Fréttablaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 70
14 sport Tímabil Fylkis í Landsbankadeildinni í fyrra var í meira lagi kaflaskipt. Árbæjarliðið fór ágætlega af stað en þrír tapleikir í fjórum leikjum á miðju tímabili gerðu það að verkum að Fylkir heltist úr lestinni í toppbaráttunni. Góður 2-4 sigur gegn Val í elleftu umferð kom Fylki aftur á réttan kjöl og liðið tapaði aðeins einum leik á lokasprettinum og endaði í fjórða sæti, sem tryggði félaginu jafnframt þátttökurrétt í Inter-Toto keppninni í sumar. Leifur Garðarsson, þjálfari Fylkis, skrifaði í vetur undir nýjan fimm ára samning við Árbæjarliðið og er ágætlega brattur fyrir komandi tímabil. „Tímabilið leggst ágætlega í mig og við setjum okkur að sjálfsögðu þau einföldu markmið að fara í hvern leik með því hugarfari að ná hámarks árangri,“ sagði Leifur sem hefur gert nokkrar breytingar á liði sínu fyrir komandi átök, og þá sér í lagi í framlínunni, enda gekk liðinu fremur illa fyrir framan mark and- stæðinganna í fyrrasumar. „Christian Christiansen ákvað að halda heim til Dan- merkur og reyna fyrir sér þar en það kom okkur hins vegar í opna skjöldu að Albert Ingason skyldi yfirgefa svæðið og fara í Val, hvort sem hann stýrði því eða aðrir. Í staðinn fengum við Jóhann Þórhallsson og Allan Dyring og þeir eru ólíkir leik- menn og gefa okkur ákveðna möguleika. Síðan eigum við einnig aðra framherja eins og Hauk Inga Guðnason, og það er óskandi að hann nái að halda sér frá meiðslum. Þar að auki eru einnig ungir og efnilegir leikmenn að koma upp hjá félag- inu,“ sagði Leifur sem þarf að hafa minni áhyggjur af varnarleik liðsins ef miða má við síðasta sumar. Fylkismenn voru þá með besta varnarlið deildarinnar og fengu aðeins á sig átján mörk í Lands- bankadeildinni eða eitt mark að meðaltali í leik. „Varnarleikur liðsins var til fyrir- myndar í fyrra. Á undirbúningstímabil- inu fá menn oft á sig fleiri mörk en þegar út í deildakeppnina er komið, því þar er spilað á mörgum mönnum og verið að prófa hluti. En ég vona að ég verði jafn sáttur við varnarleikinn á þessu tímabili og í fyrra, sagði Leifur sem hefur ekki áhyggjur af því að þátttaka í Inter-Toto keppninni eigi eftir að hafa neikvæð áhrif á gengið í Landsbankadeildinni. „Þátttaka í Evrópukeppni er alltaf ákveðin gulrót og viðurkenning á gott starf keppnistíma- bilið á undan. Slíkt er tilhlökkunarefni en ekki dragbítur. Við mætum því til leiks staðráðnir í að njóta hverrar mínútu í þeirri keppni sem og öðrum á tímabil- inu,“ sagði Leifur að lokum. Nýju framherjarnir í Árbænum, Allan Dyring og Jóhann Þórhallsson, eru ekki síður spenntir fyrir komandi tímabil í Landsbankadeildinni. „Mér hefur gengið vel að skora síðan ég kom til Fylkis og er nærri því með mark að meðaltali í leik, en ég skal játa það að ég er orðinn þreyttur á undirbúningstímabilinu og get ekki beðið eftir því að Landsbankadeildin byrji. Þjálfarinn hefur trú á mér og veit hvað ég get gert og það er mjög mikilvægt fyrir mig persónulega, en það er dálítið erfitt að átta sig á því hvar liðið stendur í sam- anburði við önnur lið. Við erum búnir að lenda í miklum vandræðum með meiðsli leikmanna á undirbúningstímabilinu en það verða vonandi allir klárir í fyrsta leik,“ sagði Allan og telur að fullskipað Fylkislið geti á góðum degi unnið hvaða lið sem er í deildinni. „Við tökum einn leik fyrir í einu og förum í hvern leik til þess að vinna hann, sama í hvaða keppni það er,“ sagði Allan brattur og Jóhann tók undir með honum. „Við höfum alla burði til þess að vera með í toppbaráttunni ef allt gengur að óskum og við verðum heppnir með meiðsli. Þetta er flottur hópur og það er góð stemning í Árbæn- um, og ég fann það strax að þetta væri rétta félagið fyrir mig,“ sagði Jóhann. STAÐRÁÐNIR Í AÐ LÁTA TIL SÍN TAKA MEÐ FYLKI SLÁ FRÁ SÉR SÓKNARMENNIRNIR ALLAN DYRING OG JÓHANN ÞÓRHALLSSON EIGA EFLAUST EFTIR AÐ LÁTA FINNA HRAUSTLEGA FYRIR SÉR MEÐ FYLKI Í LANDSBANKADEILDINNI Í SUMAR OG ERU STAÐRÁÐNIR Í AÐ NÁ GÓÐUM ÁRANGRI UNDIR STJÓRN LEIFS GARÐARSSONAR Í ÁRBÆNUM. MYND/VALLI Fylkir hefur fengið til sín tvo nýja framherja fyrir komandi átök í Landsbankadeildinni, þá Jóhann Þórhallsson frá KR og Allan Dyring frá FH. Leik- mennirnir áttu hvor um sig erfitt uppdráttar síð- asta sumar og gekk illa að skora en Jóhann skoraði aðeins eitt mark í fjórtán leikjum og Allan náði ekki að skora í þeim fjórum leikjum sem hann spil- aði. Þjálfarinn Leifur Garðarsson telur þó vitan- lega að þeir komi báðir til með að styrkja Árbæj- arliðið til muna og hefur trú á því að þeir eigi eftir að sýna sitt rétta andlit næsta sumar. „Kostir Jóhanns og Allans eru í raun ólíkir. Jóhann er bein- skeyttur framherji og kannski meiri „center“ en Fylkir hefur verið með undanfarin ár, meðan Allan er meira rétt fyrir aftan fremstu línu og getur einn- ig leikið á miðsvæðinu. Hver leikmaður þarf yfirleitt að sanna það fyrir sjálfum sér í hverju verk- efni hversu góður leikmaður hann er og það er enginn betri en síðasti leikur gaf til kynna. En við þekkjum hins vegar hæfileika þess- ara tveggja leikmanna og vitum hvað í þeim býr,“ sagði Leifur, en Jóhann hefur sýnt það í gegnum árin að hann er eitraður framherji og tölfræðin talar þar sínu máli. Hann hefur skorað 24 mörk í 77 leikjum í efstu deild með Þór, KA, Grindavík og svo KR. Allan á ef til vill frekar eftir að sanna sig sem markaskorari í efstu deild þar sem hann hefur skorað 4 mörk í 18 leikjum með FH. VITUM HVAÐ Í ÞEIM BÝR Það er mikill hugur í mönnum í Árbænum fyrir komandi tímabil í Landsbankadeildinni og þátttöku félagsins í Inter-Toto keppninni. Fylkir var með besta varnarliðið í Landsbankadeildinni í fyrra en liðinu gekk illa að skora mörk og þjálfarinn, Leifur Garðarsson, hefur því fengið framherjana ALLAN DYRING og JÓHANN ÞÓRHALLSSON til þess að styrkja framlínuna. Eftir Ómar Þorgeirsson HEFUR TRÚ Á SÍNUM MÖNNUM LEIFUR GARÐARSSON, ÞJÁLFARI FYLKIS, HEFUR TRÚ Á ÞVÍ AÐ NÝIR SÓKNARMENN ÁRBÆINGA, ÞEIR JÓHANN ÞÓRHALLSSON OG ALLAN DYRING, EIGI EFTIR AÐ REYNAST HAPPAFENGUR Í LANDSBANKA- DEILDINNI Í SUMAR. MYND/VALLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.