Fréttablaðið - 04.05.2008, Qupperneq 4
4 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
Nú fer
hver að verða
síðastur að ná sér í
Blaðbera
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
LONDON Íhaldsmenn fögnuðu ákaft þegar Boris
Johnson flutti fyrsta ávarp sitt sem nýkjörinn
borgarstjóri í ráðhúsi Lundúnaborgar í gær.
Samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins,
BBC, sagðist Johnson ætla að leggja sérstaka
áherslu á að auka lífsgæði borgarbúa með því
að draga úr ofbeldi á götum úti og bæta almenn-
ingssamgöngur. Einnig sagðist hann ætla að
bæta fyrirkomulagið á umdeildu gjaldtökukerfi
sem forveri hans, Livingstone, kom á í borginni
til þess að draga úr umferðarþunga og mengun
miðsvæðis.
Íhaldsflokkurinn sigraði ekki aðeins í höfuð-
borginni heldur komst til valda í tólf nýjum
sveitarfélögum víðsvegar um England og Wales
í sveitarstjórnarkosningunum sem fóru fram á
fimmtudag.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla Íslands, segir niðurstöðurnar
benda til þess að staða Verkamannaflokksins,
sem hefur verið við völd í landinu síðan árið
1997, sé að veikjast.
„Það mætti líta svo á að breskur almenningur
hafi ekki aðeins verið að kjósa um sveitarstjórn-
armálefni heldur hafi einnig verið að staðsetja
sig með eða á móti ríkisstjórninni. Verkamanna-
flokkurinn hefur átt í vissum innanflokksdeil-
um undanfarið og hefur því fallið í vinsældum.
Á sama tíma hefur Íhaldsflokknum tekist að
færa sig nær miðjunni og auka við vinsældir
sínar undir stjórn Davids Cameron. Það er því
óhætt að segja að staða forsætisráðherrans,
Gordons Brown, sé ekki sterk í augnablikinu þó
svo að ómögulegt sé að segja til um á þessari
stundu hvort niðurstöður þessara sveitarstjórn-
arkosninga gefi nokkuð til kynna um hugsanleg-
ar niðurstöður þingkosninga sem fara fram árið
2010.“
Boris Johnson og Ken Livingstone hafa báðir
vakið mikla athygli fyrir litríka hegðun og skoð-
anir. Ólafur telur þó að kjósendur hafi kosið
eftir stefnu flokkanna fremur en einstökum
frambjóðendum. „Þeir Johnson og Livingstone
eru báðir skrautlegir og umdeildir menn, en ég
tel þó ekki að framkoma þeirra hafi haft úrslita-
áhrif í þessum kosningum. Aðgerðir flokkanna
í aðdraganda kosninganna höfðu líklega meira
að segja um niðurstöðurnar en persónur fram-
bjóðendanna.“
vigdis@frettabladid.is
Staða Gordons Brown veikist
Íhaldsmenn unnu stórsigur í bresku sveitarstjórnarkosningunum. Ólafur Þ. Harðarson segir stöðu Gordons
Brown forsætisráðherra vera veika. Íhaldsmaðurinn Boris Johnson verður næsti borgarstjóri Lundúna.
SÁ NÝI OG SÁ GAMLI Ken Livingstone er að vonum óánægður með niðurstöðu sveitarstjórnarkosninganna. Á bak
við hann sést óljóst í nýja borgarstjórann í Lundúnum, Boris Johnson. FRÉTTBLAÐIÐ/AP
Vinsæll en klaufalegur yfirstéttarmaður
LONDON,BBC Nýkjörinn borgar-
stjóri Lundúna heitir fullu nafni
Alexander Boris de Pfeffel John-
son og er fæddur árið 1964 í
New York. Foreldrar hans eru
báðir Englendingar, en Johnson
var bandarískur ríkisborgari þar
til fyrir skömmu. Áhugi á stjórn-
málum er ekkert nýjabrum í fjöl-
skyldu Johnsons; faðir hans
starfaði lengi fyrir Íhaldsflokkinn
og langafi hans, Ali Kemal, var
ráðherra í Ottómanveldinu.
Johnson lagði stund á klassísk
fræði við Oxford-háskóla, og var
við nám á
sama tíma
og David
Cameron,
núverandi
leiðtogi
Íhaldsflokks-
ins. Að námi
loknu reyndi
Johnson fyrir
sér sem
blaðamaður
og starfaði hjá dagblöðunum
The Times og The Daily Telegr-
aph og árið 1999 tók hann við
sem ritstjóri tímaritsins The
Spectator. Hann hefur verið ó-
ragur við að koma sér á framfæri
í öðrum miðlum og er tíður gest-
ur í ýmsum spjallþáttum. Hann
hefur vakið mikla athygli fyrir
óvarleg ummæli um hin ýmsu
málefni og hefur oft þurft að
biðjast afsökunar opinberlega á
orðum sínum.
Johnson var kjörinn á þing
fyrir Íhaldsflokkinn árið 2001 og
hefur ekki dregið dul á metnað
sinn um að ná enn lengra í
stjórnmálum. - vþ
BORIS JOHNSON
SKÁK Björn Þorfinnsson var
kjörinn nýr forseti Skáksambands
Íslands á aðalfundi sambandsins í
gær. Auk Björns var Óttar Felix
Hauksson í framboði en báðir hafa
þeir setið í stjórn sambandsins.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
sem gegnt hefur embættinu
undanfarin fjögur ár gaf ekki kost
á sér. „Þetta er súrsæt tilfinning
því við erum að kveðja einn
öflugasta forseta sem við höfum
átt,“ segir Björn. Hann segist ætla
sér að reyna að fylgja góðu starfi
Guðfríðar Lilju eftir þótt búast
megi við einhverjum áherslu-
breytingum. - ovd
Nýr forseti Skáksambandsins:
Búast má við
breytingum
NÝR FORMAÐUR Björn Þorfinnsson
ásamt Guðfríði Lilju Grétarsdóttur, fráfar-
andi formanni.
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
17°
19°
20°
20°
18°
20°
22°
22°
22°
18°
24°
22°
23°
21°
24°
19°
30°
19°
Á MORGUN
3-10 m/s, stífast syðst
ÞRIÐJUDAGUR
3-8 m/s
6
10
11
6
8
10
12
10
12
10
7
13
6
8
6
10
10
18
7
13
10
13
8 13
13
1212
8 14
12
10
10
NORÐUR- OG
AUSTURLAND
Þótt víða muni
rigna eitthvað í dag
eru horfur á fínu
veðri á Norður-
og Austurlandi á
morgun og Mið-
Norðurlandi hinn.
Má búast við björtu
veðri með köfl um
þar um slóðir með
hægum vindi og
hita hátt í 16 til 17
stig.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
Veður-
fræðingur
SVÍÞJÓÐ Lík tveggja manna fundust
í iðnaðarhúsnæði í sænska bænum
Vallentuna, skammt frá Stokk-
hólmi, í gærmorgun. Samkvæmt
dagblaðinu Dagens Nyheter hefur
lögreglan handtekið 35 ára mann
vegna gruns um aðild að dauða
mannanna, en sá grunaði var
staddur í iðnaðarhúsnæðinu þegar
líkin fundust og gat enga skýringu
gefið á viðveru sinni. Annar maður
var einnig handtekinn en honum
var sleppt eftir yfirheyrslu. Enn
hefur ekki tekist að bera kennsl á
hina látnu. - vþ
Tvöfalt morð í Svíþjóð:
Fórnarlömbin
enn óþekkt
FORSETINN Forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, tók í gær á móti fyrstu forsetabif-
reiðinni sem notuð var á upphafsárum Sveins
Björnssonar í embætti forseta Íslands.
Bifreiðin er af gerðinni Packard, árgerð
1942. Var hún keypt á sínum tíma notuð frá
Bandaríkjunum eftir að bifreið sömu gerðar,
sem Roosevelt Bandaríkjaforseti gaf forseta-
embættinu, glataðist þegar Goðafossi var
sökkt í nóvember 1944.
Í tilkynningu frá forsetaembættinu segir að
bifreiðin sé eign Þjóðminjasafns Íslands en
verði geymd á Bessastöðum og notuð og sýnd
við sérstök tækifæri.
Bifreiðin var endurgerð á árunum 1998 til
2004 en nokkrar deilur voru um greiðslur
kostnaðar við endurgerð bílsins. Tíu milljóna
króna fjárveiting til verksins kláraðist fjórum
árum áður en endurgerð lauk en heildarkostn-
aður er áætlaður tólf til fimmtán milljónir
króna.
Í ræðu sinni í gær þakkaði Ólafur Ragnar
þeim sem lagt hafa hönd að verki, bæði
bílasmiðnum, þeim sem varðveittu bílinn,
Þjóðminjasafninu og áhugamönnum um
endurgerð bílsins. Þá þakkaði hann jafnframt
þeim aðilum sem lagt hafa fé til verksins,
ríkissjóði, aðilum innan Bílgreinasambandsins
og síðast en ekki síst fjármálastofnununum
fjórum, Kaupþingi, Landsbankanum, Glitni og
SPRON sem forsetinn sagði hafa gert það
kleift að hægt var að ljúka verkinu. - ovd
Forseti Íslands tók í gær á móti endurgerðri fyrstu forsetabifreið lýðveldisins:
Aðeins notaður við sérstök tækifæri
RÚMGÓÐUR OG FLOTTUR FORSETABÍLL Eins og sjá
má fór afar vel um Ólaf Ragnar Grímsson forseta í
nýuppgerðum forsetabíl Sveins Björnssonar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GENGIÐ 02.05.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
149,7958
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
74,79 75,15
148,8 149,52
115,6 116,24
15,488 15,578
14,565 14,651
12,355 12,427
0,7139 0,7181
121,19 121,91
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR