Fréttablaðið - 01.05.2008, Side 29

Fréttablaðið - 01.05.2008, Side 29
[ ]Ruslafatan getur verið alveg jafnmikið stáss á heimilinu eins og hver annar vasi. Ruslafötur í skemmmtilegum litum gefa eldhúsinu sumarlegan blæ. Það verður seint um Þórdísi Jónsdóttur sagt að hún sé sporlöt kona. Að minnsta kosti ekki þegar um saumspor er að ræða. Um það vitna púðarnir hennar sem eru til sýnis til 6. maí hjá Handverki og hönnun í Aðalstræti 10. „Þessi púðaáhugi minn vaknaði þegar systir mín og frænka voru að hanna veitingastaðinn Friðrik V að innan. Þær báðu mig að sauma púða í huggulegt horn setustofunnar og þeir hafa vakið athygli,“ segir Akureyringurinn Þórdís Jónsdóttir spurð út í þá listgrein sína að sauma púða. Hún er enginn viðvaningur í saumaskapnum því um tíu ára skeið kveðst hún hafa handbróderað í flísföt ásamt mágkonu sinni. Þau má sjá á heimasíðunni www. saumasmidjan.com. „Ég hef alltaf verið að sauma,“ segir hún. „Ömmur mínar voru miklar hannyrðakonur og áhuginn smitaðist yfir í mig enda finnst mér ekkert veita af að halda þessari iðju við, þó ekki sé nema til að vega aðeins á móti tölvudýrkuninni í þjóðfélaginu.“ Þórdís kveðst teikna mynstrin í púðana sjálf. Þó hafi hugmyndin að þeim fyrstu komið úr púðum ömmu og afa. „Það sem er á sýningunni í Handverki og hönnun saumaði ég þó alveg eftir mínu höfði. Stundum teikna ég grunn að mynstri sem síðan breytist í höndunum á mér en oft byrja ég bara á að stinga nálinni í efnið og held af stað. Ég á systur sem stundar málaralist á Ítalíu og mér finnst hannyrðum og list- málun svipa saman.“ Aðra systur kveðst Þórdís eiga sem sinni keramiki og henni segist hún stundum lána hendur sínar þegar mikið sé að gera. „Bróð- ir minn er svo grafískur hönnuður og hann bjó til gjafakort með púða- myndum,“ segir hún og nefnir í lokin að beðið hafi verið um verk hennar á sýningu í Árbæjarsafni í júlí. gun@frettabladid.is Saumar eftir sínu höfði Þórdís velur góð efni í púðana svo þeir beri sig vel. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Þórdís er iðin við hannyrðirnar og finnst ekki veita af að viðhalda útsaumshefðum á þessari tölvuöld. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIDA.IS Straujfríir dúkar FALLEGIR SPARIDÚKAR GETA SETT STEMMNINGUNA Í ELDHÚSINU EÐA Í STOFUNNI. Margir spara að nota dúkana sína því þeir eru hræddir um að það hellist í þá, svo þarf yfirleitt að strauja fínustu dúkana og maður nennir því kannski ekki alltaf. Nú eru samt til vaxdúkar í ótrú- legustu gerðum. Til eru blúndu- vaxdúkar sem gefa gamaldags stemmningu, dúkar með nýtísku- legum mynstrum og alls kyns dúkar í barnaherbergin. Ef eitthvað gerist er ekkert auðveldara en að strjúka bara yfir með blautum klút. - kka – ekki bara grill! Sölustaðir: Járn & Gler · Garðheimar · Húsasmiðjan Egg · Búsáhöld Kringlunni · Pottar og Prik Akureyri Gallerý kjöt og Fiskisaga · www.weber.isXEI N N J G E B G 5 x4 0 1 Bowel Biotics+ Einstök formúla fyrir heilbrigði maga og ristils - ráðlagt af meltingarlæknum og heilsusérfræðingum Physillium Husk Prebiotica Inulin FOS Probiotics 5 tegundir mjólkursýrugerla Vinsælasta magaheilsuefnið í Bretlandi og víðar Ummæli íslenskra neytenda: „Það besta og fljótvirkasta sem við höfum prófað” Bowel Biotics+ Kids Sérstaklega samsett svo hæfi meltingu barna Fæst í apótekum og heilsubúðum Celsus Þurrktæki lækkar rakastig og kemur í veg fyrir vöxt myglusveppa. Burt með myglusveppina Er of hátt rakastig hjá þér? Netverslun ishusid.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.