Fréttablaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 03.05.2008, Blaðsíða 70
46 3. maí 2008 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is > VISSIR ÞÚ? Enska orðið yfir milljónamæring var fyrst notað af rithöfundinum Benjamin Disraeli í skáldsögu hans, Vivian Grey, sem kom út árið 1826. Bókin fjallar um samnefnda söguhetju sem reynir að klífa metorðastigann í bresku stjórnmálalífi. „Já, hálfsmánaðarlega fer ég til Ingva Hrafns. Hann rekur þessa stöð, ÍNN. Skammast, held hugsjónaræður og tala við þjóðina,“ segir Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins og fyrrum landbúnaðarráð- herra. Guðni hefur nú tekið tæknina í sína þjónustu. Er kominn á netið með þætti sína „Guðni af lífi og sál“. „21. öldin er komin inn í mitt líf,“ segir Guðni en hafnar því aðspurður að stjórnarandstaðan þurfi meira á tækninni og tölvusamskiptum að halda en þeir sem sitja í stjórn. „Menn tóku reyndar eftir því þegar ég var ráðherra að ég var aldrei í tölvunni. Ég vildi frekar tala við fólkið. En, ég kann nú eitthvað á tölvu og sendi SMS í símann.“ Guðni heldur sínar ræður blaðlaust á ÍNN. Í um tuttugu mínútur. Og kemur víða við. Allt frá því að skamma Geir H. Haarde forsætis- ráðherra til þess að fara með ljóð. „Já, í síðasta þætti. „Blessuð sólin, elskar allt, allt með kossi vekur …“ Í tilefni vorkomunnar og þess að ég hafði verið að ganga á Gróttu.“ - jbg Guðni inn í 21. öldina GUÐNI ÁGÚSTSSON Vorhugur er kominn í Guðna sem nú hefur tekið tæknina í sína þjónustu. Tom Cruise hagaði sér sómasam- lega við upptökur á spjallþætti Opruh Winfrey í Chicago á dögunum. Síðast þegar Cruise mætti í heimsókn til Opruh hoppaði hann niður úr sófanum hennar og lét öllum illum látum. Vakti athæfið heimsathygli og töldu margir að Cruise væri búinn að tapa glórunni er hann lýsti yfir ást sinni á Katie Holmes, sem hann síðar kvæntist. Í þetta sinn var Cruise rólegur og yfirvegaður og svaraði spurningum Opruh á afslappaðan hátt. Þegar gert var hlé á útsendingum talaði hann við áhorfendur og var hinn elskuleg- asti. Yfirvegaður hjá Oprah TOM CRUISE Cruise hagaði sér sóma- samlega við tökur á spjallþætti Opruh Winfrey í Chicago fyrir skömmu. Rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson býður til mik- illar og trylltrar veislu á Stóru-Klöpp. Meðal gesta eru Hilmar Örn og Einar Kárason. „Helter Skelter is coming down fast, sungu Bítlarnir í eina tíð og það eru orð að sönnu. Bít-hátíðin á Stóru-Klöpp er að ríða yfir. Bít-skáldið og trúbadorinn Ron Whithead kom til landsins í gær og í fylgd með honum Scott Mertz úr bandinu Southside Lounge,“ segir Ólafur Gunnarsson rithöf- undur. Ólafur kann sér vart læti því í kvöld verður sett mikil hátíð að heimili hans að Stóru-Klöpp og drífur þegar að mikinn hóp bítn- ikka. Ólafur Gunnarsson er mik- ill áhugamaður um bítskáldin, undir miklum áhrifum frá þeirri stefnu og þýddi til dæmis eitt höfuðrit bítskáldanna eða Á vegum úti eftir Kerouac. „Ron mun setja hátíðina með því að segja nokkur deili á Bít-kynslóð- inni en síðan munu þeir Ron, Michael Pollock og Scott skella sér í músíkina. Ron sér um söng- inn, Michael um rafmagnsgítar- inn en Scott mun seiða fram tóna úr munnhörpu. Hinn kunni selló - leikari Dean Farrell kemur fram með hópnum,“ segir Ólafur þegar kominn í bíttaktinn. Fleiri gestir munu sýna takta, þar á meðal sjálfur allsherjar- goðinn Hilmar Örn Hilmarsson, að sögn Ólafs: „Tveir Norður- landamethafar í bókmenntum heiðra hátíðina, Sjón og Thor Vil- hjálmsson. Hinn síðarnefndi mun lesa nokkur ljóð frumort á ensku. Jónsi, söngvari Sigur Rósar, er væntanlegur og Birgitta Jóns- dóttir skáldkona mun lesa nokk- ur ljóð. Stórskáldið Einar Kára- son mun troða upp og jafnvel er von á óvæntum gestum.“ Loks verður lagður eldur í bál- köst. Ólafur segir alla velkomna á hátíðina og lofar grilluðum pylsum. Til að komast að Stóru- Klöpp, heimili Ólafs, er ekið upp að „Gas-Hól“ við Rauðavatn, þar sem átökin urðu nýverið milli vörubílstjóra og lögreglu. Síðan er fimm mínútna akstur í austur (í áttina að Hveragerði) að Stóru- Klöpp. - jbg Bítnikkar í heim- sókn hjá Óla Gunn BÍTNIKK Ólafur þýddi höfuðverk Jack Kerouac, Á vegum úti, og blæs til bítn- ikk-veislu í kvöld. ÓLAFUR GUNNARSSON Búast má við miklu fjöri heima hjá honum í kvöld en þangað hefur Ólafur boðað fjölda bítn- ikka til veislu – og eru allir velkomnir. Hlustendaverðlaun FM 957 verða afhent í tíunda sinn í Háskólabíói í kvöld og verður athöfnin í beinni útsend- ingu á Stöð 2 og Visir.is, auk þess sem henni verður útvarpað beint á FM 957. Allt fram að hátíðinni munu þeir Brynjar Már og Heiðar Austmann taka púlsinn á helstu poppurum landsins í útvarpinu og fara yfir tilnefningarnar og hátíðina í heild sinni. Rauðum dregli verður síðan rúllað fram fyrir hina tilnefndu eins og undanfarin ár. „Þetta er ofboðslega stórt skref fyrir okkur. Við erum að fara í þúsund manna sal og ætlum að hafa þetta á laugardags- kvöldi. Síðan höfum við aldrei verið í beinni á Stöð 2 og það í opinni dagskrá, en ég er rosalega ánægður,“ segir Brynjar Már, sem játar að stressið hafi verið mikið undanfarnar vikur. Alls verða níu verðlaun afhent í kvöld og eins og nafn keppninnar gefur til kynna eru það hlustendur FM 957 sem velja sigurvegarana og kemur engin dómnefnd þar nærri. - fb Rauður dregill hjá FM957 BRYNJAR MÁR VALDIMARS- SON Tónlistarstjóri FM 957 á von á skemmtilegu kvöldi í Háskólabíói. ORLOF 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.