Fréttablaðið - 04.05.2008, Page 8
8 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
Við stöndum upp úr
Atvinna í boði... ...alla daga
24,5%
At
vi
nn
ub
la
ð
M
or
gu
nb
la
ðs
in
s
39,3%
At
vi
nn
ub
la
ð
Fr
ét
ta
bl
að
si
ns
sk
v.
k
ön
nu
n
Ca
pa
ce
nt
1
. n
óv
. 2
00
7–
31
. j
an
. 2
00
8 Atvinnublað Fréttablaðsins er með 60%
meiri lestur en atvinnublað Morgunblaðsins
miðað við 20–40 ára
Á alla viðburði Kópavogsdaga er ókeypis nema annað sé tekið fram.
Nánari dagskrá á www.kopavogur.is eða í síma 570 1500.
Allir Kópavogsbúar og aðrir
gestir hjartanlega velkomnir!
11:00
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn
20 ára afmæli Myndlistarskóla Kópavogs
Sýning á myndverkum nemenda. Leiðsögn kl. 14:00.
11:00
Salur Kvenfélags Kópavogs
Málverkasýning
Opið hús að Hamraborg 10 – kaffi og vöfflusala,
kökubasar og fleira.
13:00–17:00
Gjábakki og Gullsmári
Vorsýning
Handunnir nytja- og skrautmunir frá smiðjum vetrarins.
Vöfflukaffi og smiðjur.
13:00
Bókasafn Kópavogs
Óskin
Barnaleikrit fyrir yngstu áhorfendurna. Skemmtilegt ævintýri
með söngvum í flutningi Einleikhússins.
13:00
Kvöldskóli Kópavogs
Vorsýning og opið hús
Sýndur afrakstur nemenda á námskeiðum vetrarins.
13:00
Salurinn
Lúðrahljómur
Skólahljómsveit Kópavogs og Blásarasveit
Tónlistarskóla Árnesinga.
14:00–17:00
Vinnustofur listamanna í Kópavogi
Opið hús
Skrá um listamenn og vinnustofur á www.kopavogur.is.
14:00
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Þríhnúkagígur – Náttúrugersemi í Kópavogi
Gönguferð á Þríhnúkagíg í Bláfjöllum. Lagt af stað í samfloti
einkabíla frá Náttúrufræðistofunni kl. 13:30 og hist
kl. 14:00 við gönguslóðann upp í Grindaskörð.
16:00
Salurinn
Píanótónleikar
Helene Inga Stankiewicz.
Diplómapróf frá Listaháskóla Íslands.
20:00
Hjallakirkja
Vortónleikar með Karlakór Kópavogs
Sjá nánar á http://karlakorkopavogs.googlepages.com
20:00
Salurinn
Tíbrá: Söngtónleikar
Hrafnhildur Björnsdóttir og Martyn Parkes. Þýsk, frönsk og
íslensk sönglög og aríur. Miðaverð 2000/1600 kr.
Dagskráin í dag 4. maí
BORGARMÁL Borgarráð samþykkti
á fundi sínum á miðvikudag að
selja fyrirtækinu S10 lóð við hlið
höfuðstöðva Íslenskrar erfða-
greiningar (ÍE) þrátt fyrir alvar-
legar athugasemdir við söluna
bæði frá Kristínu Ingólfsdóttur
háskólarektor og forsvarsmönn-
um ÍE.
Björk Vilhelmsdóttir, borgar-
fulltrúi Samfylkingar, greiddi
atkvæði gegn
samþykktinni.
„Í fyrsta lagi tel
ég að ekki hafi
verið reynt til
hlítar að ná
samkomulagi
við háskólann,“
segir hún í sam-
tali við Frétta-
blaðið. „Svo er
það óljóst hvort
byggingar á
þessu svæði
samrýmist
framtíðarupp-
byggingu í
Vatnsmýrinni.
Ég veit að það
hafa verið skipt-
ar skoðanir um
þetta í meiri-
hlutanum og það
var engu líkara
en að þeir sem þarna voru að verki
hefðu viljað kýla þetta í gegn á
meðan fulltrúar í stýrihópi um
framtíðarskipulagningu Vatns-
mýrarinnar eru erlendis. Svo hef
ég spurnir af því að forsvarsmenn
ÍE hafi gert athugasemdir við
kaupin og mér þykir það ótækt að
afgreiða þetta án þess að taka tillit
til þeirra.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður borgarráðs, segir að borg-
arlögmaður sé nú að fara yfir
athugasemdirnar og að málið
verði tekið fyrir á fundi borgar-
stjórnar á þriðjudag. „Það er ekki
verið að kýla þetta mál í gegn
meðan fulltrúar stýrihópsins eru
fjarverandi,“ segir Vilhjálmur.
„Við settum einmitt inn ákvæði
sem skilyrðir kaupanda til að
vinna með borgaryfirvöldum að
skipulagningu lóðarinnar og
honum gert ljóst að stýrihópur á
vegum borgarráðs hafi umsjón
með vinnu við endurskoðun skipu-
lags í Vatnsmýri í kringum flug-
vallarsvæðið.“
Kári Stefánsson, forstjóri ÍE,
sagðist ekki vilja tjá sig um málið
á þessu stigi. Samkvæmt heimild-
um Fréttablaðsins snýr óánægja
hans að því hvernig lóðinni er
úthlutað en aðeins HÍ og S10 mega
bjóða í hana.
Kristín Ingólfsdóttir hefur hins
vegar sagt að fyrirhuguð sala brjóti
í bága við skuldbindingar sem
borgin hafi gengist undir gagnvart
skólanum. jse@frettabladid.is
Salan samþykkt í
óþökk rektors og ÍE
Borgarráð hefur samþykkt sölu á Vatnsmýrarlóð í óþökk deCODE og Háskóla
Íslands. Borgarfulltrúi Samfylkingar segir fulltrúa meirihlutans hafa kýlt málið
í gegn í fjarveru samherja sinna sem jafnvel hafi efasemdir um söluna.
VILHJÁLMUR Þ.
VILHJÁLMSSON
BJÖRK VIL-
HELMDSDÓTTIR
VATNSMÝRI Það hefur ekki verið einfalt mál að selja lóðina við höfuðstöðvar
Íslenskrar erfðagreiningar en tveir hafa gert alvarlegar athugasemdir við söluna og
borgarfulltrúi Samfylkingar segir jafnvel skiptar skoðanir um hana í meirihlutanum
þótt borgarráð hafi samþykkt hana.
VIÐSKIPTI „Ég er alls ekki að ætlast
til þess að kaupmenn taki á sig
hækkanir á hrávöruverði og tap
vegna gengislækkana,“ segir
Björg vin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra spurður um viðbrögð
Félags íslenskra stórkaupmanna
(FÍS).
Í tilkynningu frá félaginu var
lýst yfir furðu á því að viðskipta-
ráðherra skyldi mælast til þess að
verslunarmenn lækkuðu vörur og
að ASÍ skyldi vera látið sjá um
verðlagseftirlit á vegum ráðuneyt-
isins þar sem yfirlýsingar forsvars-
manna bentu til þess að ASÍ gæti
ekki rannsakað verð með hlutlaus-
um hætti.
„Ég var að hvetja til samstillts
átaks í því að halda aftur af hækk-
unum eins og kostur væri en ég var
ekki síður að beina orðum mínum
til hins opinbera,“ segir Björgvin.
„Ég veit ekki af hverju félagið
tekur þetta til sín. Kannski hafa
þeir misskilið þetta.“
Um efasemdir félagsins varð-
andi ASÍ segir hann: „Alþýðusam-
bandið og verslunarmenn lentu í
ákveðinni deilu hér um árið varð-
andi verðkannanir og túlkun út frá
þeim. Það er liðin tíð og menn eiga
að slá striki yfir það. Við funduðum
með ASÍ, Neytendasamtökunum og
fleirum og sannfærðumst um það
að þeir myndu gera sínar kannanir
af heilindum og fyrsta könnunin
sem kom fram sýnir að sú er raun-
in.“ - jse
Björgvin G. Sigurðsson svarar stórkaupmönnum:
Áskorun til fleiri en kaupmanna
VIÐSKIPTARÁÐHERRA MEÐ HEKLU-
MÖNNUM Hér er Björgvin milli þeirra
Sverris Haukssonar, framkvæmdastjóra
bílasviðs Heklu og Knúts Haukssonar
forstjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HEIMSÓKN „Það er mjög mikil stemning hérna í
skólanum og allir eru mjög spenntir,“ segir Sigríður
Elísabet Ragnarsdóttir, dönskukennari við Áslands-
skóla í Hafnarfirði. Skólinn á von á góðum gestum á
morgun þegar Friðrik krónprins Danmerkur og
eiginkona hans Mary krónprinsessa heimsækja
skólann ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta
Íslands, Dorrit Moussaieff forsetafrú og Lúðvík
Geirssyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar.
Mikið verður um dýrðir í skólanum á morgun og
allir taka þátt, bæði starfsmenn og nemendur. Leifur
S. Garðarsson skólastjóri mun halda stutta tölu,
Sigríður Elísabet fjallar um dönskukennsluna í
skólanum, tveir nemendur segja frá skólastarfinu og
kórinn syngur lagið „Er du sur og trist“ til heiðurs
gestunum. Öll dagskráin mun að sjálfsögðu fara fram
á dönsku.
„Nemendur skólans eru mjög áhugasamir um
dönskukennsluna og hlakka mikið til,“ segir Sigríður
Elísabet, sem sjálf bjó í Danmörku og er áhugasöm
um kóngafólkið. „Ég vann sem þroskaþjálfi á sambýli
og vinnufélagarnir voru margir hverjir afar áhuga-
samir um kóngafjölskylduna. Það varð ekki hjá því
komist að smitast af því,“ segir Sigríður og hlær. - kg
Danska kóngafólkið heimsækir Áslandsskóla í Hafnarfirði á morgun:
Syngja á dönsku fyrir
kóngafólkið og forsetahjónin
HEIMSÓKN Þessir kátu nemendur Áslandsskóla taka þátt í
dagskrá til heiðurs danska kóngafólkinu.