Fréttablaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 88
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er sunnudagurinn 4. mars,
125. dagur ársins.
4.49 13.24 21.59
4.20 13.09 22.01
Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100
Evrópa á þínum vegum
Flug
+ bíll
Flogið til Frankfurt Hahn
Wurzburg
Heimabær Konráðs Röntgens. Hér er tilvalið
að dreypa á Franken-vínunum.
Rothenburg ob der Tauber
Borgin þar sem Þyrnirós svaf í heila öld.
Augsburg
Borg Ágústínusar keisara, einnig merkar
minjar um Hansakaupmenn.
Neuschwanstein
Einn þekktasti kastali heims.
Füssen
Útsýni yfir þýsku Alpana.
Kempten
Forn rómversk borg, einstakt verðlag.
Lindau
Yndislegur bær við Bodenvatn.
Bern
Höfuðborg Sviss, frábær dýragarður og
afþreying fyrir alla fjölskylduna.
Flogið heim frá Basel
Flogið til Frankfurt Hahn
Strasbourg
Dómkirkjan, sigling á Ill og Gutenberg-torgið.
Ribauville
Vínsmökkun og huggulegheit.
Riquewihr
Dásamlegur bær í miðaldastíl, vínstofur á
hverju horni.
Kaysersberg
Fæðingarhús Albert Schweizer.
Colmar
Feneyjar Frakklands og heimabær Frédéric
Bartholdi, hönnuðar Frelsisstyttunnar í New
York.
Freiburg
Ein elsta borg Þýskalands og tilvalið að skella
sér í Europark-skemmtigarðinn sem er skammt
frá.
Flogið heim frá Basel
Flogið til Parísar
Rouen
Jóhanna af Örk var brennd á báli í hinni frægu
Rúðuborg.
Dinkirk og Bretagne-skaginn
Omaha-ströndin þar sem hin sögufræga innrás
Bandamanna átti sér stað í seinni heims-
styrjöldinni.
Paimpol
Skemmtilegur lítill bær, falleg höfn og vinsæl
strönd.
St. Malou
Algjör paradís, stór og heillandi höfn setur
mikinn svip á bæinn.
Belgía
Brugge, gamli miðbærinn er á heimsminjaskrá
UNESCO.
Brussel
Saga, söfn, góður matur og auðvitað ESB.
Flogið heim frá Eindhoven
*Flug með sköttum og öðrum greiðslum. Bílaleigubíll frá Hertz, m.v. 4 í bíl í 7 daga.
Ótakmarkaður akstur og kaskó. Peugeot 307, Ford Focus eða sambærilegur bíll.
Express ferðir bjóða flug og bíl frá Hertz á frábærum tilboðskjörum, verð frá 39.900 kr.*
Um er ræða flug til Frankfurt Hahn, Eindhoven, Basel og Parísar og í boði að fljúga til eins
þessara áfangastaða og heim frá öðrum. Ferðatímabilið er 15. maí til 15. júní.
Evrópa hefur upp á margt að bjóða, við mælum sérstaklega með þessum leiðum:
Rómantíska leiðin Víngatan fræga Frakkland fyrir alla fjölskylduna
Miðað við að það sé hlutverk ráðherra að vinna sér inn
virðingu hjá þjóð sinni fyrir vinnu-
semi, hugmyndaauðgi, mann-
gæsku, verklagni, heiðarleika og
fleiri kosti er það fræðandi hjá
fyrirtæki eins og Capacent að
birta vorprófseinkunnir úr Skóla
lífsins fyrir þá sem nú stjórna
landinu, um sama leyti og próf-
lestrarhrina brestur á hjá skóla-
fólki. Capacent notast við gamla
góða einkunnaskalann frá 0-10 og
gefur einkunn fyrir þá ánægju
sem ríkir með störf ráðherranna:
NEÐSTUR í bekknum er Árni
Mathiesen fjármálaráðherra sem
fær 0,8 í einkunn. Aðeins 8% kjós-
enda eru ánægð með störf hans og
segir það sína sögu um námsgáfur
og vinnuaðferðir. Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra er litlu betur
staddur en fjármálaráðherrann og
fær 1,5 í einkunn. Forsætisráð-
herrann, Geir H. Haarde, er líka
langt frá því að standast prófið
með 3,5 í einkunn. Þorgerður Katr-
ín Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra er næst því að ná prófi, en
hún fær 4,6 í einkunn og vantar
bara 0,4 til að skríða í lágmarks-
einkunn.
HIN iðjusama Jóhanna Sigurðar-
dóttir er ljósið í bekknum og fær
6,0 í einkunn. Hinn ungi viðskipta-
ráðherra Björgvin G. Sigurðsson
slefar í 4.0; hann fær 0,5 meira en
forsætisráðherrann en vantar
samt 1 heilan upp á að ná lág-
markseinkunn. Kristján Möller er
í hópi verstu tossana með 2,2, fær
þó 3 kommum meira en dr. Össur
Skarphéðinsson sem rekur lest
þeirra Samfylkingarnema sem
komast á blað með 1,8 í einkunn.
ÞAÐ skal tekið fram að Ríkisút-
varpið birti ekki einkunnir allra
ráðherranna og hlífði aðstandend-
um þeirra sem engum tökum hafa
náð á störfum sínum við því að
birta einkunnir þeirra, þar á meðal
eru: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra, og eins og
búast mátti við Einar K. Guðfinns-
son sjávarútvegsráðherra og ein-
hver Þórunn Sveinbjarnardóttir
sem mun vera umhverfisráðherra.
Guðlaugur Þór Þórðarson heil-
brigðisráðherra var líka í þessum
einkunnalausa hópi sem virðist
þurfa á sérkennslu að halda.
EF þetta væru börnin manns væri
ástæða til að hafa verulegar
áhyggjur af framtíðinni. En þetta
er bara starfsliðið sem við höfum
valið til að stjórna landinu okkar í
augnablikinu.
Einkunnir í
tossabekk