Fréttablaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 81
SUNNUDAGUR 4. maí 2008 25
N1-deild kvenna í handbolta
Stjarnan-Valur 26-20 (17-10)
Mörk Stjörnunnar (skot): Alina Petratche 9/4
(16/4), Rakel Dögg Bragadóttir 5 (6), Harpa Sif
Eyjólfsdóttir 4 (5), Sólveig Lára Kjærnested 3 (8),
Ásta Agnarsdóttir 2 (3), Þorgerður Anna Atladóttir
1 (1), Kristín Clausen 1 (2), Birgit Engl 1 (5).
Varin skot: Florentina Stancue 21 (41/1 51,2%)
Hraðaupphlaup: 6
Fiskuð víti: 4
Utan vallar: 4 mínútur
Mörk Vals (skot): Hafrún Kristjánsdóttir 4/1
(7/2), Dagný Skúladóttir 4 (8), Eva Barna 4
(12), KristínGuðmundsdóttir 4 (14), Anna María
Guðmundsdóttir 2 (2), Rebekka Skúladóttir 1 (1),
Katrín Andrésdóttir 1 (2), Nora Valovics (1), Íris
Ásta Pétursdóttir (1), Ágústa Edda Björnsdóttir(2)
Varin skot: Berglind Hansdóttir 12 (35/4 34,3%),
Jolanta Slapikiene 3 (6 50%)
Hraðaupphlaup: 8
Fiskuð víti: 2
Utan vallar: 2
Haukar-FH 31-26
Akureyri-Grótta 19-31
HK-Fylkir 28-30
LOKASTAÐA DEILDARINNAR
Stjarnan 24 20 1 3 +153 41
Fram 24 19 3 2 +124 41
Valur 24 18 0 6 +155 36
Haukar 24 14 2 8 +63 30
Grótta 24 13 1 10 +83 27
Fylkir 24 7 1 16 -96 15
HK 24 6 3 15 -41 15
FH 24 5 1 18 -161 11
Akureyri 24 0 0 24 -280 0
N1-deild karla í handbolta
Afturelding-Stjarnan 26-22
HK-Haukar 32-32
Akureyri-ÍBV 42-33
LOKASTAÐAN Í DEILDINNI
Haukar 28 20 6 2 +99 46
HK 28 17 3 8 +71 37
Valur 28 16 4 8 +93 36
Fram 28 16 2 10 +13 34
Stjarnan 28 12 5 11 +37 29
Akureyri 28 9 4 15 -4 22
Afturelding 28 4 3 21 -77 11
ÍBV 28 4 1 23 -232 9
Norski handboltinn
Drammen-Elverum 31-33
Elverum varð þar með norskur meistari en Axel
Stefánsson þjálfar liðið og Sigurður Ari Stefáns-
son skoraði 8 mörk og Ingimundur Ingimundar-
son skoraði 7 mörk í úrslitaleiknum.
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Íslandsmeistarar
Vals og bikarmeistarar FH
mætast í hinni árlegu Meist-
arakeppni KSÍ í fótbolta í
Kórnum kl. 19.15 í kvöld. Frétta-
blaðið heyrði hljóðið í markahrók-
unum Helga Sigurðssyni hjá Val og
Tryggva Guðmundssyni hjá FH og
spurði þá út í leikinn í kvöld og vonir
og væntingar þeirra fyrir sumarið.
Helgi hefur verið frá vegna meiðsla
síðan í landsleik Íslands og Færeyja
um miðjan mars þegar hann tognaði
aftan í læri en er allur að koma til og
ætlar sér að vera klár í fyrsta leik í
Landsbankadeildinni, en á síður von
á því að leika með Val í kvöld.
„Ég tel mig reyndar nú þegar vera
orðinn kláran í slaginn en þjálfara -og
sjúkraþjálfarateymið er
eitthvað að reyna að
halda aftur af mér vegna
hræðslu um að tognunin
taki sig aftur upp, þannig að
ég á ekki von á því að vera með í
kvöld,“ sagði Helgi spenntur og
kvaðst ánægður með Valsliðið.
„Veturinn hefur gefið okkur mikið
sjálfstraust, en þeir leikir skipta
auðvitað engu máli ef menn byrja
Íslandsmótið ekki á fullu. Ég er
hins vegar mjög bjartsýnn og
við ætlum okkur að sjálfsögðu
að vera með í baráttunni um tit- il-
inn og ég tel að FH og ÍA muni veita okkur
mesta keppni þar,“ sagði Helgi að lokum.
Tryggvi hefur verið á skotskónum í vetur og
vor og hlakkar til leiksins í kvöld.
„Það er komin mikil stemning í mannskap-
inn og það er alltaf gaman að spila þessa leiki
og segja má að þetta sé kannski fyrsti
alvöruleikur tímabilsins. Það lið sem
vinnur leikinn ætti því að koma inn í Íslands-
mótið með miklu sjálfstrausti. Það hefði vissu-
lega verið skemmtilegra að spila þennan leik
úti og á grasi en þetta verður auðvitað
hörkuleikur bestu liða síðasta sumars,“
sagði Tryggvi sem á von á að titilbar-
áttan verði ennþá harðari í ár en
oft áður.
„Ég er bjartsýnn á sumarið
eins og alltaf og tel að við
munum vera í baráttunni um
titilinn en ég hef trú á því að
toppbaráttan verði meira
spennandi í sumar en hún hefur
verið undanfarin ár og fleiri lið þar
tilkölluð. Ég hef trú á því að ásamt
okkur hafi Valur, KR, ÍA, Breiða-
blik og jafnvel Fylkir og Fram
alla burði til þess að gera góða
hluti,“ sagði Tryggvi. - óþ
Íslandsmeistarar Vals og bikarmeistarar FH eigast við í Meistarakeppni karla í fótbolta í Kórnum í kvöld:
Bestu lið síðasta sumars mætast í kvöld
Í ELDLÍNUNNI Tryggvi Guðmundsson
telur að leikurinn í kvöld geti virkað
sem vítamínssprauta fyrir sigurliðið
inn í Íslandsmótið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
KLÁR Í SLAGINN Helgi Sigurðsson
er búinn að ná sér af meiðslum
en verður líklega hvíldur í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
HANDBOLTI Lokaumferðin í N1-
deild karla í handbolta var háð í
gær og þar bar hæst að Íslands-
meistarar Hauka og silfurlið HK
gerðu jafntefli 32-32 í fjörugum
leik í Digranesi.
Talsverður doði hefur verið yfir
N1-deild karla eftir að Haukar
tryggðu sér Íslandsmeistaratitil-
inn fyrir tæpum mánuði en leikur
HK og Hauka í gær var hin besta
skemmtun. Allt leit út fyrir að
Haukarnir myndu fara með sigur
af hólmi 31-32 en HK-ingar gáfust
ekki upp og náðu að jafna leikinn
32-32 á lokasekúndu leiksins við
gríðarlegan fögnuð áhorfenda sem
fjölmenntu í Digranesið í gærdag.
Að leik loknum fengu HK-ingar
svo silfurverðlaunapeninga sem
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, afhenti þeim
og Gunnar Magnússon, þjálfari
HK, var ágætlega sáttur í leiks-
lok.
„Mér fannst þetta bara fínn leik-
ur og leikmennirnir voru að sýna
fína baráttu og karakter. Bæði lið
voru að spila á ungum leikmönn-
um og náttúrulega með hugann
þar við næsta vetur sem er ekkert
óeðlilegt eins og deildin hefur þró-
ast og ég skal játa það að þetta er
búinn að vera frekar erfiður mán-
uður þar sem ef til vill var ekki að
miklu að keppa í lokaumferðun-
um,“ sagði Gunnar sem er bjart-
sýnn á framhaldið hjá HK.
„Það eru talsverðar manna-
breytingar fram undan þar sem
við missum eitthvað af þeim
erlendu leikmönnum sem hafa
verið hjá okkur. Það er samt mikill
metnaður hjá HK að vera með í
toppbaráttunni aftur á næsta ári
og það eru bjartir tímar fram
undan hjá félaginu þar sem það
eru margir efnilegir leikmenn að
koma upp og 2. flokkur félagsins
var bæði Íslands -og bikarmeist-
ari,“ sagði Gunnar að lokum. - óþ
Lokaumferð N1-deildar karla í handbolta var leikin í gær þar sem flestra augu voru á toppslag HK og Hauka:
Toppliðin skildu jöfn í Digranesi í gær
JAFNTEFLI Íslandsmeistarar
Hauka og silfurlið HK skildu jöfn í
Digranesi í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON