Fréttablaðið - 03.05.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 50003. maí 2008 — 120. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
LAUGARDAGUR
FORDÓMAR GEGN FEITUM
Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur ræðir
um skömm fólks á eigin líkama og and-
svar við megrunaráróðrinum
34
UTANRÍKISMÁL Enginn kostnaður
hefur verið bókfærður á fram-
boð Íslands til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna (SÞ)
vegna ráðstefnuhalds, áheyrn-
araðildar að Afríkusamband-
inu, ferðalaga ráðamanna eða
nýrra sendiráða, þrátt fyrir að
allt nýtist þetta framboðinu.
Áætlað er að kostnaður vegna
framboðsins muni nema um 350
milljónum króna, frá árinu 2001.
Í þeirri tölu er svo til eingöngu
kostnaður við að efla starfsemi
fastanefndar Íslands hjá höfuð-
stöðvum SÞ í New York og við
kosningastjóra framboðsins.
Jón Magnússon, þingmaður
Frjálslynda flokksins, segir
kostnað vegna framboðsins
þröngt skilgreindan. Augljóst sé
að kostnaðurinn sé stórlega van-
metinn.
Hann nefnir sem dæmi ráð-
stefnu sem haldin var í samstarfi
við erlenda aðila á Barbados yfir
páskana. Kostnaður íslenska rík-
isins vegna ráðstefnunnar fellur
undir þróunarsamvinnu, þótt
óumdeilt sé að hún hafi gagnast
framboðinu vel. Fréttablaðið ósk-
aði eftir upplýsingum um kostnað
við ráðstefnuna en fékk ekki.
Þá nefnir Jón óþörf sendiráð
sem opnuð hafi verið á undan-
förnum árum, til dæmis í Suður-
Afríku, í Japan og á Indlandi.
Kristín Árnadóttir, kosninga-
stjóri framboðsins, hafnar því að
kostnaður sé vanmetinn. Ráð-
stefnan á Barbados hafi verið
hluti af þróunarsamvinnu, þótt
hún hafi vissulega nýst framboð-
inu.
Þá eru ferðir ráðamanna ekki
ákveðnar vegna framboðsins,
heldur þær ferðir sem hvort eð er
væru farnar nýttar í þágu þess,
segir Kristín.
Austurríkismenn segjast ekki
eyða neinu aukalega í framboðið,
en þeir skilgreina kostnað með
svipuðum hætti og íslensk stjórn-
völd. Tyrkir eru sagðir ætla að
eyða andvirði 3,7 milljarða króna,
en þeir gáfu ekki kost á viðtali
vegna framboðsins. - bj / sjá síðu 16
Framboðskostnaður
stórlega vanmetinn
Utanríkisráðuneytið telur að kostnaður vegna framboðs Íslands til öryggisráðs
SÞ verði um 350 milljónir. Kostnaðurinn þröngt skilgreindur segir þingmaður.
Ráðstefna á Barbados fellur undir þróunarsamvinnu þótt hún gagnist framboði.
SKOÐANAKÖNNUN Lagið Draumur
um Nínu eftir Eyjólf Kristjánsson
þykir besta Eurovisionlag Íslands.
Þetta er niðurstaða skoðanakönn-
unar Fréttablaðsins. Þrjú lög
skáru sig úr í könnuninni, Nína,
All out of Luck og Gleðibankinn.
Nína fær jafnan stuðning allra
landsmanna, en ef landsbyggðin
fengi að ráða væri Gleðibankinn
bestur. Fengju stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokks og Samfylking-
ar hins vegar einir að ráða hefði
All out of Luck sigrað.
- glh / sjá síðu 36
Könnun Fréttablaðsins:
Nína er besta
Eurovisionlagið
FÓLK Sjónvarpsmaðurinn Auðunn
Blöndal lenti í kröppum dansi í fót-
boltaferð sinni á Englandi fyrir
skömmu. Auðunn, sem er aðdáandi
Manchester United, sat í stúku Chel-
sea-aðdáenda á heimavelli þeirra,
Stamford Bridge, þegar hann gerði
þau mistök að fagna jöfnunarmarki
sinna manna gegn Chelsea.
„Ég fagnaði og þá ætluðu einhverjir
tjallar að ráðast á mig. Þannig að ég
sá ekki þegar Chelsea komst í 2-1.
Ég var skíthræddur og hélt það ætti
að drepa mig. Það var einn sem ætl-
aði að slá til mín,“ segir Auðunn.
Honum var í framhaldinu fylgt í
burtu af öryggisvörðum. „Ég fagn-
aði, en samt ekki hátt. Ég stóð ekki
upp og öskraði ekki neitt en það sást
að ég var ánægður. Þeir fyrir fram-
an mig sáu það og öskruðu á mig og
þá tók öll stúkan við sér.“
- fb / sjá bls 54
Auðunn Blöndal í vanda:
Fylgt út af
Stamford Bridge
AUÐUNN BLÖNDAL Sjónvarpsmaður-
inn geðþekki lenti í honum kröppum í
fótboltaferð á Englandi.
Sendiherra efnir til
veislu í Belgrad
Guðmundur Árni Stefánsson,
sendiherra í Svíþjóð,
kemur að skipulagningu
mikillar Íslandsveislu
fyrir þátttakendur
Eurovision-keppninnar
í Serbíu.
FÓLK 54
Stærsta
bíla- og mótor-
sportsýning
Íslandssögunnar
Föstudag: 16:00 - 21:00
Laugardag: 11:00 - 21:00
Sunnudag: 11:00 - 19:00
Opnunartími:
2.-4. maí
í Fífunni
Kópavogi
LÍFSGÆÐI Á
LANDSBYGGÐINNI
„Ég fann son minn að
skera hákarl á hafnar-
bakkanum. Ætli ég hefði
ekki fundið hann í bolta-
sundlaug í Kringlunni
ef við hefðum verið í
Reykjavík,“ segir Grímur
Atlason.
HELGARVIÐTAL 30
VÍÐA EINHVER VÆTA Í dag verða
norðaustan 8-13 m/s norðvestan til
annars hægari. Dálítil væta á víð og
dreif í dag, síst á Norðausturlandi.
Hiti 4-14 stig, svalast á Vestfjörðum.
VEÐUR 4
12
11
10
8
4
BJÖRGUN „Það fyrsta sem ég hugsaði þegar snjórinn
brotnaði undan mér var: ég er dauð!“ segir María
Hrönn Magnúsdóttir sjúkraliði, sem varð fyrir
óskemmtilegri reynslu þegar hún féll um tuttugu
metra niður sprungu á Eyjafjallajökli á fimmtudag.
María var ásamt farþegum níu annarra bíla í
jeppaleiðangri á jöklinum, og þegar komið var að
Goðasteini þurfti hún að bregða sér afsíðis. Skyndi-
lega brotnaði snjór undan fótum hennar og skautaði
hún um tuttugu metra niður sprunguvegginn þar til
hún stöðvaðist loks á syllu.
María hrópaði á hjálp en enginn heyrði í henni.
Varð henni til happs að hafa á sér talstöð sem hún
notaði til að ná sambandi við aðra meðlimi hópsins.
Jepparnir voru búnir köðlum, sem notaðir voru til að
hífa Maríu úr sprungunni.
„Ég var svo ánægð að sleppa heil út úr þessu að
mér datt ekki annað í hug en að skella í mig einni
verkjatöflu og halda ferðinni áfram. Það var ekki
fyrr en ég kom heim að ég fann fyrir eymslum.“ - kg
María Hrönn Magnúsdóttir slapp ótrúlega vel úr þrekraun á Eyjafjallajökli:
Féll 20 metra niður sprungu
UPP ÚR SPRUNGUNNI Ferðafé-
lagar Maríu Hrannar Magnús-
dóttur náðu að hífa hana upp
úr 20 metra djúpri sprungu á
Eyjafjallajökli.