Fréttablaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 34
ATVINNA
SUNNUDAGUR 4. maí 2008 180
H
u
g
sa
s
ér
!
Skólastjóri Gerðaskóla í Garði
Staða skólastjóra Gerðaskóla í Garði er laus til umsóknar. Nemendur Gerðaskóla
eru 245 í 1. – 10. bekk. Gott samstarf er við leikskóla og framhaldsskóla og
aðgangur greiður að góðri sérfræðiþjónustu.
Í skólastefnu Sveitarfélagsins Garðs eru eftirfarandi áherslur lagðar í skóla- og
æskulýðsstarfi bæjarins:
• Öll samskipti einkennist af gagnkvæmri virðingu.
• Fjölbreyttir hæfileikar barna séu viðurkenndir og sjálfsmynd þeirra styrkt.
• Aðstæður til náms séu góðar og hvetjandi.
• Samvinna heimila, skóla og æskulýðsstarfsemi sé góð og
samskiptaleiðir greiðar.
• Tengsl við umhverfi, fyrirtæki og stofnanir bæjarins séu virk.
• Gleði, metnaður og umhyggja einkenni allt starf með börnum og
ungmennum.
Leitað er að kraftmikilum og drífandi stjórnanda sem er tilbúinn til að starfa að
öflugri skólaþróun.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Kennarapróf og kennslureynsla.
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskileg og reynsla af skólastjórnun.
• Frumkvæði, samstarfsvilji og góðir skipulagshæfileikar.
• Hæfni í mannlegum samskiptum.
• Hafi áhuga á að leiða þróunarstarf í átt að einstaklingsmiðuðu námi.
Umsókn skal fylgja yfirlit yfir menntun og störf umsækjanda og hver þau
verkefni sem varpað geta ljósi á færni til að sinna skólastjórastarfi. Við ráðningu
í starfið verður tekið tillit til menntunar, kennsluferils, stjórnunarreynslu og
umsagna um starfshæfni umsækjanda. Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst 2008.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi launanefndar sveitarfélaga og KÍ.
Umsóknarfrestur er til 9. maí og skal skila umsókn á bæjarskrifstofu Sveitar-
félagsins Garðs að Sunnubraut 4, 250 Garður.
Nánari upplýsingar veitir Oddný Harðardóttir bæjarstjóri
í síma 4227150, netfang oddny@svgardur.is.
þar sem
ferskir
vindar
blása H
en
na
r h
át
ig
n
08
-0
06
2
www.svgardur.is