Fréttablaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 32
ATVINNA SUNNUDAGUR 4. maí 2008 168 Upplýsingar um starfið og umsóknareyðublöð eru á skrifstofu ÍSTAKS, Engjateigi 7, 105 Reykjavík og í síma 530 2700 milli 8:15 og 17:00. Einnig er hægt er að senda inn umsókn á heimasíðu okkar www.istak.is. ÍSTAK er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa um 650 manns, víðsvegar um landið sem og erlendis. ÍSTAK er alhliða verktakafyrirtæki sem var stofnað árið 1970 og hefur annast ýmis verkefni, svo sem virkjanir, stór- iðjuver, hafnargerð, vega- og brúagerð auk flugvalla. Ennfremur húsbyggingar fyrir opinberar stofnanir, sveitarfélög, fyrirtæki og einstaklinga. VERKFRÆÐINGAR / TÆKNIFRÆÐINGAR ÍSTAK óskar eftir að ráða verk- og / eða tæknifræðinga til starfa við fram- kvæmdastjórnun á vinnusvæðum. MÆLINGAMENN Vegna nýrra og krefjandi verkefna óskar ÍSTAK eftir að ráða starfsfólk á vinnusvæði fyrirtækisins í mælingar og úrvinnslu mælingagagna. Við leggjum áherslu á frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð. Æskilegt er að umsækjendur hafi einhverja starfsreynslu og er um framtíðarstörf að ræða fyrir rétta aðila. Framkvæmdagleði í fyrirrúmi Umsóknarfrestur er til og með 14. maí 2008. Meiraprófsbifreiðastjóri -Sumarafl eysingar Sláturfélag Suðurlands óskar eftir að ráða bifreiðastjóra í sumarafl eysingar við útkeyrslu í verslanir á höfuð- borgarsvæðinu. Við leitum að stundvísum og duglegum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt. Umsóknir berist SS, Fosshálsi 1,110 Reykavík. Einnig er hægt að sækja um starfi ð á heimasíðu fyrirtækisins www.ss.is Nánari upplýsingar gefur Bjarni Stefánsson, starfsmannastjóri í síma 575-6000 Sláturfélag Suðurlands er leiðandi matvælafyrirtæki með starfsstöðvar í Reykjavík, á Selfossi og á Hvolsvelli. Hjá félaginu starfa um 330 starfsmenn. Upplýsingar um SS er að fi nna á heimasíðu fyrirtækisins Laun samkvæmt gildandi samningi viðkomandi stéttarfélags og fjár- málaráðherra. Umsóknareyðublöð fást í upplýsingum Fossvogi og Hringbraut, skrifstofu mannauðsmála Eiríksgötu 5, á heimasíðu www. landspitali.is. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar í störf á Landspítala. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðn- ingu hefur verið tekin. Landspítali er reyklaus vinnustaður. Hjúkrunardeildarstjóri Staða hjúkrunardeildarstjóra á lungnadeild A-6 á lyfl ækningasviði I er laus til umsóknar. Um er að ræða afl eysingu til eins árs með möguleika á framlengingu. Á lungnadeild er sjúklingum með bráða og langvinna lungnasjúkdóma veitt þjónusta svo og sjúklingum sem koma til rannsókna vegna svefnvandamála. Hjúkrunin á deildinni er í örum vexti og mikilli þróun. Hjúkrunardeildarstjóri er yfi rmaður hjúkrunar á deildinni og stjórnar daglegum rekstri hennar. Hann ber ábyrgð á uppbyggingu og þróun hjúkrunar, starfsmannahaldi, rekstri og áætlanagerð. Hann skal stuðla að þekkingarþróun í hjúkrun, m.a. með því að hvetja til rannsókna og nýta rannsóknarniðurstöður. Umsækjendur skulu hafa a.m.k. fi mm ára starfsreynslu í hjúkrun og reynslu í starfsmanna- stjórnun. Framhaldsnám í hjúkrun er æskilegt. Leitað er eftir framsæknum og dugmiklum leiðtoga. Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá. Jafnframt skal leggja fram afrit af prófskírteinum og hjúkrunarleyfi . Einnig afrit af ritgerðum, þróunarverkefnum og vísindastörf- um sem umsækjandi hefur unnið, tekið þátt í að vinna eða birt. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögn- um, umsögn stöðunefndar hjúkrunarráðs LSH og viðtölum við umsækjendur. Staðan veitist frá 1. ágúst 2008 eða eftir samkomulagi. Umsóknir berist fyrir 20. maí 2008 á skrifstofu framkvæmdastjóra hjúkrunar, Eiríksgötu 5, netfang annastef@landspitali.is. Upplýsingar veitir Herdís Herbertsdóttir, sviðsstjóri hjúkrunar í síma 543 6430, netfang herdish@landspitali.is. Umsækjendum er bent á leiðbeiningar stöðunefndar hjúkrunarráðs LSH á vef spítalans varðandi frágang umsókna um stjórnunarstöður í hjúkrun. Menntasvið Laus er staða aðstoðarskólastjóra Hólabrekku- skóla. Skólinn er heildstæður grunnskóli með um 550 nemendur. Leiðarljós Hólabrekkuskóla eru ábyrgð, samvinna og áhrif. Í skólanum eru nokkur verkefni í gangi og undirbún- ingur meðal skólastarfsmanna að taka upp heilstætt kerfi sem byggir á góðum hugmyndafræðilegum grunni næsta skólaár. Reykjavíkurborg leggur áherslu á þróun skóla í átt til einstakl- ingsmiðaðs náms, samvinnu nemenda og skóla án aðgrein- ingar. Auk þess er lögð áhersla á að styrkja tengsl skóla við grenndarsamfélagið. Leitað er að umsækjendum sem hafa: • Kennaramenntun • Stjórnunarhæfi leika • Metnað í starfi og áhuga á skólaþróun • Lipurð og færni í mannlegum samskiptum • Reynslu af kennslu Staðan er laus frá og með 1. ágúst 2008. Umsóknarfrestur er til 19. maí nk. Umsóknum fylgi yfi rlit yfi r nám og störf auk annarra gagna sem málið varðar. Sótt skal um á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf eða senda umsókn til Hólabrekkuskóla, Suðurhólum 10, 111Reykjavík. Upplýsingar um starfi ð gefa Hólmfríður G. Guðjónsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla í síma 5574466 / 6648235 net- fang holmfridurg@holabrekkuskoli.is og Valgerður Janusdóttir starfsmannastjóri Menntasviðs Reykjavíkurborgar í síma 411 7000, valgerdur.janusdottir@reykjavik.is. Laun eru samkvæmt kjarasamningi LN og KÍ. Aðstoðarskólastjóri Hólabrekkuskóla Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í. Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heima síðu Reykjavíkurborgar: www. reykja vik.is/storf Hjá síma veri Reykja vík ur borg ar, 4 11 11 11, færð þú all ar upp lýs ing- ar um þjón ustu og starf semi borg ar inn ar og sam band við þá starfs menn sem þú þarft að ná í. Menntasvið Vestast í Vesturbænum … Laus störf í Grandaskóla skólaárið 2008 - 2009 Umsjónarkennarar í 5. -6. bekk Tveir umsjónarkennarar í teymiskennslu á yngra stigi - kjörið tækifæri fyrir fólk sem vill vinna saman í skemmtilegu starfsumhverfi . Þroskaþjálfi , vinna með einstökum nemendum í samvinnu við kennara. Skólaliðar, meðal verkefna aðstoð í eldhúsi, ræstingar, baðvarsla og umsjón með nemendum. Stuðningsfulltrúar, meginverkefni er vinna með nemendum undir verkstjórn kennara. Karlar jafnt sem konur eru hvött til að sækja um störf við skólann. Nánari upplýsingar gefa Börkur skólastjóri borkur@grandaskoli.is og Inga aðstoðarskólastjóri inga@grandaskoli.is , sími 411-7120 Grandaskóli stendur við sjávarsíðuna í vesturbæ Reykjavíkur. Nemendur eru um 290 talsins í 1. - 7. bekk og við skólann starfa um 50 starfsmenn. Mikill stöðugleiki hefur verið í starfsmannahaldi skólans og í hópnum ríkir fagmennska, metnaður og góður andi. Skólinn er vel búinn tækjum og hafa allir kennarar skólans fartölvu til afnota. Sterk hefð er fyrir list- og verkgreinakennslu í skólanum og hlaut skólinn Hvatningarverðlaun Menntaráðs Reykjavíkur vorið 2007 fyrir tónlistaruppeldi. Áhersla er lögð á skapandi skólastarf og sveigjanlega starfshætti m.a. til að koma til móts við einstaklingsmun nemenda. Í yngri deild skólans, 1. - 4. bekk, er áhersla á teymiskennslu. Tveir umsjón- arkennarar vinna með hvern árgang, ýmist sem heild eða í mismunandi hópum. Í eldri deild skólans, 5. - 7. bekk, er hefðbundin bekkjarskipting en áhersla lögð á samvinnu árganga og sveigjanlega starfshætti. Nánari upplýsingar um skólastarfi ð er að fi nna á heimasíðu skólans www.grandaskoli.is Auglýsingasími – Mest lesið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.