir, sem eru 5 og 18 ára, þurfa að fara varlega í að venjast dagsbirtu og sólarljósi eftir að hafa alla ævi verið innandyra í þröngri kjallaraholu. Drengirnir tveir og þrjú systkini þeirra, sem ólust upp utan kjallaraholunnar í húsi Josefs Fritzl, dveljast nú ásamt móður sinni og ömmu á sjúkrahúsi og hafa þau heila álmu út af fyrir sig. - gb Elizabeth og börnin: Elsta dóttirin enn í lífshættu VIÐ HÚS FRITZL-FJÖLSKYLDUNNAR Lögreglurannsókn stendur enn yfir. NORDICPHOTOS/AFP ALÞINGI Geir H. Haarde forsætis- ráðherra segir að kostnaður við ferðalög ráðamanna sé ekki leyndarmál. Mistök hafi verið gerð þegar kostnaði vegna ferðar hans, utanríkisráðherra og föruneytis, með leiguflugvél, á leiðtogafund Nató í Búkarest í byrjun mánaðarins var haldið leyndum. Geir upplýsti þetta á Alþingi í gær. Sagði hann að í upphafi hafi flugrekandinn óskað þess að kostnaði við leiguna yrði haldið leyndum þar sem um sérstakan kynningarafslátt var að ræða. Ríkið gæti hins vegar ekki leynt upplýsingum á borð við þessar. - bþs Geir Haarde forsætisráðherra: Ferðakostnaður ekki leyndarmál Efla foreldra í skólastarfi Menntaráð Reykjavíkur hefur falið fræðslustjóra að „finna leiðir til að stuðla að því að fleiri grunnskólum í Reykjavík verði gert kleift að auka velferð nemenda sinna með því að efla foreldra í hlutverki sínu og stuðla að hlutdeild þeirra í skólastarfi barna sinna“. REYKJAVÍKURBORG Ekki göng á Skólavörðuholti Skipulagsráð Reykjavíkur hefur ákveðið að fella jarðgöng um Skólavörðuholt út af aðalskipulagi. Framkvæmdastjóri byggingar nýs háskólasjúkrahúss segir þetta fagnað- arefni. Göngin áttu að tengja saman Hringbraut og Sæbraut. FANGELSISMÁL Misskilnings gætir um fjölda sálfræðinga hjá Fang- elsismálastofnun og yfirlýsing um að aðeins einn sálfræðingur sinni föngum er röng. Þetta segir Páll Winkel, forstjóri Fangelsis- málastofnunar, um yfirlýsingu frá Afstöðu, félags fanga, um að frá og með gærdeginum sé aðeins einn sálfræðingur starfandi í fangelsum landsins en þá fór Þór- arinn V. Hjaltason í launalaust leyfi frá stofnuninni. Í yfirlýsingu Afstöðu segir meðal annars: „Ljóst er að einn starfsmaður getur á engan hátt sinnt öllum þessum fjölda en sálfræði-, geðlækna- og heil- brigðisþjónusta fangelsanna hefur verið mikið í umræðunni, sérstaklega í kringum sjálfsvíg er átti sér stað í fangelsinu á Litla-Hrauni fyrir nokkru. Var þjónustan þá gagnrýnd og kom í ljós að dæmi eru um að fangar sem afplána mislanga dóma hafi aldrei hitt sálfræðing eða geð- lækni meðan á afplánun þeirra stóð.“ Páll svarar yfirlýsingu fanga svo: „Hið rétta er að síðustu mánuði hafa aldrei fleiri sálfræðingar unnið hjá Fangelsismálastofnun, en þeir eru nú þrír talsins. Einn þeirra hefur óskað eftir launalausu leyfi í eitt ár. Í stað hans verður að sjálfsögðu ráð- inn annar sál- fræðingur.“ Segir hann að þegar sé unnið að því að ráða annan sálfræð- ing tímabundið í stað Þórarins. Þá bendir Páll á að í vissum til- vikum hafi Fangelsismálastofn- un jafnframt keypt þjónustu utanaðkomandi sálfræðinga sé þess talin sérstök þörf. Á undan- förnum árum hafi sálfræðiþjón- ustan í fangelsum landsins verið aukin verulega. Tekur hann sem dæmi að aðeins einn sálfræðing- ur starfaði í fangelsunum árið 1997 en eins og áður segi séu þeir nú þrír talsins. Einnig megi benda á að árið 2005 hafi gengið í gildi ný lög um fullnustu refsinga. Þau hafi falið í sér frekari áherslu á betrun og þjónustu við fanga og í kjölfar þeirrar lagasetningar hafi tvö stöðugildi félagsráðgjafa bæst við hjá Fangelsismálastofn- un sem hrein viðbót og á þessu ári hafi náms- og starfsráðgjafi, sem eingöngu sinnir föngum, verið ráðinn til starfa. Hann sjái því ekki að yfirlýsingar fanga um skerta þjónustu í fangelsum eigi við rök að styðjast. karen@frettabladid.is Segir fanga misskilja fjölda sálfræðinga Félag fanga hefur lýst yfir áhyggjum af því að aðeins einn sálfræðingur sé starfandi hjá Fangelsismálastofnun. Forstjóri stofnunarinnar segir misskilnings gæta í yfirlýsingu fanga. Hið rétta sé að sálfræðingarnir séu þrír en ekki einn. MISSKILNINGUR Fangar segja að ljóst sé að einn sálfræðingur geti á engan hátt sinnt þjónustu við fanga í öllum fangelsum landsins. Það telur forstjóri Fangelsis- málastofnunar rétt en bendir á að sálfræðingarnir séu þrír talsins og þjónusta í fang- elsum hafi verið aukin verulega. Misskilnings gæti því meðal fanga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA PÁLL WINKEL Komdu núna í Bílaland B&L og kynntu þér kostina Glæsilegt úrval lúxusbílaLÚXUS LR RANGE ROVER SE Nýskr: 03/2004, 4400cc, 5 dyra, sjálfskiptur, ljósbrúnn, ekinn 79.000. Verð 6.200.000 Opið virka daga frá kl. 10 til 18 og á laugardögum frá kl. 12 til 16 Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík 575 1230 - luxusbilar@bilaland.is. 575 1230 ALLIR INNFLUTTIR OG ÞJÓNUSTAÐIR AF UMBOÐI Kaupmannahöfn Billund Ósló Stokkhólmur Gautaborg London París Frankfurt Friedrichshafen Berlín Alicante Mallorca Basel Eindhoven Las Palmas New York Orlando San Francisco HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 14° 14° 13° 15° 16° 15° 15° 13° 16° 17° 23° 22° 17° 15° 24° 15° 28° 17° 13 3 8 8 11 3 7 9Á MORGUN 8-15 m/s NA-til annars 3-8 m/s LAUGARDAGUR 5-13 m/s, hvassast á Vestfjörðum 2 3 4 3 4 9 4 5 3 6 6 12 6 4 6 10 6 8 12 10 3 4 5 10 HÆGARI OG HLÝRRI Eftir tvo hvassa daga lægir nú loksins. Samhliða því má reikna með að hitastígið nái töluvert hærra upp að deg- inum en verið hefur og í dag á ég von á hita á bilinu 2-14 stig á landinu, hlýjast í uppsveitum á Suður- og Suðausturlandi. Á morgun og hinn verður vindasamt á Vestfjörðum. Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur Ritstjóri Jótlandspósts víkur Carsten Juste, ritstjóri Jótlandspósts- ins danska, hefur boðað að hann muni brátt víkja sæti fyrir nýjum ritstjóra. Enn liggur þó ekki fyrir hver sá verður. Jafnframt hefur Flemming Rose, menningarritstjóri blaðsins, hætt störfum, en „Múhameðsteikn- ingafárið“ mæddi mest á honum. DANMÖRK Ferðamenn farast í bátaslysi Talsmaður norsku strandgæslunnar staðfesti í gær að fjórir þýskir ferða- menn hefðu fundist látnir eftir að báti sem þeir höfðu leigt til sjóstangveiði hvolfdi undan ströndinni við bæinn Bessaker í Syðri-Þrændalögum. NOREGUR Árni endurkjörinn Árni Finnsson, formaður Náttúru- verndarsamtaka Íslands, var endur- kjörinn í stjórn Greenpeace Nordic til næstu þriggja ára á aðalfundi Greenpeace Nordic í Stokkhólmi um síðustu helgi. UMHVERFISMÁL GENGIÐ 30.04.2008 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 149,1537 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 74,38 74,74 146,23 146,95 115,49 116,13 15,474 15,564 14,470 14,556 12,332 12,404 0,7131 0,7173 120,64 121,36 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR ALÞINGI „Þótt talsvert hafi borið í milli í lýsingum aðila var fundur- inn upplýsandi,“ sagði Birgir Ármannsson, formaður allsherj- arnefndar Alþingis, eftir fund nefndarinnar í gær um átökin sem urðu í Norðlingaholti síðasta vetr- ardag. Fulltrúar lögreglu, dómsmála- ráðuneytis og mótmælenda komu á fundinn. Fóru þeir yfir atburða- rásina frá sínum sjónarhóli og svöruðu spurningum nefndar- manna. Jón Magnússon, Frjálslynda flokknum, fór fram á að nefndin óskaði eftir myndskeiðum sjón- varpsstöðvanna af atburðum og kveðst Birgir reikna með að það verði gert á næstunni. Birgir segir að nefndin muni ekki skila áliti eða komast að nið- urstöðu í málinu, það sé ekki í hennar verkahring. Hvað sem því líði sé það sín skoðun að atburða- rás og aðstæður á vettvangi hafi gefið tilefni til harðari lögregluað- gerða en Íslendingar eigi að venj- ast. - bþs Fulltrúar lögreglu og mótmælenda gengu á fund allsherjarnefndar Alþingis í gær: Nefndin skoði upptökur af átökunum SJÓNARHÓLL LÖGREGLU Yfirmenn lögreglu höfuðborgarsvæðisins, Hörður Jóhannesson og Stefán Eiríksson, fyrir allsherjarnefnd Alþingis. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.