Fréttablaðið - 04.05.2008, Side 2
2 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
Ertu Flensborgari?
Flensborgarhátíð verður laugardaginn 24. maí í Hamarssal.
Allir útskrifaðir Flensborgarar, stúdentar, gagnfræðingar og
aðrir bæjarbúar sem tengjast skólanum eru hvattir til að mæta
og skemmta sér saman.
Húsið opnað kl. 19:00 þar sem boðið er upp á fordrykk.
Matur, skemmtiatriði og ball með Gömlu brýnunum.
Miðaverð er kr. 5.000.
Miðaverð á ball eftir kl. 22:00 er kr. 2.000.
Miðapantanir eru í síma 5650400
eða á netfangið fl ensborg@fl ensborg.is
fram til 15. maí.
Útskriftarárgangar, takið ykkur saman
og fjölmennið á hátíðina.
Sérstakt Eurovision herbergi
verður á staðnum.
Skemmtinefndin.
LÖGREGLUMÁL Nýtt hús Ferðafélags
Íslands skemmdist þegar jeppa var
velt á það fyrir þremur vikum.
Ökumaðurinn flúði en á nú von á
kæru. Hann mun vera starfsmaður
ferðaskrifstofu og er sagður hafa
verið drukkinn.
„Það sem er sérlega alvarlegt í
þessu máli er að þetta eru starfs-
menn ferðaskrifstofu sem voru
búnir að skila farþegum í skálann
og voru svo að keyra fullir,“ segir
Páll Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Ferðafélags Íslands.
Að sögn Páls var ökumaðurinn og
félagar hans á stórum fjallajeppa.
„Þeir veltu jeppanum ofan í snjó-
skál sem var umhverfis salernis-
hús Ferðafélagsins, skemmdu jepp-
ann og brutu gafl og veggi hússins
þannig að það var stórlaskað.“
Jeppamennirnir fengu aðstoð við
að draga jeppann upp. „Síðan höfðu
þeir sig á brott og við höfum ekkert
meira heyrt frá þeim. Þarna voru
hins vegar vitni og við ætlum að
kæra til lögreglunnar til að sækja
bætur,“ segir Páll sem kveður þenn-
an atburð vera lið í öfugþróun sem
orðið hafi að undanförnu.
„Fyrir nokkrum árum var öllum
skálum á hálendinu lokað vegna
drykkju en síðan tóku menn sig
saman og sneru þessari þróun við.
En nú er að koma inn hópur manna
sem hagar sér illa og við höfum
orðið varir við aukna drykkju
jeppamanna. Það er ekkert að því
að menn komi í skála og grilli og fái
sér kannski bjór og rauðvín. En
þetta er farið úr böndunum þegar
menn eru farnir að keyra fullir. Við
ætlum að taka mjög hart á því og
gera lögreglu viðvart í hvert skipti
sem við verðum varir við það.“
Páll segist ekki vilja gefa upp frá
hvaða ferðaskrifstofu ökumaður
jeppans var. „Ég vil ekki segja það
að svo stöddu en vísa í því sam-
bandi á lögregluna sem nú þarf að
rannsaka málið,“ segir hann.
Sveinn K. Rúnarsson, yfirlög-
regluþjónn á Hvolsvelli, tekur
undir að drykkja ökumanna á
hálendinu hafi aukist. Embættið sé
einmitt að ganga frá nýrri áætlun
um eftirlit á þeim slóðum sem sinnt
verði bæði á landi og úr lofti í sam-
starfi við Landhelgisgæslu Íslands.
Hann fagnar því að Ferðafélags-
menn tilkynni um ferðir drukkinna.
Oftast heyri lögregla ekki af þeim
málum fyrir en eftir á. „Það er
skylda hvers borgara að tilkynna
um ölvunarakstur. Við erum að fá
fleiri menn og höfum ýmis úrræði
til að bregðast við þótt það sé til
fjalla.“ gar@frettabladid.is
Kæra leiðsögumenn
sem óku á fjallakofa
Ferðafélag Íslands kærir starfsmenn ferðaskrifstofu sem veltu jeppa á salernis-
byggingu í Landmannalaugum og stungu af. Framkvæmdastjóri félagsins vill
að tekið sé hart á vaxandi ölvunarakstri á hálendinu. Lögregla boðar aðgerðir.
HUGAÐ AÐ SKEMMDUM Ferðafélagsmenn skoða ummerkin eftir jeppann.
MYND/FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
SKEMMDIR Í LANDMANNALAUGUM
Ferðafélag Íslands vill bætur vegna tjóns
á salernisbyggingu í Landmannalaug-
um sem starfsmaður ferðaskrifstofu
skemmdi með því að velta fjallajeppa á
hana. MYND/FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
PORTÚGAL, AP Minningarathafnir
fóru fram í kirkjum í Portúgal
og á Englandi í gær í tilefni af
því að eitt ár var þá liðið frá því
að Madeleine McCann, fjögurra
ára breskri stúlku, var rænt af
hótelherbergi í strandbænum
Praia de Luz í Portúgal þar sem
hún var í fríi með fjölskyldu
sinni. Alipio Ribeiro, lögreglu-
maður sem fer fyrir rannsókn
málsins, sagði að enn væri verið
að afla sönnunargagna og fylgja
eftir vísbendingum og því stæði
ekki til að leggja rannsóknina
niður að svo stöddu máli. Hann
tók þó einnig fram að handtaka
væri ekki enn í sjónmáli. -vþ
Ár liðið frá mannráni:
Málið er enn
í rannsókn
MADELEINE MCCANN Í gær var ár liðið
frá því henni var rænt af hótelherbergi
í Portúgal.
Þefaði uppi innvortis efni
Karlmaður um þrítugt var handtekinn
á Akureyrarflugvelli um miðjan dag
á föstudag eftir að fíkniefnahundur
lögreglunnar sýndi honum óeðlilega
mikinn áhuga. Í ljós kom að hann var
með tuttugu grömm af hvítum efnum
innvortis. Honum var sleppt síðar um
kvöldið.
LÖGREGLUFRÉTTIR
SLYS Engan sakaði þegar lítil
þyrla af gerðinni Schweizer-Hug-
hes 300C nauðlenti skammt norð-
an við Kleifarvatn í hádeginu í
gær. Tveir menn voru í þyrlunni.
Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu
en menn frá Rannsóknarnefnd
flugslysa könnuðu slysstað í
gær.
Þyrlan var í hefðbundnu útsýn-
isflugi þegar hún nauðlenti, að
sögn Sindra Steingrímssonar,
flugrekstrarstjóra hjá Þyrluþjón-
ustunni sem á þyrluna. Sindri
segir þyrluna líklega ónýta.
Lögregla sendi bíl af stað eftir
að tilkynning barst um slysið en
hann þurfti frá að hverfa þar sem
ekki var ökufært á staðinn, og því
þurfti að senda þyrlu Landhelgis-
gæslunnar eftir mönnunum. Þeir
voru báðir fluttir á slysadeild til
skoðunar en reyndust ómeiddir.
„Það er ekki skráma á mönnun-
um þannig að þetta gat ekki farið
betur,“ segir Sindri. „Kúpan
verndaði þá einmitt eins hún átti
að gera.“
Sindri segir manninn sem flaug
þyrlunni vera tiltölulega vanan.
„Hann hefur verið hjá okkur í um
ár og verður vonandi áfram þrátt
fyrir þetta.“ Tækjakostur fyrir-
tækisins mun vera vel tryggður
en þó hefur líklega orðið eitthvert
tjón, að sögn Sindra. - sh
Þyrla með tvo menn innanborðs nauðlenti skammt norður af Kleifarvatni:
Engan sakaði í nauðlendingu
Á VETTVANGI Ekki liggur fyrir hvað olli
slysinu en Rannsóknarnefnd flugslysa
kannaði slysstað í gær.
LÖGREGLUMÁL Lögregla lét í fyrri-
nótt slökkva á hljóðskúlptúr list-
nemans Þórarins Inga Jónssonar,
sem vakið hafði íbúa í nágrenni
Listaháskóla
Íslands (LHÍ) af
værum svefni um
fimmleytið. Leikin
var upptaka af
bænakalli múslima
og barst lögreglu
fjöldi kvartana
vegna þess.
Þórarinn segir
upptökuna hafa
verið spilaða fyrir
mistök vegna bilunar í hugbúnaðin-
um sem stjórnar henni. Hún hafi
ekki átt að fara í gang fyrr en
klukkan átta um morguninn. Hann
hugðist lagfæra verkið og halda því
lifandi út vikuna en stjórn LHÍ
ákvað hins vegar í gær að útsend-
ingunni skyldi hætt.
Þórarinn er gestanemandi við
LHÍ á þessari önn, en honum var
gert að segja sig frá námi við lista-
háskóla í Toronto eftir að hafa vald-
ið miklu fjaðrafoki þegar hann kom
fyrir gervisprengju á listasafni í
borginni í nóvember síðastliðnum.
Hjálmar H. Ragnarsson, rektor
LHÍ, staðfestir að útsendingu hljóð-
verksins hafi verið hætt, enda
kappkosti skólinn að halda friðinn
við íbúa hverfisins. - sh
Útsendingu hljóðverks listnema hætt eftir kvartanir frá nágrönnum:
Vöknuðu við bænir múslima
ÞETTA ER EKKI SPRENGJA Þórarinn með
gervisprengjuna sem hann skildi eftir á
listasafni í Toronto.HJÁLMAR H.
RAGNARSSON
Verk Þórarins á sér afar nákvæma
samsvörun í verki sem sett var upp
í Listasafni Akureyrar árið 2002.
Þá var bænakall múslima spilað af
þaki safnsins fimm sinnum á dag
í nær tvo mánuði svo ómaði um
allan bæ. Verkið var síðan flutt til
Reykjavíkur og vakti mikla athygli.
Þórarinn segist ekki hafa verið
kunnugt um það verk þegar hann
vann sitt eigið. Hjálmar H. Ragnars-
son rektor segist ekki líta svo á að
um stuld af nokkru tagi hafi verið
að ræða. Sams konar eða sama
hugmyndin kvikni oft hjá fleirum
en einum og að nemar verði að fá
að prófa sig áfram.
EKKI NÝ HUGMYND
UMHVERFISMÁL Unnt er að draga
verulega úr eldsneytisnotkun
með réttu aksturslagi ef marka
má niðurstöður mælinga í árlegri
sparaksturskeppni Félags
íslenskra bifreiðaeigenda og
Atlantsolíu sem fram fór í gær.
Ekin var 143 kílómetra
hringleið frá Reykjavík, um
Mosfellsheiði, Selfoss og
Þrengsli. Alls tóku 65 bílar þátt í
fimm flokkum og ók sigurvegar-
inn, Sigfús Harðarson frá Heklu
á VW Polo TDI, hringinn á 3,19
lítrum á hundraði. Í sleggju-
flokki keppninnar fóru ofur-
sportbílarnir Mustang GT og
Ford GT hringinn á annars vegar
7,41 og hins vegar 8,37 lítrum á
hundraði sem er svipuð eldsneyt-
isnotkun og hjá mörgum
algengum fólksbílum. - ovd
Sparaksturskeppni:
Rétt aksturslag
sparar eldsneyti
FORD GT Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, ræsir Ford GT sem fór
143 kílómetra hringleið á 8,37 lítrum á
hundraði.
JERÚSALEM, AP Condoleezza Rice,
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, sagðist í gær ætla að reyna
að fá Ísraela til að rífa niður
aðskilnaðarmúrinn umdeilda sem
þeir reistu til þess að verja sig
árásum palestínskra hryðju-
verkamanna.
Rice er í opinberri heimsókn í
Ísrael og snæddi kvöldverð í gær
með forsætisráðherranum Ehud
Olmert. Heimsóknin er liður í
áætlun ríkisstjórnar George W.
Bush um að knýja fram árangur í
friðarumleitunum á milli Ísraela
og Palestínumanna áður en að ný
ríkisstjórn tekur völdin í
Bandaríkjunum á næsta ári. - vþ
Condoleezza Rice í Ísrael:
Vill aðskilnað-
armúrinn burt
Stefán, er búið að skjóta mikið
á þig eftir að þú sóttir um?
„Nei, enda verð ég skotheldur emb-
ættismaður.“
Friðarsinninn Stefán Pálsson hefur sótt
um starf forstjóra nýrrar Varnarmálastofn-
unar.
Ekið á stúlku á Selfossi
Ekið var á unga stúlku við Lágengi á
Selfossi um klukkan 19 í gær. Fylgdi
ökumaðurinn stúlkunni heim og
talaði við foreldrana. Stúlkan var flutt
á slysadeild Landspítalans. Lögreglan
óskar eftir að ökumaðurinn og vitni
gefi sig fram eða hringi í: 480 1010.
LÖGREGLUFRÉTTIR
Hraðakstur við Borgarnes
Lögreglan í Borgarnesi tók níu öku-
menn fyrir of hraðan akstur í gær. Sá
sem hraðast ók var á 134 kílómetra
hraða þar sem hámarkshraði er 90.
SPURNING DAGSINS