Fréttablaðið - 04.05.2008, Síða 18
2 sport
F jölnir var af mörgum talið lið ársins á síðasta tímabili þrátt fyrir að það hafi endað
í þriðja sæti 1. deildar. Grafar-
vogspiltar tryggðu sér sæti í efstu
deild í fyrsta skipti í sögu félags-
ins og stimpluðu sig inn sem eitt
besta sóknarlið landsins með því
að skora 61 mark í 1. deildinni,
sem gera rétt tæplega þrjú mörk
að meðaltali í leik. Bikarævintýri
félagsins var jafnframt ótrúlegt
þar sem Fjölnir sló Landsbanka-
deildarlið Fylkis út úr undanúr-
slitunum og þáverandi Íslands-
meistarar FH höfðu svo í fullu tré
við Fjölni í framlengdum úrslita-
leik sem tapaðist að lokum.
Gríðarlegur uppgangur í Graf-
arvoginum hefur orðið til þess að
Fjölnir hefur unnið sig upp í efstu
deild úr þeirri þriðju á aðeins sex
árum en næsta tímabil verður
fjórða tímabil þjálfarans, Ásmund-
ar Arnarssonar, með liðið.
Ásmundur tók við Fjölni fyrir
tímabilið 2005 og skilaði liðinu í
fjórða sæti í 1. deildinni en tíma-
bilið 2006 varð 3. sætið niðurstað-
an og Fjölnir rétt missti af sæti í
efstu deild eftir harða baráttu við
HK. Eftir frábært tímabil hjá
Fjölni í fyrra er Ásmundur að
vonum fullur tilhlökkunar fyrir
komandi tímabil í Landsbanka-
deildinni. „Þetta tímabil leggst
mjög vel í mig og fram undan er
spennandi verkefni fyrir nýtt
félag í efstu deild. Við erum búnir
að fá til okkar nokkra nýja leik-
menn og það hefur gengið svona
upp og ofan að fá þá til að aðlagast
leik okkar. Við höfum hins vegar
náð ágætisúrslitum á undirbún-
ingstímabilinu og erum því til-
tölulega brattir upp á framhaldið
að gera,“ sagði Ásmundur, sem
vonast til þess að leikgleðin, sem
hefur einkennt Fjölnisliðið, verði
einnig til staðar næsta sumar.
„Það hefur verið einstaklega góð
stemning og leikgleði í liðinu und-
anfarin ár og þá sérstaklega í
fyrra þegar gekk svona vel og ég
vona að við náum að halda áfram
á sömu braut í efstu deild þótt á
móti blási og Landsbankadeildin
sé erfiðari. Markmiðið er að hafa
gaman af þessu og koma með leik-
gleðina inn í mótið og tryggja það
að Fjölnir haldi sæti sínu í efstu
deild,“ sagði Ásmundur að lokum.
Fjölnir hefur eins og áður segir
fengið til sín nokkra nýja leik-
menn fyrir komandi átök í efstu
deild. Meðal þeirra eru reynslu-
boltarnir Óli Stefán Flóventsson
og Ágúst Gylfason og hlakka þeir
til þess að hjálpa Fjölni í barátt-
unni í sumar. „Frábær sóknarleik-
ur hefur verið aðalsmerki Fjölnis
undanfarin ár, þar sem megin-
reglan um að skora meira en and-
stæðingurinn hefur ráðið ríkjum,
en þrátt fyrir að það sé góð hugs-
un út af fyrir sig er erfiðara að
vinna leiki í efstu deild ef þú færð
á þig tvö til þrjú mörk. Þjálfarinn
er því búinn að vera að vinna
mikið í varnarleiknum fyrir kom-
andi tímabil og reynt að leggja
hann betur upp þar sem liðið er nú
þegar hættulegt og hratt fram á
við og getur alltaf skorað mörk.
Með bættum varnarleik vonumst
við því til þess að eiga stöðugt og
gott tímabil og menn eru bara
bjartsýnir á að það takist,“ sagði
Ágúst og Óli Stefán tekur í sama
streng. „Til þess að ná árangri í
efstu deild þarf að vera með
skipulagðan og agaðan varnarleik
og ég tel að við séum á réttri leið
með þeirri vinnu sem hefur verið
lögð í til að bæta varnarleik liðs-
ins. Við höfum verið að spila við
lið eins og Val, FH og KR í vetur
og gengið nokkuð vel gegn þeim
og þó svo að um æfingaleiki hafi
verið að ræða gefa þeir okkur
ákveðna mynd af því sem koma
skal. Við vitum alveg að við getum
gert ýmislegt ef allt verður í topp-
standi hjá okkur,“ sagði Óli Stefán
að lokum.
MEÐ LEIKGLEÐINA AÐ VOPNI Í
LANDSBANKADEILDINNI
Fjölnir er eitt yngsta íþróttafélag landsins, stofnað árið 1988, og leikur í
sumar sitt fyrsta tímabil í efstu deild í fótbolta. Frábær sóknarleikur og leik-
gleði hefur einkennt Fjölni á undanförnum árum og liðið á örugglega eftir
að setja svip sinn á Landsbankadeildina næsta sumar. Markmið þess er þó
eðlilega til að byrja með að tryggja sæti sitt í efstu deild.
Eftir Ómar Þorgeirsson
Nýju leikmennirnir Óli Stefán Flóventsson og Ágúst Gylfason rífa hér í keppnistreyju Fjölnis númer sjö sem Pétur Georg Markan
hefur leikið í undanfarin ár. Að endingu létu þó öðlingspiltarnir, Óli Stefán og Pétur Georg, sjöuna eftir til handa aldursforsetan-
um Ágústi sem skartar henni í sumar. MYND/ARNÞÓR
Þ
að er ekki bara hinn almenni þjóðfélagsþegn
sem finnur fyrir slæmu efnahagsástandi
þessa dagana. Íþróttafélögin á Íslandi finna
einnig rækilega fyrir því að einstaklingar og
fyrirtæki eru að draga saman seglin og það
mun líkast til hafa sín áhrif á félögin.
Í rauninni má segja að gegndarlausu launafylleríi
síðustu ára sé lokið og vonandi eru félögin í stakk
búin til þess að mæta timburmönnunum.
Það er ekkert launungarmál að launin í íslenska
boltanum hafa farið verulega hækkandi í góðærinu
síðustu árin og á köflum hafa launamálin farið út í
algjört rugl.
Mörg stærstu félög landsins hafa verið myndar-
lega styrkt af stórfyrirtækjum og einnig hefur
munað verulega um fjárhagslegan stuðning fjár-
sterkra einstaklinga. Aðstæður þessara einstaklinga
og fyrirtækja eru allt aðrar í dag en þær voru fyrir
nokkrum mánuðum og það er samdóma álit þeirra
manna sem ég hef rætt við að félögin gætu fundið
verulega fyrir kreppunni á næstu mánuðum. Félögin
segjast mörg hver þegar finna fyrir breyttum
aðstæðum og fyrirtæki hafa nú þegar byrjað að
segja upp styrktarsamningum við íþróttafélög.
Þeir sem eru á hvað bestu samningunum í dag
mega búast við því að koma næst að samningaborð-
inu á allt öðrum forsendum en áður. Launin munu
lækka líkt og Börkur Edvardsson, formaður
knattspyrnudeildar Vals, spáði svo réttilega fyrir
um í þættinum Utan vallar á Sýn fyrr í vetur.
Fjárhagsvandræði félaganna munu þó örugglega
ekki skemma fyrir bráðskemmtilegu knattspyrnu-
sumri sem er fram undan.
Ég held að það sé óvenju mikil tilhlökkun hjá
knattspyrnuunnendum núna enda í fyrsta skipti
keppt í tólf liða deild. Loksins, loksins! Það þýðir
fleiri leikir, meira fjör og vonandi betri knattspyrna.
Það hefur verið rík tilhneiging hjá félögum
síðustu ár að einblína á varnarleik en spekingar
vonast til þess að með stærra móti og fleiri leikjum
freistist lið til þess að taka meiri áhættu, koma
framar á völlinn og spila skemmtilegri knattspyrnu.
Hvort þeir spádómar eigi eftir að ráðast verður að
koma í ljós.
Íslandsmeistarar Vals eru liðið til að sigra í ár.
Sveinar Willums Þórs virðast vera með langsterk-
asta liðið skömmu fyrir mót. Hafa farið á kostum í
Lengjubikarnum og rúllað hverju liðinu á fætur
öðru upp. Það sem meira er þá spilar Valur leiftr-
andi skemmtilegan sóknarleik. Tek sixpensarann
ofan fyrir því. Það verður spennandi að fylgjast með
því hvort Heimir Guðjónsson nái að fylgja eftir
góðum árangri Ólafs Jóhannessonar með FH-liðið og
Logi Ólafsson er síðan með virkilega spennandi lið
vestur í bæ. Svo má ekki gleyma Guðjóni og ÍA.
Annars er von mín sú að deildin verði jafnari nú
en oft áður. Það eru fleiri góð lið í deildinni í ár en
síðustu ár og lið eins og Breiðablik og Fylkir gætu
hæglega barist grimmilega við þau lið sem flestir
spá bestu gengi.
Gleðilegt knattspyrnusumar.
Knattspyrnan fi nnur
fyrir kreppunni
FRÁ RITSTJÓRA
Henry Birgir
Gunnarsson
Í rauninni
má segja
að gegndar-
lausu
launafylleríi
síðustu ára
sé lokið og
vonandi
eru félögin
í stakk búin
til þess að
mæta timb-
urmönnun-
um.
Forsíðumyndina tók Anton Brink af
Guðjóni Þórðarsyni og bræðrunum
Þórði Guðjónssyni, Atla Guðjónssyni
og Birni Bergmann.
Útgefandi: 365.
Ritstjóri: Henry Birgir Gunnarsson
henry@frettabladid.is.
Blaðamenn: Óskar Ófeigur Jónsson
ooj@frettabladid.is, Ómar Þorgeirsson
omar@frettabladid.is
Útlitshönnun: Kristín Agnarsdóttir
kristina@frettabladid.is
Auglýsingar; Stefán P. Jones,
spj@frettabladid.is
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM ÍÞRÓTTIR ]
Sport
maí 2008
VALSFJÖLSKYLDA
INGI BJÖRN ALBERTSSON
ER BÆÐI MEÐ SONINN
OG TENGDASONINN Í VAL
SPORT FÉKK AÐ FYLGJAST
MEÐ ÞVÍ ÞEGAR GUÐJÓN
ÞÓRÐARSON SENDI LEIK-
MENN ÍA Í ÍSKALT ÍSBAÐ.
GUÐJÓN SEGIR BAÐIÐ
GEFA GÓÐA RAUN OG
ÞAÐ FARI EKKI Í
FRÍ Í SUMAR
ÍSBAÐIÐ
FRÆGA
ENGIN PRESSA
LOGI ÓLAFSSON SEGIR
AÐ KR SÉ AÐ BYGGJA
TIL FRAMTÍÐAR
GAMLIR EN GÓÐIR
SÓKNARMENN FH ELDAST
EN EIGA NÓG EFTIR Sport
Fjölnir var með mjög ungt og til-
tölulega reynslulítið lið í fyrra
og þjálfarinn Ásmundur Arnars-
son fór ekki leynt með að hann
sóttist sérstaklega eftir því fyrir
tímabilið í sumar að fá reynslu-
meiri leikmenn til félagsins.
„Við lögðum mikið kapp á að fá
til okkar leikmenn með reynslu
af því að spila í efstu deild og
það gekk ágætlega,“ sagði
Ásmundur sem fékk meðal
annarra reynsluboltana Óla
Stefán Flóventsson og Ágúst
Gylfason.
„Óli Stefán og Gústi
gefa okkur þessa
reynslu sem
vantaði ef til
vill í liðið
og þeir eru
báðir mikl-
ir leiðtogar
á vellinum
og gera aðra
leikmenn í
kringum sig betri
þegar þeir eru með. Þeir eru
líka skemmtilegir og falla vel
inn í hópinn og það er mikil-
vægt. Ég reikna með því að láta
spila Gústa aftarlega á miðjunni
og það er alveg á hreinu að hann
getur orðið lykilmaður hjá okkur
ef hann verður laus við þau
meiðsli sem hafa verið að plaga
hann síðustu ár. Fyrir utan þá
ómetanlega reynslu sem Gústi
býr yfir er hann með mikla
sendinga- og skotgetu og
les leikinn mjög vel. Óli
Stefán verður að öllum lík-
indum í öftustu víglínu þar
sem leiðtoga- og skipu-
lagshæfileikar hans nýt-
ast vel. Líkt og Gústi
les hann leikinn mjög
vel og er enn fremur
með mikinn karakter
og baráttuvilja eins
og menn þekkja í
Grindavík,“ segir
Ásmundur um nýja
liðsmenn Fjölnis.
REYNSLUNNI RÍKARI
„Ég sá það fyrst á visir.is“
Mótmælin harðna
...ég sá það á visir.is