Fréttablaðið - 01.05.2008, Page 12

Fréttablaðið - 01.05.2008, Page 12
 1. maí 2008 FIMMTUDAGUR Vátryggingafélag Íslands Ármúla 3 108 Reykjavík Sími 560 5000 vis.is Þar sem tryggingar snúast um fólk VERTU MEÐ ALLAR TENGINGAR Í LAGI HÚSVAGNATRYGGING VÍS Húsvagnatrygging VÍS er alhliða trygging fyrir tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi, sem tekur m.a. til áreksturs, veltu, útafaksturs, eldsvoða, skriðufalls og innbús svo eitthvað sé nefnt. Hafðu samband við þjónustuver VÍS í síma 560 5000 eða komdu við á næstu þjónustu- skrifstofu og fáðu nánari upplýsingar. 1. maí í Reykjavík Launafólk Kröfuganga dagsins fer frá Hlemmi Safnast verður saman við Hlemm og gengið niður Laugaveg kl. 13.00 Gangan leggur af stað kl. 13.30 Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngu Útifundurinn hefst á Ingólfstorgi kl. 14.10 Ávarp Georg Páll Skúlason, formaður Félags bókagerðarmanna. Tónlist Sprengjuhöllin. Ávarp Árni Stefán Jónsson, formaður SFR – stéttarfélags í almannaþjónustu. Gamanmál Gísli Einarsson, fréttamaður. Ávarp Gabriella Unnur Kristjánsdóttir, formaður Sambands íslenskra framhaldsskólanemenda. Fundarstjóri Fanney Friðriksdóttir, ritari Efl ingar. Verkalýðsfélögin í Reykjavík BSRB Bandalag háskólamanna Kennarasamband Íslands Samband íslenskra framhaldsskólanema ÖRYGGISMÁL Landhelgisgæslan hefur tekið í notkun nýtt rafrænt tilkynningakerfi fyrir skip sem koma til hafnar hér á landi og um flutning hættulegs farms. Sigl- ingastofnun og Landhelgisgæslan hafa unnið að gerð kerfisins und- anfarin tvö ár. Innleiðing kerfisins byggist á lögum um Vaktstöð sigl- inga og tilskipun Evrópusam- bandsins. Öll ríki Evrópusambandsins, sem liggja að sjó eða reka kaup- skip undir eigin fána, auk Íslands og Noregs vinna að eða hafa komið sér upp slíku kerfi. Kerfi allra landanna eru tengd miðlægum til- vísunargrunni þar sem hægt er að sækja upplýsingar um farm og ferðir skipa milli landa. Kerfið hefur verið nefnt Safe Sea Net. - shá Landhelgisgæslan tekur Safe Sea Net í notkun: Siglingaöryggi eykst RISAOLÍUSKIP Vaktstöð siglinga hefur tekið nýtt tilkynningakerfi í notkun. EVRÓPUMÁL Íslendingar ættu að ganga hnarreistir til aðildarsamn- inga við Evrópusambandið án þess að óttast að það skref ógni grund- vallarhagsmunum eða sjálfstæði þjóðarinnar. Þetta segir búlgarski þingmaðurinn Biljana Raeva, for- maður sameiginlegrar þingmanna- nefndar EES og tengslanefndar Evrópuþingsins við EFTA-ríkin. Raeva var hér í vikunni ásamt öðrum fulltrúum EES-þingmanna- nefndarinnar í þeim erindagjörð- um að sitja árlegan samráðsfund nefndarinnar og funda auk þess með utanríkismálanefnd Alþingis. Í samtali við Fréttablaðið legg- ur Raeva áherslu á að Ísland eigi sér vini á Evrópuþinginu sem séu tilbúnir að leggja við hlustir þegar fulltrúar Íslands vilja koma ein- hverju sérstöku á framfæri, til að mynda í tengslum við nýja Evr- ópulöggjöf sem er til umfjöllunar þar. En hún minnir jafnframt á að hver og einn Evrópuþingmaður ber fyrst og fremst hag eigin kjós- enda fyrir brjósti; honum er ekki skylt að taka tillit til hagsmuna ríkja sem standa utan við Evrópu- sambandið. Raeva vekur enn fremur athygli á því að þegar Lissabon-sáttmáli ESB tekur gildi, væntanlega í byrjun næsta árs, þá verður það flóknara og erfiðara fyrir fulltrúa Íslands og hinna EFTA-ríkjanna í EES að gæta sinna hagsmuna í Evrópulöggjafarferlinu. Þessu valdi fyrst og fremst aukið hlut- verk Evrópuþingsins og þjóðþinga ESB-ríkjanna í því ferli. Eina stofnun ESB sem EES-samningur- inn veitir fulltrúum EES-ríkjanna einhvern aðgang að til að koma nálægt mótun nýrrar Evrópu-/ EES-löggjafar er framkvæmda- stjórnin, en áhrif hennar í löggjaf- arferlinu voru miklu meiri þegar EES-samningurinn var gerður fyrir hálfum öðrum áratug en þau verða framvegis. Spurð hvort hún telji að Ísland geti dregið einhverja lærdóma af reynslu Búlgaríu af því að semja sig inn í Evrópusambandið svarar Raeva: „Við [Búlgarar] álítum okkur líka litla þjóð sem vissulega framseldi hluta af fullveldi sínu við inngöngu í sambandið en nýtur nú ávinningsins sem vegur miklu þyngra. Ísland sem lítil en stolt þjóð með merka sögu og forna lýð- ræðishefð ætti að mínu mati að geta gengið hnarreist til samninga við ESB.“ audunn@frettabladid.is Hnarreistir til samninga Búlgarski Evrópuþingmaðurinn Biljana Raeva, sem nú er formaður sameiginlegu EES-þingmanna- nefndarinnar, segir ástæðulaust fyrir Íslendinga að óttast aðildarsaminga við Evrópusambandið. BILJANA RAEVA Búlgarskur formaður sameiginlegu EES-þingmannanefndar- innar tók sæti á Evrópuþinginu fyrir ári. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN BANDALAG ÞJÓÐRÍKJA Raeva segir aðildarþjóðir ESB vera „sameinaðar í fjölbreytni“.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.