Fréttablaðið - 04.05.2008, Page 36
ATVINNA
SUNNUDAGUR 4. maí 2008 2012
Menntasvið
Eftirfarandi störf í grunnskólum Reykjavíkur
eru laus nú þegar:
Fellaskóli, Norðurfelli 17 - 19, sími 411 7530
• Skólaritari
Langholtsskóli, Holtavegi 23, sími 553 3188
• Skólaliði
Ekki er um tæmandi upptalningu lausra starfa að ræða.
Öll laus störf á Menntasviði eru auglýst á www.reykjavik.
is/storf. Þar er að fi nna frekari upplýsingar um hverja stöðu
og umsóknarfresti. Þar er einnig hægt að sækja um.
Upplýsingar veita skólastjórar og aðstoðarskólastjórar í
viðkomandi skólum. Laun eru skv. kjarasamningi
Reykjavíkurborgar við viðkomandi stéttarfélög.
Störf í grunnskólum
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að
vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.
is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 411 1111 færð þú allar upplýsingar um þjónustu
og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
ÖRYGGISVÖRÐUR
SECURITY GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu öryggisvarðar lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 18. Maí 2008. Frekari upplýsingar er að fi nna á
heimasíðu sendiráðsins: http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the position of
Security Guard. The closing date for this postion is May 18, 2008. Application
forms and further information can be found on the Embassy’s home page:
http://iceland.usembassy.gov/vacancies.html
Please send your application and resumé to : reykjavikvacancy@state.gov
Ás styrktarfélag er öfl ugt félag byggt á gömlum
og traustum grunni Styrktarfélags vangefi nna.
Undir stjórn Áss styrktarfélags eru reknar
dagþjónustur eins og Bjarkarás, Lækjarás,
Lyngás og Ás-vinnustofa ásamt búsetuþjónustu.
Mikill metnaður er lagður í gæði þjónustunnar
og hagur einstaklingsins ávallt hafður í fyrirrúmi.
Við leitum að traustu og hressu fólki til starfa sem
fyrst. Um er að ræða fjölbreytta vinnu með
skemmtilegu fólki.
Ás styrktarfélag hefur að geyma framsækinn
starfsmannahóp og góðan starfsanda sem skilar
sér í faglegu og metnaðarfullu starfi .
Nánari upplýsingar veitir
Laufey Gissurardóttir, starfsmannastjóri,
netfang:laufey@styrktarfelag.is,
síma 414-0500
Einnig er hægt að nálgast upplýsingar á
www.styrktarfelag.is
STÖRF Í BOÐI:
Langagerði 122
Nýtt íbúðasambýli sem opnar nú í maí
næstkomandi. Okkur vantar þroskaþjálfa, félagsliða, sjúkraliða og
stuðningsfulltrúa til starfa nú þegar.
Dagvinna og / eða vaktavinna í boði, fjölbreytt starfshlutfall 50%
og / eða 100% störf.
Nánari upplýsingar gefur Hrefna Sigurðardóttir forstöðumaður,
netfang:hrefnas@styrktarfelag.is, sími 551-4478
Lyngás
óskar eftir starfsmanni í eldhús í sumar. Um er að ræða 100% starf
í dagvinnu. Matreitt er fyrir um 50-60 manns. Lyngás er sérhæft
dagheimili fyrir fötluð börn og ungmenni á aldrinum 1-18 ára. Lyngás
er staðsett í Safamýri 5 og er opið frá 8.00-16.00 á virkum dögum.
Um er að ræða sumarstarf frá miðjum maí eða eftir nánara sam-
komulagi.
Allar nánari upplýsingar veita Birna Björnsdóttir og Hrefna Þórar-
insdóttir í síma 553-8228 alla virka daga kl. 9.00 -16.00.
Einnig vantar okkur sumarafl eysingar í búsetuþjónustu
Leikskólasvið
Laus er staða aðstoðarleikskólastjóra í leikskólanum
Heiðarborg, Selásbraut 56.
Heiðarborg er fjögurra deilda leikskóli í grónu hverfi í Selásn-
um þar sem stutt er í ósnortna náttúru eins og Elliðaárdal-
inn og Rauðavatn. Í leikskólanum er lögð áhersla á leikinn,
málrækt, hreyfi ngu og skapandi starf. Nánari upplýsingar um
leikskólann er að fi nna á heimasíðunni www.heidarborg.is.
Helstu verkefni aðstoðarleikskólastjóra eru að vinna að dag-
legri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins í
samvinnu við leikskólastjóra.
Menntunar- og færnikröfur:
• Leikskólakennaramenntun áskilin
• Framhaldsmenntun og reynsla af stjórnun æskileg
• Góð tölvukunnátta
• Sjálfstæð vinnubrögð
• Samskiptahæfni, skipulagshæfi leikar, frumkvæði, áhugi og
metnaður í starfi
Upplýsingar veita Arndís Árnadóttir leikskólastjóri í síma 663-
4749 og Auður Jónsdóttir mannauðsráðgjafi á Leikskólasviði í
síma 411-7000.
Umsóknum fylgi yfi rlit yfi r nám og störf. Umsóknir skulu
berast til Leikskólasviðs Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 1, 101
Reykjavík eða á netfangið audur.jonsdottir@reykjavik.is .
Umsóknarfrestur er til 19. maí 2008.
Laun eru skv. kjarasamningi LN við KÍ vegna FL.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag
sem borgin er. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/storf. Hjá símaveri Reykjavíkurborgar,
4 11 11 11 færð þú allar upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn sem þú þarft að ná í.
Aðstoðarleikskólastjóri í Heiðarborg
Sunnulækjarskóli
Skóli með áherslu á þróunarstarf
og nýbreytni í starfsháttum
auglýsir eftir starfsfólki
Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir kennurum
til starfa veturinn 2008-2009
Sunnulækjarskóli
Kennara vantar til starfa við Sunnulækjarskóla á Selfossi
næsta haust. Skólinn var stofnaður haustið 2004 og mun
vaxa um einn árgang á ári næstu ár. Skólaárið 2008-2009
verða um 400 nemendur í skólanum í 1. - 8. bekk. Sérdeild
Suðurlands er deild í Sunnulækjarskóla.
Í skólanum er lögð áhersla á sveigjanlega og fjölbreytta
kennsluhætti, einstaklingsmiðað nám, teymisvinnu kennara,
ábyrgð nemenda og góða samvinnu allra sem að skóla-
starfi nu koma.
Umsjónarkennara vantar á yngsta, mið- og elsta stig.
Einnig vantar sérkennara og kennara til að kenna tónmennt,
heimilisfræði, íþróttir, dans og smíðar. Þá vantar dönsku-
og enskukennara. Ýmist getur verið um heilar stöður eða
hlutastörf að ræða.
Umsækjandi þarf að hafa kennarapróf, góða skipulags-
hæfi leika og mikla hæfni í mannlegum samskiptum. Reynsla
af teymisvinnu og áhugi á þróunarstarfi eru mikilvægir
eiginleikar.
Nánari upplýsingar má fá hjá skólastjóra í síma 480 5400
eða birgir@sunnulaek.is og á heimasíðu skólans
www.sunnulaekjarskoli.is
Umsóknarfrestur er til 26. maí næstkomandi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitar-
félaga og KÍ.
Umsókn með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðilum berist Birgi Edwald, skólastjóra,
birgir@sunnulaek.is . Einnig er hægt að senda umsóknir á
heimilisfang skólans.