Fréttablaðið - 03.05.2008, Qupperneq 32
[ ]Undirfötin mega fara að taka mið af hækkandi sól eins og annað í fataskápnum. Líflegir litir og fallegar blúndur eru málið í sumar.
Útskriftarsýningu Listaháskóla Íslands á
Kjarvalsstöðum lauk nú í vikunni en þar kenndi
ýmissa grasa.
„Húmor og súrrealismi í bland við kraft og kven-
leika er það sem liggur á bak við línuna hjá mér,“
útskýrir Eva María Árnadóttir en hún var ein þeirra
sem sýndu lokaverkefni sitt í fatahönnun á Kjar-
valsstöðum. Eva María leitaði innblásturs til ljós-
mynda Jean-Paul Goude af Grace Jones og bera flík-
urnar merki breiðra axla. Litirnir eru sterk-gulur og
bleikur ásamt gráu, svörtu og hvítu.
„Það má segja að Grace Jones sé áhrifavaldur á
bak við línuna hjá mér,“
segir Eva María. „Ég leik
mér að andstæðum í
vídd og mittin eru
þröng og kvenleg á móti
risastórum breiðum
öxlum. Ég bjó til plast-
skeljar innan í fötin til að
búa til risaaxlir en axlirnar
klæðir maður sig í sérstak-
lega og þær eru líka brjósta-
haldari, þetta eru sérstakar
flíkur.“
Hugmyndavinnan fyrir lokaverkefnið byrjaði
í janúar. Síðan tók við skissuvinna og svo var
farið að sníða og sauma. Eva María gerði öll snið-
in sjálf og fékk svo aðstoð fjölskyldu og vina við
saumaskapinn. Hún er bjartsýn á framtíðina og
ætlar einungis að taka sér stutt sumarfrí áður en
hún hellir sér í meiri vinnu.
„Ég ætla mér að finna vinnu í þessum bransa
hérna heima og leitin mun hefjast á næstu vikum.
Svo í framtíðinni er stefnan tekin á útlönd að vinna
fyrir einhvern stóran. Ég vil byrja á að safna mér
reynslu en ég var í starfsþjálfun í New York síðasta
sumar hjá Marc Jacobs fatahönnuði og fór á fyrsta
ári í skólanum til Parísar að vinna í mánuð fyrir
tískuvikuna,“ útskýrir Eva María og er því búin að
fá smjörþefinn af bransanum í útlöndum. Hvað flík-
urnar í lokaverkefninu við LHÍ varðar segir hún
þær fara í geymslu en hún tekur við pöntunum frá
áhugasömum.
heida@frettabladid.is
Risaaxlir og mjó mitti
Eva María leikur sér með andstæður í
vídd og mittin eru kvenleg og þröng.
Eva María Árnadóttir, nýútskrifaður fatahönnuður,
stefnir á útlönd í framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Nýir veggstenslar og litir.
Magna Huld Sigurbjörnsdóttir
hársnyrtir
( áður hjá Primadonnu )
Hefur hafi ð störf á ný á Hársnyrtistofu
Grafarholts, Kirkjustétt 2-6, 2 hæð.
Gamlir sem nýir kúnnar hjartanlega
velkomnir.
Tímapantanir
í síma 567-5700
Nánari upplýsingar á fm957.is.
SKEMMTUN YFIR
HÆTTUMÖRKUM
Miðasala í verslunum Símans
og á midi.is.
Við stöndum
upp úr
Atvinna í boði... ...alla daga
Atvinnublað Fréttablaðsins
er með 60% meiri lestur en
atvinnublað Morgunblaðsins
miðað við 20–40 ára
sk
v.
k
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
1
. n
óv
. 2
00
7–
31
. j
an
. 2
00
8
24,5%
39,3%
At
vi
nn
ub
la
ð
M
or
gu
nb
la
ðs
in
s
At
vi
nn
ub
la
ð
Fr
ét
ta
bl
að
si
ns