Fréttablaðið - 03.05.2008, Page 75

Fréttablaðið - 03.05.2008, Page 75
LAUGARDAGUR 3. maí 2008 Auglýsingasími – Mest lesið FÓTBOLTI Englandsmeistararnir í Manchester United verða í sviðs- ljósinu í dag þegar West Ham kemur í heimsókn á Old Trafford en leikurinn hefst kl. 11.45. Með sigri kemst United skrefi nær því að verja titil sinn og setur þá jafn- framt pressu á Chelsea sem leikur ekki fyrr en á mánudag gegn New- castle á St. James‘s Park. Wayne Rooney verður á ný í leikmannahópi United í dag eftir að hafa misst af sigurleik liðsins gegn Barcelona í Meistaradeild- inni í vikunni en ekki er víst hvort að hann verði í byrjunarliðinu. Patrice Evra mun að öllum líkind- um einnig verða í leikmannahópi United þrátt fyrir að hafa verið borinn meiddur af velli með höf- uðáverka í leiknum gegn Barce- lona. Sir Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri United, tilkynnti hins vegar á blaðamannafundi í gær að Nemanja Vidic yrði ekki með í leiknum gegn West Ham. „Hann fékk heilahristing gegn Chelsea fyrir viku og það tekur menn jafnan um tíu daga til að jafna sig á því,“ sagði Ferguson. Freddie Ljungberg er aftur kominn á meiðslalistann hjá West Ham sem er annars of langur til þess að telja upp en ummæli Alan Curbishley, knattspyrnustjóra West Ham, í vikulegum blaðapistli sínum hafa valdið fjaðrafoki. „Ég vona að United verði meist- ari vegna þess hvernig liðið hefur leikið á þessarri leiktíð. Það yrði í raun þvílíkt óréttlæti ef United yrði ekki meistari,“ skrifaði Cur- bishley fyrir rúmri viku síðan og hafa ýmsar sögusagnir verið á kreiki í kjölfarið. Curbishley sem er góðvinur Sir Alex Ferguson hefur hins vegar blásið á sögu- sagnirnar og ítrekað að West Ham muni gera allt til þess að vinna leikinn. „Ég mun lyfta glasi og fagna því félagi sem verður enskur meist- ari, hvort sem það verður United eða Chelsea. Það er fáránlegt að halda því fram að ég haldi með United þrátt fyrir þessi skrif mín og góðvinur minn Ferguson veit það að hann á ekki eftir að fá neina greiða frá mér eða West Ham í þessum leik,“ sagði Curbishley. United hefur aðeins tapað einum af síðustu tólf leikjum sínum í öllum keppnum og ennfremur unnið sextán af síðustu sautján heimaleikjum sínum. Athygli vekur hins vegar að West Ham hefur unnið síðustu þrjá leiki sína gegn Englands- meisturunum og Alan Curbishley er því með 100% vinningshlutfall gegn Ferguson í ensku úrvals- deildinni síðan hann tók við West Ham. Sigri United gegn West Ham má segja að liðið sé komið með aðra hendi á titilinn og á þá aðeins eftir útileik gegn Steve Bruce og læri- sveinum hans í Wigan í lokaum- ferðinni. Reynsluboltinn Gary Neville er afar sáttur með stöðuna sem United er komið í og er bjart- sýnn á lokaumferðirnar. „Þetta er í okkar höndum og það er nákvæmlega eins og við viljum hafa það. Möguleikar okkar á að verja titilinn eru góðir og sú stað- reynd að liðið sé komið í úrslita- leik Meistaradeildarinnar hefur gefið öllum spark í rassinn til að halda áfram,“ sagði Neville. - óþ Manchester United kemst með aðra hönd á titilinn sigri liðið West Ham í dag: Ummæli Curbishley valda usla VERÐA MEÐ Wayne Rooney og Patrice Evra verða með United í leiknum mikilvæga gegn West Ham á Old Trafford í dag. Rooney missti af leik United gegn Barcelona í vikunni og Evra meiddist í þeim leik. NORDIC PHOTOS/GETTY STAÐAN Í ENSKU ÚRVALSDEILDINNI Man. Utd 36 25 6 5 74-21 81 Chelsea 36 24 9 3 62-25 81 Arsenal 36 22 11 3 72-31 74 Liverpool 36 19 13 4 64-28 70 Everton 36 18 8 10 52-31 62 Aston Villa 36 16 11 9 69-47 59 Portsmouth 36 16 9 11 48-37 57 Blackburn 36 14 13 9 46-43 55 Man. City 36 15 10 11 44-44 55 West Ham 36 13 9 14 39-44 48 Tottenham 36 10 13 13 65-59 43 Newcastle 36 11 10 15 44-60 43 Sunderland 36 11 6 19 36-56 39 Wigan 36 9 10 17 32-49 37 M‘brough 36 8 12 16 33-52 36 Bolton 36 8 9 19 33-53 33 Reading 36 9 6 21 37-65 33 Birmingham 36 7 11 18 42-59 32 Fulham 36 6 12 18 35-60 30 Derby 36 1 8 27 19-82 11 FÓTBOLTI Fallbaráttan stendur nú sem hæst þegar aðeins tvær umferðir eru eftir í ensku úrvalsdeildinni, og þar eru Íslend- ingaliðin Bolton og Reading enn að gæla við falldrauginn. Bolton mætir Roy Keane og lærisveinum hans í Sunderland á Reebok leikvanginum í dag og þar verður Grétar Rafn Steinsson að öllu óbreyttu á sínum stað í byrjunarliðinu en Heiðar Helguson verður líklega á varamannabekknum að þessu sinni. Reading mætir Tottenham á Madejski leikvanginum og Ívar Ingimarsson verður í byrjunarlið- inu en Brynjar Björn Gunnarsson líklega á varamannabekknum eftir að hafa jafnað sig á þrálát- um nárameiðslum. Það verður sannkallaður fallbaráttuslagur á Craven Cottage þegar Fulham tekur á móti Birmingham og leikurinn gerir það að verkum að það ræðst ekki fyrr en í lokaumferðinni hvaða lið fylgja Derby niður um deild. - óþ Mikilvægir leikir í fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í dag: Íslendingaliðin ekki sloppin Í ELDLÍNUNNI Grétar Rafn Steinsson spilar mjög mikilvægan leik fyrir Bolton í botnbaráttunni í dag. NORDIC PHOTOS/GETTY 13:00 Bókasafn Kópavogs Óskin Barnaleikrit fyrir yngstu áhorfendurna. Skemmtilegt ævintýri með söngvum í flutningi Einleikhússins. 13:00–17:00 Gjábakki og Gullsmári Vorsýning Handunnir nytja- og skrautmunir frá smiðjum vetrarins. Vöfflukaffi og smiðjur. 14:00–17:00 Vinnustofur listamanna í Kópavogi Opið hús Skrá um listamenn og vinnustofur á www.kopavogur.is. 14:00 Salurinn Sellótónleikar Ásta María Kjartansdóttir. Burtfararpróf frá Tónlistarskóla Reykjavíkur. 14:00 Bókasafn Kópavogs Heiti potturinn Fólki á aldrinum 12-25 ára er boðið að taka þátt í að mála veggmynd undir handleiðslu fagmanns. 14:00 Hálsatorg - Krakkatorg Gosi, kötturinn og refurinn skemmta Börnin skapa sín myndverk og taka þátt í útilistarsýningu á Kópavogsdögum. Myndlistarsmiðjan opin til 9. maí. Hoppukastalar og leiktæki. 14:00 Náttúrufræðistofa Kópavogs AÐLÖGUN „Fiskurinn hefur fögur hljóð“ Opnun á sýningu Olgu Bergmann og Önnu Hallin. Sýningin stendur til 31. júlí. 15:00 Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn SETNING KÓPAVOGSDAGA 20 ára afmæli Myndlistarskóla Kópavogs Opnun sýningar á myndverkum nemenda skólans. Sýningin stendur til 10. maí. 15:30 Túnið við Listasafnið Óperusöngur og ljóðalestur Óperukórinn ásamt einsöngvurum syngja þar sem fyrirhugað er að reisa óperuhús. Ritlistarhópurinn les úr eigin verkum og afhendir gestum lukkuljóð. 16:30 Ungmennahús UNGMENNAHÚS OPNAÐ Ungmennahús opnað við Hábraut 2. Húsið var gjöf Kópavogsbæjar til ungs fólks á 50 ára afmæli bæjarins. 17:00 Salurinn Fiðlutónleikar Joaquin Páll Palomares. Diplómapróf frá Listaháskóla Íslands. 20:00 & 22:00 Salurinn Hvers virði er ég? Gamanleikur um fjármálin á Íslandi í dag. Miðaverð 2000 kr. Dagskráin í dag 3. maí Á alla viðburði Kópavogsdaga er ókeypis nema annað sé tekið fram. Nánari dagskrá á www.kopavogur.is eða í síma 570 1500. Allir Kópavogsbúar og aðrir gestir hjartanlega velkomnir!

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.