Fréttablaðið - 01.05.2008, Page 37

Fréttablaðið - 01.05.2008, Page 37
FIMMTUDAGUR 1. MAÍ 2008 5bílar ● fréttablaðið ● Tímaritið Bílar & sport fagnar um þessar mundir þriggja ára afmæli og í tilefni af því verður glæsileg sýning í Fífunni í Kópavogi um helgina. Sýningin „Bílar & sport 2008“ verður haldin í Fífunni í Kópa- vogi 2. til 4. maí næstkomandi og er þetta bíla- og mótorsport- sýning af bestu gerð. „Sýningin spannar mjög vítt svið í bíla- og mótorsporti og tökum við brot af því besta,“ segir Þórður Freyr Sigurðsson, ritstjóri og framkvæmdastjóri tímaritsins Bílar & sport. Á sýningunni kennir ýmissa grasa og má þar auk öku- tækja finna þyrlur og flugvélar. „Eins verður SBKÍ, sem er Smábílaklúbbur Íslands, með aðstöðu á sýningunni og getur fólk prófað þar fjarstýrða rafmagnsbíla sem komast hátt í hundraðið. Léttitækni verður með kynningu á Segway-létt- hjólunum en þetta eru tæki á tveimur hjólum og virka þannig að tækið skynjar þyngdarpunktinn á þér þannig að þú heldur alltaf jafnvægi. Síðan ferðu bara áfram með því að halla þér fram og líkaminn stjórnar í raun hreyfingum tækisins. Það er magnað að prófa létthjólin, en á sýningunni gefst fólki tæki- færi á að gera það,“ segir Þórður. Fyrir tveimur árum var haldin samskonar sýning í nýju sýningarhöllinni í Laugardalnum og fyrir þá sýningu var fluttur inn hraðskreiðasti fjöldaframleiddi bíll heims, Koenig- segg CCX. Nú verður sýningin helmingi stærri og er því hald- in í Fífunni í Kópavogi sem er ein stærsta íþrótta- og sýning- arhöll landsins. „Við erum með alla höllina sem er um tíu þúsund fermetrar að stærð og höfum við verið að undirbúa þetta meira og minna síðan á síðustu sýningu fyrir tveimur árum. Þetta verður því mjög flott og vönduð sýning,“ segir Þórður stoltur og hlakkar til að sýna afraksturinn. „Sýningin er unnin í samvinnu við klúbba og félagasamtök í geiranum og það er mikið af bílum frá einstaklingum þannig að þetta er fyrst og fremst skemmtileg sýning til að skoða flott tæki en ekki þessi hefðbundna sölusýning, þó að þarna verði fyrirtæki. Bílabúð Benna ætlar til dæmis að frumsýna nýjan 911 Turbo Cabriolet sem er blæjuútgáfa en það verður eitthvað um þess háttar bíla á sýningunni,“ útskýrir Þórður og bætir við: „Við erum að hugsa þetta þannig að fólk fái einhverja tengingu og geti skoðað suma bíla alveg út í gegn. Síðan má ekki gleyma að Stöð 2 verður með bás á svæðinu og þar verður Kristján Einarsson sem er að keppa í Formúlu 3. Hann verður með for- múlu 3 og formúlu 1 bíl til sýnis.“ Sýningin verður opnuð föstudaginn 2. maí klukkan fjögur og er til níu um kvöldið. Hún er opin frá ellefu til níu laugar- dag og ellefu til sjö á sunnudag. - hs Brot af því besta í Fífunni Þórður hallar sér hér upp að glænýjum tveggja dyra Benz sem er sérhannaður fyrir eigandann og með ýmsum aukabúnaði. Bifreiðin verður til sýnis í Fífunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Þessi fjórhjólakappi tilheyrir ATV Lovers sem er hópur fjórhjóla- manna sem verða á sýningunni. MYND/SIGURÐUR RAGNAR GUÐLAUGSSON Hér gefur að líta mest breytta bíl landsins, Dodge Ram á 54 tommu dekkjum. MYND/GUNNLAUGUR RAFN BJÖRNSSON Mitsubishi Lancer EVO X er eini bíllinn sinnar tegundar á landinu og hafa menn beðið hans með eftir- væntingu. MYND/ARNAR FREYR BÖÐVARSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.