Fréttablaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 20
4 sport
Markahæsti leikmaður
efstu deildar karla frá
upphafi , INGI BJÖRN
ALBERTSSON, er kominn
með báða syni sína í sitt
félag, Val. Tengdasonur-
inn GUÐMUNDUR BENE-
DIKTSSON kom á Hlíðar-
enda fyrir þremur árum og
í vetur gekk yngsti sonur
hans, ALBERT BRYNJAR,
til liðs við Val frá Fylki þar
sem hann hefur spilað upp
alla yngri fl okka. Ingi Björn
hefur trú á Valsliðinu og
ætlar að fylgjast spenntur
með því í sumar.
Eftir Óskar Ó. Jónsson
I ngi Björn Albertsson er markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi og sá eini
sem hefur skorað meira en 100
mörk fyrir eitt félag. Ingi Björn
skoraði 109 af 126 mörkum sínum
fyrir Val en hann varð Íslands-
meistari með liðinu 1976, 1978 og
1987.
Ingi Björn var eins aðrir Vals-
menn kátur með að Íslandsmeist-
aratitillinn kom á Hlíðarenda síð-
asta sumar eftir tuttugu ára
fjarveru. „Biðin var orðin ansi
löng eftir titlinum því ég var í síð-
asta liðinu sem vann og það segir
nú margt um hvað þetta var orð-
inn langur tími. Það var löngu
orðið tímabært að Valur kæmist á
sigurbraut. Þeir fengu til sín frá-
bæran þjálfara sem er að gera
gríðarlega góða hluti, og við
höfum sennilega ekki séð nema
brot af því sem hann á eftir að
gera fyrir Val,“ segir Ingi Björn
sem lítur bjartsýnn til sumarsins.
HEFUR STERKAR TAUGAR
TIL FH
Ingi Björn skoraði mörkin sín 126
fyrir tvö félög, en hann lék einnig
með FH í fimm tímabil (1980-81
og 1984-86) sem spilandi þjálfari.
Það er einmitt FH sem hefur átt í
hörðustu baráttunni við Val und-
anfarin sumur. „Ég hef gríðarlega
sterkar taugar til FH og hef alla
tíð haft, alveg síðan ég var pjakk-
ur. Mér þykir ákaflega vænt um
FH sem félag og vil því allt gott
en hjartað er engu að síður hjá
Val. Þar var ég allan minn feril og
er Valsmaður út í gegn,“ segir
Ingi Björn.
Auk þess að vera markahæsti
leikmaður félagsins hafa aðeins
átta leikmenn leikið fleiri leiki
fyrir Hlíðarendaliðið. Ingi Björn
vill samt ekki dvelja við forna
frægð.
„Ég sit ekki heima á kvöldin og
hugsa til baka. Ég er miklu spennt-
ari fyrir því að sjá mínu liði ganga
vel og þá að syninum og tengda-
syninum gangi líka vel,“ segir
Ingi Björn og í fyrsta sinn spila
þeir Albert og Guðmundur í sama
liði.
EKKI GETAÐ VALIÐ BETRA
FÉLAG
Albert Ingason er alinn upp í Fylki
þar sem hann hefur farið mikinn í
markaskorun upp alla yngri
flokka, en hann hefur verið að
brjótast inn í meistaraflokksliðið
síðustu ár.
„Ég er að sjálfsögðu ánægður
með að sjá Albert koma í Val.
Hann er búinn að vera allan sinn
feril í Fylki og hefur staðið sig vel
þar. Hann hefur fundið sig vel þar
en núna var bara kominn tími á að
breyta til. Mér fannst hann ekki
geta valið betra félag til þess að
fara í. Ég er mjög bjartsýnn fyrir
hans hönd; hann er allur að styrkj-
ast og koma til eftir meiðsli. Hann
á eftir að gera góða hluti í Val. Það
er betra að hafa samkeppnina og
hún hvetur menn til dáða. Það eru
alvöru leikmenn sem standast
samkeppnina,“ segir Ingi Björn
um Albert og bætir við: „Hann er
markahæsti leikmaður yngri
flokka í sögu Fylkis og hann veit
alveg hvernig á að skora mörk. Ég
er alveg klár á því að hann eigi
eftir að skora þau ófá fyrir Val.”
KR-INGAR HAFA NAGAÐ SIG
UPP AÐ OLNBOGUM
Guðmundur Benediktsson á að
baki frábæran feril með Þór, KR
og Val og gekk í endurnýjun líf-
daga þegar hann gekk til liðs við
Valsmenn fyrir sumarið 2005, en
flestir voru þá búnir að afskrifa
þennan snjalla leikmann eftir
meiðslasumur á undan. Guðmund-
ur hefur blómstrað á Hlíðarenda
þar sem hann hefur spilað 53 af 54
mögulegum leikjum síðustu þrjú
sumur og alls lagt upp 38 mörk í
þeim. Guðmundur var í leikbanni
í þessum eina leik sem hann missti
af.
„Ég er gríðarlega ánægður með
að Guðmundur sé í Val og hann
hefur líka gert mikla lukku hjá
Val, bæði sem leikstjórnandi og
svo er hann líka móralskt mjög
öflugur. Gummi er frábær leik-
maður og ef hann hefði ekki lent í
meiðslum á unga aldri þá væri
hann ekki að spila hér heldur
væntanlega að klára glæsilegan
feril einhvers staðar úti í heimi,“
segir Ingi Björn og bætir við:
„Ég held að KR-ingar séu búnir
að naga sig upp að olnbogum því
þeir sjá svo eftir því að hafa látið
hann fara. Hann hefur skilað frá-
bæru starfi hjá Val og er límið í
liðinu. Hann er tengiliður af guðs
náð og skapar og býr til mikið
fyrir liðið,“ segir Ingi Björn sem
vonast eftir góðu samstarfi á milli
sona sinna í liðinu. „Það er enginn
vandi að sjá fyrir stoðsendingar
VONAR AÐ ALBERT SLÁI
EKKI METIÐ SITT
Albert Brynjar Ingason
fylgir í sumar í fótspor
föður síns og afa þegar
hann spilar fyrir fjölskyldu-
félagið í fyrsta sinn. Albert
afi hans og Ingi Björn faðir
hans eru þekkt nöfn í sögu
Vals og það er örugglega
mikil ánægja með það innan
fjölskyldunnar að Albert
skuli kominn í Val. Afi hans
varð fjórum sinnum Íslands-
meistari með Val frá 1942-
45 áður en hann fór utan og
faðir hans vann titilinn
þrisvar sinnum á sínum
tíma.
Albert ákvað að breyta til
og fara til Vals eftir að hafa
verið í meistaraflokki Fylk-
is undanfarin fjögur tíma-
bil. „Þegar ég fékk þetta til-
boð hjá Val upp í hendurnar
varð ég þvílíkt spenntur
enda er þetta stór klúbbur
og sjálfir meistararnir. Ég
hef líka alltaf vitað það að
ég myndi einhvern tímann
spila fyrir Val. Ég sé ekkert eftir því að hafa stokkið
til,“ segir Albert, en óheppnin hefur elt hann á und-
irbúningstímabilinu. „Ég er búinn að vera svolítið
óheppinn upp á síðkastið. Ég tognaði á ökkla og hef
verið lengi að ná því úr mér. Svo úti í Tyrklandi datt
ég illa og meiddist á öxl. Ég er nýbyrjaður að æfa
aftur og er bjartsýnn á framhaldið. Það er skárra að
taka þessi meiðsli út núna í staðinn fyrir í sumar,”
segir Albert í léttum tón.
Albert glímdi einnig við meiðsli á síðasta sumri
en vann sig út úr þeim og endaði á því að skora
grimmt undir lok móts. „Ég var að kljást við erfið-
ari meiðsli framan af síðasta
sumri en svo náði ég mér af
þeim og þá kom þetta í lokin.
Þegar sjálfstraustið fer að
spila inn hjá manni þá getur
maður gert allt,“ segir Albert
sem hræðist ekki harða sam-
keppni. „Ég vissi það áður en
ég skrifaði undir að það yrði
erfitt að komast í Valsliðið en
samkeppnin gerir mann bara
að betri leikmanni.“
Albert hlakkar til samstarfs-
ins við mág sinn Guðmund
Benediktsson. „Ef það er ein-
hver sem getur fóðrað mig á
góðum sendingum þá er það
Gummi. Mér hefur alltaf lang-
að að spilað með honum, enda
búinn að sjá hann vera að
fóðra sína framherja á frá-
bærum sendingum,“ segir
Albert sem er löngu búinn að
taka markamet föður síns af
stefnuskránni.
„Mig minnir að ég hafi verið
svo vitlaus að segja að ég gæti
náð metinu þegar ég var að
spila minn fyrsta leik en ég held að ég muni ekki ná
metinu. Það er kannski möguleiki fyrir einhvern að
fara að slá þetta met fyrst það er búið að fjölga í
deildinni. Ég er frekar langt frá því eins og er,“
segir Albert sem hefur skorað 6 mörk í 36 leikjum.
Á sama aldri var faðir hans búinn að skora 26
mörk í 38 leikjum eða tuttugu mörkum meira. Faðir
hans vill sjá hann fara í atvinnumennsku í framtíð-
inni en Albert ætlar að taka eitt skref í einu. „Ég
ætla að byrja á því að sanna mig almennilega hérna
heima áður en ég fer út. Það er alltaf best,“ segir
Albert.
VISSI ALLTAF AÐ ÉG MYNDI SPILA FYRIR VAL
frá Gumma inn á Albert í sumar,“
segir Ingi Björn.
Markamet hans er öruggt næstu
árin og sem dæmi á Albert enn 120
mörk í það að ná að jafna föður
sinn. En á strákurinn einhvern
möguleika?
„Ég veit ekki hvort einhver nær
þessu en það er náttúrulega búið
að fjölga í deildinni. Menn fá miklu
fleiri leiki til að ná þessu heldur en
áður. Þegar ég byrjaði voru aðeins
átta lið í deildinni. Ég hef sagt það
áður að ég voni að Albert taki ekki
metið, því ég vona að hann fari út
fyrir landsteinana og spili ein-
hvers staðar annars staðar. Ég
vona engu að síður að metið hald-
ist hjá Val,“ segir Ingi Björn, en
eru þeir feðgar eitthvað líkir?
„Það erfitt fyrir mig að segja en
maður heyrir það utan að sér að
ákveðnir taktar séu eins. Vonandi
eru það skárri taktarnir og svo
bætir hann sínu við og þá verður
þetta ennþá betra,“ segir Ingi
Björn að lokum.