Fréttablaðið - 04.05.2008, Page 12
12 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1803 Bjarni Bjarnason og Stein-
unn Sveinsdóttir frá Sjö-
undá voru dæmd til lífláts
fyrir morð.
1948 Hvalstöðin í Hvalfirði
tekur til starfa.
1957 Stofnun Önnu Frank sett
á laggirnar í Amsterdam.
1976 Rokkhljómsveitin Kiss
kemur fyrst fram.
1978 Brésnev, leiðtogi Sovét-
ríkjanna, heimsækir Vest-
ur-Þýskaland.
1981 Hönd grædd á stúlku á
Borgarspítalanum eftir
vinnuslys í Sandgerði. Að-
gerðin tók fjórtán klukku-
tíma.
1986 Solveig Lára Guðmunds-
dóttir fær flest atkvæði
í prestkosningum á Sel-
tjarnarnesi.
Þennan dag árið 1880 fór fram í Reykja-
vík útför Jóns Sigurðssonar forseta og
konu hans, Ingibjargar Einarsdótt-
ur. Þau létust í Kaupmannahöfn í
desember 1879 með níu daga milli-
bili en hvíla í Hólavallakirkjugarði í
Vesturbæ Reykjavíkur.
Jón var leiðtogi Íslendinga
í sjálfstæðisbaráttunni og bjó
lengst af í Kaupmannahöfn.
Heimili þeirra hjóna á Øster-Vold-
gade var Íslendingum ávallt opið og
má kalla að þau hafi þar rekið fé-
lagsmiðstöð og athvarf. Þar er nú
rekið minningarsafn um Jón
og Ingibjörgu en auk
þess er þar bókasafn
og félagsaðstaða
Íslendinga í
Kaupmannahöfn.
Jón og Ingibjörg eignuðust
engin börn en ólu upp syst-
urson Jóns. Þau giftu sig
árið 1845 þegar Jón kom
heim á þing en Ingibjörg
hafði þá beðið í tólf
ár í festum. Hún flutti
með honum til Kaup-
mannahafnar þar sem hún
stjórnaði búi þeirra hjóna
af myndarskap. Jón var tíu
sinnum kosinn forseti Al-
þingis og hefur enginn annar
gegnt því embætti svo lengi.
Á kistu Jóns var ritað: „Óska-
barn Íslands, sómi þess, sverð
og skjöldur“.
ÞETTA GERÐIST: 4. MAÍ 1880
Útför Jóns forseta og IngibjargarAUDREY HEPBURN LEIKKONA FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ
1929.
„Að ná frægð og frama er
eins og að ná mikilvægum
afmælisdegi og finna þá að
þú hefur ekkert breyst.“
Audrey Hepburn braust úr fá-
tækt til frægðar og frama í
Hollywood þar sem hún lék
í mörgum kvikmyndum. Ein
hennar frægasta mynd er
„Breakfast at Tiffany´s“.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Ingimarsdóttir
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
mánudaginn 5. maí kl. 13.00.
Að lokinni athöfn verður boðið upp á veitingar í
Hlégarði í Mosfellsbæ.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
Styrktarfélag vangefinna.
Guðrún Vilhjálmsdóttir Pétur Björnsson
Árni Vilhjálmsson
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir Torfi Tulinius
Arinbjörn Vilhjálmsson Margrét Þorsteinsdóttir
Þórhallur Vilhjálmsson Glenn Barkan
börn og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Guðni Sigurjónsson
Hjallalandi 32,
andaðist á heimili sínu sunnudaginn 27. apríl.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
mánudaginn 5. maí kl. 13.00.
Rósa Hermannsdóttir
Hermann Gunnarsson Svava Viktoría Clausen
Alfreð Örn Hermannsson Marisa Somvichian
Gunnar Axel Hermannsson Svava Óttarsdóttir
Gestur Hermannsson
Viktoría G. Hermannsdóttir Bjarni Lárus Hall
og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
Baldvins Lárusar
Guðjónssonar
Halla E. Stefánsdóttir
Börkur B. Baldvinsson Matthildur Sigurjónsdóttir
Guðjón B. Baldvinsson Ingunn L. Guðmundsdóttir
Katrín K. Baldvinsdóttir Sigurbjartur Á.
Guðmundsson
Þorsteinn V. Baldvinsson Sigríður Björnsdóttir
Kristján G. Gunnarsson Guðrún A. Jóhannsdóttir
Gunnur K. Gunnarsdóttir Hlynur Þorsteinsson
Björk K. Gunnarsdóttir Guðmundur Jónsson
Steinunn H. Gunnarsdóttir Róbert G. Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Steinsmiðja
• Viðarhöfða 1
• 110 Reykjavík
• 566 7878
• Netfang: rein@rein.is
• Vönduð vinna
REIN
Legsteinar
í miklu úrvali
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Hjalti Þórarinsson
fyrrverandi yfirlæknir og prófessor,
Laugarásvegi 36, Reykjavík,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni
að kvöldi dags 23. apríl.
Verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
mánudaginn 5. maí klukkan 15.00.
Alma Anna Þórarinsson (Thorarensen)
Þórarinn Hjaltason Halla Halldórsdóttir
Oddur Carl Hjaltason Ingibjörg Jakobsdóttir
Sigríður Hjaltadóttir Þórir Ragnarsson
Gunnlaug Hjaltadóttir
Hrólfur Hjaltason
barnabörn og barnabarnabörn.
70 ára afmæli
70 ára afmæli á í dag sunnudag 4. maí
Þorvarður
Brynjólfsson
Sérfræðingur í heimilislækningum
Búsettur í Noregi
Verður hjá dóttur sinni Mávahrauni
12, Hafnarfi rði.
Elskulegur bróðir okkar, mágur og frændi,
Hafsteinn Erlendsson
Höfðabraut 3, Akranesi,
andaðist miðvikudaginn 30. apríl. Útförin fer fram frá
Akraneskirkju fimmtudaginn 8. maí kl. 14.00.
Þorvarður Ellert Erlendsson Áslaug Valdimarsdóttir
Birgir Þór Erlendsson
og aðrir aðstandendur.
Þökkum innilega öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
Huldu Guðjónsdóttur
frá Bæ í Lóni, síðast til heimilis að
Hrafnistu Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu Hafnarfirði
fyrir góða umönnun.
Erla Sigfúsdóttir Geir Sigurðsson
Kristín Sæmundsdóttir Þórður Þórðarson
Þórarinn Sæmundsson Brynja Benediktsdóttir
ömmubörn.
75 ára afmæli
Í dag 4. maí er
Aðalbjörg
Guðmundsdóttir
75 ára.
Í tilefni þess býður hún ætting jum og
vinum að gleðjast með sér í sal FVA
að Vogabraut 5, Akranesi, milli
klukkan 15 og 18.
Harmonikufélag Þingeyinga er næstelsta harmóníkufé-
lag á landinu. Félagar eru tæplega 100 og er líflegri starf-
semi haldið úti allt árið. Stefán Þórisson, bóndi í Hólkoti í
Reykjadal, hefur gegnt formennsku síðasta árið en reglan
er að stjórnin sitji ekki lengur en í tvö ár í einu.
„Þetta fyrirkomulag hefur reynst vel því þarna koma þá
fleiri til starfa en annars hefðu gert,“ segir Stefán. „Reynd-
ar spila ekki allir á harmóníku en þetta er opið félag og
öllum velkomið að taka þátt.“
Stefán segir félagið líflegt og skemmtilegt og kraftmik-
il dagskrá einkenni félagsskapinn. „Starfsemin hefur frá
upphafi verið heljarmikil hjá okkur og er enn.“
„Á sumrin, ef ekki er landsmót, er farið í tveggja til
þriggja daga skemmtiferð innanlands. Þá hittum við gjarn-
an önnur harmóníkufélög og sláum upp dansleik. Nú erum
við að fara í sjötta skipti austur á Breiðsdalsvík að halda
dansleik þar og hann hefur alltaf verið vel sóttur og mikið
dansað.“ Landsmót harmóníkuunnenda eru einnig miklar
samkomur og standa venjulega í þrjá daga. Þar eru skipu-
lagðir tónleikar og oft fengnir erlendir gestir til að spila. Í
ár verður landsmótið í Reykjanesbæ og segir Stefán víst að
einhverjir fari á mótið úr félagi Þingeyinga.
Auk landsmótsins hefur félagið farið í utanlandsferðir
og stendur fyrir ýmsum skemmtunum. „Flest félögin halda
sumarhátíð og okkar hátíð verður í júlí og þá verður dansað
alla helgina.,“ segir Stefán. „Í haust ætlum við svo að halda
afmælis- og árshátíð fyrir félaga. Ég reikna með að for-
menn hinna harmóníkufélaganna komi til okkar svo þetta
verður feiknamikil samkoma.“ heida@frettabladid.is
HARMONIKUFÉLAG ÞINGEYINGA: 30 ÁRA
Nikkan á ferð
HVERT TÆKIFÆRI NOTAÐ Hér er gripið í nikkurnar á Húnavöllum í
hópferð félagsins. MYND/SIGURÐUR ÓLAFSSON