Fréttablaðið - 04.05.2008, Page 24
8 sport
Það vakti gríðarlega athygli fyrir
um einu ári þegar Guðjón Þórðar-
son, þjálfari ÍA, ljóstraði því upp að
hann sendi alla leikmenn síns liðs í
ísbað nokkrum sinnum í viku. Hafði
Guðjón fengið til afnota forláta
fi skikar sem hann fyllti af vatni og
klaka og máttu leikmenn gera sér
að góðu að stökkva ofan í baðið og
dúsa þar í að minnsta kosti tvær
mínútur hverju sinni. Guðjón sendir
strákana í slíkt bað eftir allar erfi ð-
ar æfi ngar, eða 4-5 sinnum í viku.
Á síðasta undirbúningstímabili hafði Guðjón karið utandyra en eins og menn ættu að muna var sá vetur
ákaflega kaldur og harður. Ísböðin nutu
þar af leiðandi engra sérstakra vinsælda
hjá drengjunum. Guðjón sá aumur á þeim
fyrir næsta undirbúningstímabil og færði
karið góða inn.
„Það fara allir í baðið upp að eyrum og
svo væla þeir og skæla og halda því fram
að vatnið sé kaldara en það var í fyrra. Ég
hef reyndar sýnt það mannúðarmerki að
færa karið inn í hús. Minn veikleiki ligg-
ur í því að ég er allt of linur,“ sagði Guð-
jón léttur og hló dátt. „Það skal samt ját-
ast að það var hálfnöturlegt á köflum í
fyrra þegar strákarnir fóru ofan í karið
úti og það var frost og brjálað veður.“
Guðjón mun ekkert gefa eftir með ísböð-
in í sumar og leikmenn ÍA þurfa meðal
annars að dýfa sér ofan í eftir leiki.
„Þangað leitar klárinn þar sem hann er
kaldastur. Það stakk einn af eftir æfingu
án þess að fara ofan í og hann sagðist hafa
fundið mikinn mun á sér að hafa ekki
tekið baðið,“ sagði Guðjón en Skagamenn
hafa æft vel í vetur. Þeir eru fimm sinn-
um í viku í Höllinni og svo lyfta þeir með
því.
Sá sem hefur verið lengst ofan í ísbað-
inu er markvörðurinn Trausti Sigur-
björnsson, en hann hefur legið í karinu
samfleytt í sex mínútur. Það er talsvert
lengri tími en hjá næsta manni á eftir.
ER ORÐINN ALLT OF LINUR
ÚFF HVAÐ ÞETTA ER KALT Þórður Guðjónsson reynir að komast ofan í ísbaðið á meðan Björn Bergmann fer með bænirnar áður en hann fer ofan í. SPORT/ANTON
Það er engin elsku mamma í þjálfun hjá Guðjóni Þórðar-
syni. Því hafa margir fengist að kynnast um árin og nú
síðast hið unga lið Skagamanna. Guðjón hefur haft þann
siðinn á síðan hann tók við að skella leikmönnum í ísbað
í fi skikari nokkrum sinnum í viku og þjálfarinn efast ekki
um að það sé að skila sér. Sport skellti sér á Skagann og
fylgdist með athöfninni.
EFTIR HENRY BIRGI GUNNARSSON