Fréttablaðið - 04.05.2008, Blaðsíða 6
6 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
MENNING Halldór Björn Runólfs-
son, forstöðumaður Listasafns
Íslands, opnaði þann 1. maí
yfirlitssýningu á íslenskri
nútímalist í Scandinavia House í
New York. Aðalstyrktaraðilar
sýningarinnar eru Samfélagssjóð-
ur Alcoa og utanríkisráðuneytið,
en sýningin er liður í röð við-
burða sem stjórnvöld standa fyrir
í New York í tengslum við
kosningabaráttu Íslands fyrir
sæti í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna. Á sýningunni má sjá
fjölbreytt verk eftir íslenska
nútímalistamenn. - vþ
Íslensk menning í útrás:
Nútímalist
í New York
ÍSLENSK LIST ERLENDIS Verk eftir Ólaf
Elíasson á sýningunni í Scandinavia
House.
VIÐSKIPTI Hluthafar FL Group hafa
ákveðið að afskrá félagið 9. maí
næstkomandi. Þegar hafa
eigendur 83 prósenta hlutafjár
ákveðið að vera áfram hluthafar í
félaginu í stað þess að fá hlut sinn
greiddan með bréfum í Glitni.
Þá hefur stjórn Flögu Group
ákveðið að óska eftir að félagið
verið tekið úr Kauphöllinni. Verði
af sameiningu SPRON og Kaup-
þings, sem nú er í undirbúningi,
verður SPRON afskráð eftir
aðeins sex mánuði í Kauphöllinni.
Þá er verið að afskrá TM eftir að
félagið var tekið yfir af FL Group.
Það er því útlit fyrir að
skráðum félögum fækki um
fjögur á næstunni. Þar af eru tvö í
úrvalsvísitölunni. - bg
Skráðum félögum fækkar:
Flaga afskráð
Fyrsta sumardag hafði grásleppuver-
tíðin skilað 5.000 söltuðum tunnum.
Veiði síðustu daga hefur verið góð
samfara því að veður hefur verið gott.
SJÁVARÚTVEGUR
5.000 tunnur á land
Telur þú að misskipting á
Íslandi sé að aukast?
Já 90%
Nei 10%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Ert þú fylgjandi framboði Ís-
lands til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna?
Segðu skoðun þína á vísir.is
STJÓRNMÁL „Ef til aðildar að Evr-
ópusambandinu kemur er full-
komlega ljóst að mæta þarf því
framsali valds sem í slíkri aðild
felst með breytingu á stjórnar-
skránni. Hvort sem menn meta
hagsmunum okkar betur borgið
utan eða innan Evrópusambands-
ins tel ég því mikilvægt að ráðist
verði í nauðsynlegar breytingar á
stjórnarskrá okkar til að mæta
þeim kröfum sem alþjóðlegt sam-
starf kallar á,“ sagði Guðni
Ágústsson, formaður Framsókn-
arflokksins, í ræðu sinni á mið-
stjórnarfundi flokksins í gær.
Þungamiðjan í ræðu Guðna
voru Evrópumálin. Telur hann
aðkallandi að efnislegar breyting-
ar verði gerðar á stjórnarskránni
er varða tryggingu þess að auð-
lindir þjóðarinnar verði áfram í
þjóðareigu. Þær breytingar á
stjórnarskránni verði að gera
áður en hugsanlegar aðildarvið-
ræður við Evrópusambandið
koma til, svo treysta megi samn-
ingsstöðu og hagsmuni þjóðarinn-
ar nægjanlega vel. Ekki er eftir
neinu að bíða að hans mati og telur
hann að nauðsynlegum breyting-
um væri hægt að ljúka í lok yfir-
standandi kjörtímabils og upphafi
þess næsta, eða árið 2011 í síðasta
lagi.
Annað stórt atriði sem taka þarf
ákvörðun um er að mati Guðna
hvernig staðið skuli að þjóðarat-
kvæðagreiðslum sem snerta Evr-
ópumál. „Í mínum huga er nefni-
lega kristaltært að það er íslenska
þjóðin sem þarf að úrskurða um
svo stórt atriði; bæði hvort yfir-
höfuð skuli ráðist í aðildarviðræð-
ur og eins varðandi samþykkt eða
synjun aðildar að loknum samn-
ingaviðræðum, ef til aðildarvið-
ræðna kemur. Ég hugsa að enginn
stjórnmálaflokkur vilji samninga-
viðræður um aðild að ESB nema
hafa að baki sér staðfestan þjóð-
arvilja og þingvilja.“ Af þeim
sökum þarf að setja lög á Alþingi
og ákvæði í stjórnarskrá um atriði
sem lúta til að mynda að þátttöku
í þjóðaratkvæðagreiðslu, að mati
Guðna.
Guðni vandaði ekki ríkisstjórn-
inni kveðjurnar í ræðu sinni. „Rík-
isstjórn Geirs H. Haarde er ekki
vandanum vaxin. Hún er aumasta
ríkisstjórn sem setið hefur frá því
að þjóðarsáttin náðist fram árið
1990. Það var vitað fyrir ári að
það átti að vera fyrsta verkefni
ríkisstjórnarinnar að takast á við
vaxandi verðbólgu hér sem þá
þegar ógnaði öllum stöðugleika.“
svavar@frettabladid.is
Breytingar á stjórn-
arskrá aðkallandi
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, telur að ráðast verði nú þeg-
ar í breytingar á stjórnarskránni til að mæta kröfum alþjóðasamstarfs. Setja
þurfi lög og ákvæði í stjórnarskrá sem lúta að þjóðaratkvæðagreiðslu.
FRÁ MIÐSTJÓRNARFUNDI Evrópumálin voru þungamiðja í ræðu Guðna Ágústssonar
við upphaf miðstjórnarfundar Framsóknarflokksins í gær. Hér er Guðni með Valgerði
Sverrisdóttur, varaformanni flokksins. FRÉTTABLAÐIÐ/DANNI
STJÓRNMÁL Guðni Ágústsson, formaður Framsóknar-
flokksins, sagði í ræðu sinni á miðstjórnarfundi
flokksins í gær að ef ekki hefði verið fyrir andóf
framsóknarmanna væri Sjálfstæðisflokkurinn búinn
að ná því fram að einkavæða Íbúðalánasjóð eða selja
hann bankakerfinu.
Spurður hvort sjálfstæðismenn hafi sótt það fast
að gera grundvallarbreytingar á eignarhaldi
sjóðsins í ríkisstjórnarsamstarfi við Framsóknar-
flokkinn segir Guðni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
verið og sé enn þeirrar skoðunar að starfsemi
Íbúðalánasjóðs eigi að hverfa inn í bankakerfið. „Þó
hygg ég að þeir hafi viljað halda einhverjum
félagslegum sjóði til haga. Það reyndi þó aldrei á
þetta en við fundum þennan anda. Við fórum með
málið og þeir virtu okkar sjónarmið varðandi
sjóðinn.“
Guðni segist þó lengi hafa haft þá tilfinningu að
Sjálfstæðisflokkurinn hafi horn í síðu sjóðsins eins
og komið hafi fram í máli Geirs H. Haarde forsætis-
ráðherra í umræðu um orsakir alvarlegrar stöðu
sem komin er upp á fasteignamarkaði.
„Í ljósi reynslunnar nú er það fagnaðarefni fyrir
þjóðina í heild að starfsemi sjóðsins er óbreytt. Við
stóðum nýja ríkisstjórn að því að ætla að færa
sjóðinn inn í fjármálaráðuneytið. Við bentum
Samfylkingunni á að slíkt væri sölutrix og Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra hefur sagt að
hún fallist aldrei á sölu sjóðsins.“ - shá
Segir andóf Framsóknar hafa komið í veg fyrir einkavæðingu Íbúðalánasjóðs:
Þeir virtu sjónarmið okkar
HEILBRIGÐISMÁL „Þetta hefur fyrst
og fremst verið erfitt fyrir sjúk-
lingana,“ segir Þórarinn Guðnason,
formaður Félags sjálfstætt starf-
andi hjartalækna, en samningar
tókust milli hjartalækna og samn-
inganefndar heilbrigðisráðherra í
gær. Hjartalæknar höfðu verið
utan samninga í ríflega tvö ár.
Eftir samningsslitin var tekið
upp tilvísanakerfi sem Þórarinn
segir hafa haft í för með sér tölu-
verð vandkvæði fyrir sjúklinga.
Því sé fagnaðarefni að loks hafi
tekist að ganga frá þessum málum.
„Vinnubrögðin sem samninganefnd
hefur sýnt í þessu máli hafa verið
fagleg og vönduð og útgangspunkt-
urinn hefur verið að taka tillit til
þjónustuþarfar hjartasjúkl inga. Sú
var ekki raunin fyrir tveimur árum
og því sáum við þá engan annan
kost í stöðunni en að segja okkur
frá samningum,“ segir Þórarinn.
Meðal þess sem nýr samningur
felur í sér er að nú gilda á ný sömu
reglur um greiðslur fyrir komur til
hjartalækna og fyrir komur til ann-
arra sérfræðilækna og því þurfa
hjartasjúklingar ekki lengur að
hafa tilvísanir frá heimilislæknum
til að geta sótt endurgreiðslur frá
Tryggingastofnun. Samningurinn
gildir til árins 2010 og er markmið
hans að tryggja bætta þjónustu við
hjartasjúkl inga. Jafnframt er
miðað að því að draga úr álagi og
kostnaði heilsugæslustöðva og
sjúklinga vegna afnáms tilvísunar-
skyldunnar. - kdk
Hjartalæknar hafa verið utan samninga í tvö ár og hefur það bitnað á sjúklingum:
Samningar takast við hjartalækna
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR Guðni segist lengi hafa haft þá tilfinningu
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi horn í síðu Íbúðalánasjóðs.
ÞÓRARINN GUÐNASON Formaður Félags
sjálfstætt starfandi hjartalækna segir
samningsleysið fyrst og fremst hafa
bitnað á sjúklingum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
SAMGÖNGUR Iceland Express
hefur fellt niður þrjár áætlunar-
ferðir sínar milli Egilsstaða og
Kaupmannahafnar í maí.
Matthías Imsland, fram-
kvæmdastjóri Iceland Express,
segir lítinn áhuga ástæðu fyrir
þessu en nýtingin hafi verið í
kringum þrjátíu prósent. Þetta er
annað sumarið sem félagið heldur
uppi áætlunarferðum á þessari
leið. Matthías segir fyrstu ferðir í
fyrra hafa verið mun betur nýttar
enda séu Egilsstaðir eini áfanga-
staður félagsins þar sem bókun-
um fækkar á milli ára. „Það er
töluverð aukning á bókunum
annars staðar,“ segir hann. - ovd
Fljúga ekki með tómar vélar:
Hætt við ferðir
frá Egilsstöðum
MATTHÍAS IMSLAND Egilsstaðir eru eini
áfangastaður Iceland Express þar sem
bókunum fækkar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DANMÖRK Lögreglan í Árósum
handtók í gær 43 ólátabelgi sem
voru með læti bæði fyrir og eftir
fótboltaleik á milli liðanna OB og
AGF. Áður en leikurinn hófst
brutust út hópslagsmál í miðbæ
Árósa á milli áhangenda liðanna
og voru níu handteknir. Að
leiknum loknum fögnuðu
áhangendur OB sigri liðs síns
með innbyrðis slagsmálum og því
að kasta flöskum í lögregluna. Til
að stilla til friðar neyddust
laganna verðir til þess að nota
piparúða á mannskapinn og að
handtaka 34 til viðbótar. - vþ
Ólæti á fótboltaleik:
Danskar bullur
handteknar
KJÖRKASSINN