Fréttablaðið - 04.05.2008, Page 66
38 sport
Logi Ólafsson stýrir
skútu Vesturbæjarstórveldisins KR í
sumar en hann tók við liðinu á seinni
stigum síðasta tímabils þegar Teitur
Þórðarson var rekinn eftir hörmulegt
gengi.
T alsverðar breytingar hafa orðið á KR-liðinu síðan Logi tók við og liðið tölu-vert yngra en það var á síðustu leiktíð
enda eldri leikmenn annað hvort hættir eða
horfnir á braut.
„Við erum mjög vel undirbúnir fyrir sum-
arið þó svo að vélin hafi talsvert verið að
hökta á síðustu vikum. Það er samt ekki endi-
lega slæmt því það minnir okkur á hvar við
þurfum að gera betur á vellinum. Árangur
síðustu leikja hefur reyndar eitthvað að gera
með æfingaálag en við munum létta á því
fyrir mótið,“ sagði Logi. Hann hefur síðustu
vikur verið án þriggja sterkra leikmanna –
Grétars Ólafs Hjartarsonar, Atla Jóhanns-
sonar og Péturs Marteinssonar – sem eru þó
allir að skríða á fætur um þessar mundir.
„Við vitum að við eigum töluvert í land
með að ná toppnum og vantar svolitla leikæf-
ingu. Við fórum talsvert aðra leið í undirbún-
ingi en áður og lögðum upp með að styrkja
líkamlegt atgervi leikmanna þar sem allt var
miðað við einstaklinginn. Svo vorum við einn-
ig með séræfingar sem Rúnar Kristinsson sá
um ásamt Sigursteini Gíslasyni. Við sleppt-
um götuhlaupunum þetta árið og úthalds-
þjálfunin hefur þess í stað farið fram inni á
vellinum og við teljum vel hafa tekist til þar,“
sagði Logi en hann var með þýskan þrek-
þjálfara í því að styrkja líkamlega atgervið.
Logi er búinn að fá fimm mjög sterka leik-
menn til félagsins og hann er ánægður með
liðsstyrkinn.
„Þeir hafa komið sterkir inn og staðið sig
virkilega vel. Þetta eru allt mjög góðir leik-
menn. Grétar að koma heim, Viktor var frá-
bær hér á Íslandi síðast og Jónas Guðni einn
besti miðjumaður landsins. Gunnar Örn og
Guðjón hafa ekki mikla reynslu í efstu deild
en ég hef mikla trú á þeim tveimur. Við höfum
meðvitað farið í þá vinnu að yngja liðið enda
eru nokkrir af eldri leikmönnum liðsins ekki
lengur í herbúðum KR. Þetta er að mörgu
leyti nýtt lið,“ sagði Logi en eru þetta ekki of
miklar breytingar á milli ára?
„Það má kannski segja að svona stökk-
breytingar geti reynst erfiðar viðfangs. Við
erum reyndar ekki að tjalda til einnar nætur
heldur ætlum við að búa til gott lið í Vestur-
bænum á næstu þremur árum og þetta er
fyrsta skrefið í þá átt. Að mínu mati er raun-
hæft að ætlast til þess að við gerum betur en
í fyrra og við viljum meina að KR sé lið sem
eigi að vera í efri hlutanum og hafa áhrif á
gang mála í deildinni. Við viljum vera í efri
hlutanum og stefnum að því. Það er samt
kannski óraunhæft að ætlast til þess að við
sláumst við bestu liðin alveg á toppnum á
þessu ári,“ sagði Logi.
Vinnuumhverfið í Vesturbænum hefur á
stundum verið erfitt og þolinmæði stjórnar-
manna, sem og stuðningsmanna, oft af skorn-
um skammti. Logi segist ekki óttast pressuna
í Vesturbænum.
„Það eru allir samstiga hjá KR og horfa til
lengri tíma og menn vita hvað þeir eru að
fara út í. Það verður væntanlega meiri þolin-
mæði í Vesturbænum núna en oft áður. Engu
að síður veit ég að það eru alltaf menn í kring-
um KR sem krefjast þess að KR sé alltaf í
fyrsta sæti. Stuðningsmennirnir eru kröfu-
harðir og við reyndar líka en menn verða að
vera raunsæir. Þetta er ungt lið en var orðið
svolítið eins og félag eldri borgara í fyrra. Til
að mynda eru bakverðirnir okkar báðir í U-
19 ára landsliðinu,“ sagði Logi en hvernig fót-
bolta ætlar hann að láta KR spila í sumar?
„Við viljum spila 4-4-2 með ýmsum útfærsl-
um. Ég held að við séum með lið sem getur
spilað öflugan varnarleik og sótt hratt líka.
Einnig höfum við innan okkar vébanda menn
sem eru flinkir að spila sig úr flóknum stöð-
um. Þetta verður kannski ekki beint brasil-
ískur bílastæðabolti en við reynum að finna
milliveg á milli hans og boltans sem
Wimbledon spilaði,“ sagði Logi að lokum.
EKKI AÐ TJALDA
TIL EINNAR NÆTUR
LOGI ÓLAFSSON, þjálfari KR, segir ekki mikla pressu á KR að berjast efst á toppnum
í sumar. Miklar breytingar hafa orðið á KR-liðinu í vetur – fi mm sterkir og ungir leik-
menn komnir til félagsins en eldri leikmenn hafa horfi ð á braut.
EFTIR HENRY BIRGI GUNNARSSON
GÓÐUR LIÐSSTYRKUR Logi Ólafsson
stýrir KR frá upphafi sumars og hann
er ánægður með liðsstyrkinn sem hann
hefur fengið. Nýju mennirnir eru þeir
Viktor Bjarki Arnarsson, Gunnar Örn
Jónsson, Guðjón Baldvinsson, Jónas
Guðni Sævarsson og Grétar Sigfinnur
Sigurðsson.
SPORT/STEFÁN
LJÚFT LÍF Í KR Nýju
strákarnir hjá KR
kunna vel við sig
hjá Vesturbæjar-
risanum.
SPORT/STEFÁN