Fréttablaðið - 04.05.2008, Síða 68
12 sport
GULLDRENGURINN
Á HARLEY
Breiðablik var eitt skemmti-
legasta lið Landsbanka-
deildarinnar á síðustu
leiktíð. Spilaði oft á
tíðum leiftrandi fótbolta
en vantaði sárlega mann
til þess að klára færin
og leikina. Það sást
best á því að Blikar gerðu
ein níu jafntefl i í deild-
inni.
K ópavogsliðið saknaði sár-lega gulldrengsins síns, Marels Baldvinssonar,
sem varð markakóngur deildar-
innar árið 2006 en hélt í kjölfarið
utan til Molde í Noregi. Marel er
því kominn aftur heim og Blikar
binda vonir við að þar með sé
síðasta púslið komið sem
vantaði til að liðið gæti bar-
ist á toppi deildarinnar. „Það
er mjög gaman að vera kominn heim,“
sagði Marel, sem gerir sér grein fyrir
því að miklar væntingar eru gerðar til
hans en finnur hann fyrir pressu?
„Nei, ég get nú ekki sagt það beint.
Það er samt gaman með Blikana núna
að í fyrsta skipti held ég að séu gerðar
væntingar til liðsins. Ég veit að það var
talað um að liðið vantaði mig í fyrra og
það verða þá engar afsakanir núna
fyrst ég er kominn,“ sagði Marel.
Hann fékk gullskóinn fyrir að skora
ellefu mörk síðast í deildinni og Marel
stefnir á að gera enn betur í sumar, sér-
staklega þar sem nú er búið að fjölga
leikjum í deildinni.
„Það ætti að vera auðveldara að
skora fleiri mörk núna þar sem fleiri
leikir er í boði. Ég ætla nú að fara var-
lega í allar yfirlýsingar en stefni engu
að síður á að gera betur núna en síð-
ast,“ sagði Marel, sem líst vel á Blika-
liðið í sumar. „Ég sé enga ástæðu fyrir
öðru en að við blöndum okkur í topp-
baráttuna,“ sagði Marel, sem hefur
verið óheppinn með meiðsli í gegnum
tíðina en er bjartsýnn á að geta spilað
mikið í sumar.
„Ég er bjartsýnn á að geta spilað alla
leikina í sumar. Auðvitað geta óhöpp
komið fyrir en ég er alveg í standi til að
spila í allt sumar. Ég hef verið í vand-
ræðum með hnéð á mér í gegnum tíð-
ina og það er ekkert í topplagi en þó
nógu gott til þess að ég geti spilað.“
Marel var í eitt og hálft ár hjá Molde
en leið ekki vel þar og vildi komast
heim. Opinskátt viðtal birtist síðan við
Marel í Fréttablaðinu þar sem hann
bar Molde ekki vel söguna, sagði bæinn
meðal annars vera draugabæ. Norskir
fjölmiðlar gripu viðtalið á lofti og mikið
fár varð í Noregi vegna málsins.
„Maður verður greinilega að passa
sig á því hvað maður segir. Það getur
allt orðið vitlaust,“ sagði Marel léttur
þegar hann var beðinn um að rifja upp
fárið sem varð vegna viðtalsins.
„Það varð allt vitlaust út af þessu.
Smá klausa hér heima varð að stórmáli
í Noregi. Það kom opna í VG og ég veit
ekki hvað. Það kom mér verulega á
óvart hvað menn gerðu mikið mál út af
þessu. Það var mjög sérstakt að lenda í
þessu. Ég varð nú samt ekki fyrir neinu
beinu aðkasti. Ég mætti í viðtal hjá
staðarblaðinu og útskýrði mín mál til
þess að lægja öldurnar og eftir það
hægðist á hasarnum,“ sagði Marel.
Orðrómur var uppi um að Marel
hefði viljandi haft stór orð uppi í
Fréttablaðinu til þess að auðveldara
væri fyrir hann að losna frá Molde,
sem hann var samningsbundinn eitt ár
í viðbót.
„Nei, það var ekkert slíkt í gangi.
Það var ekkert plan hjá mér og ég veit
ekkert hvort þetta viðtal hafi hjálpað
mér að losna. Málið var bara að mér og
konunni leið ekki vel og vildum komast
heim. Ég held að báðir aðilar hafi áttað
sig á því að það var ekkert vit í því að
halda óánægð-
um manni,“
sagði
Marel.
MARLEY DAVIDSON Marel tekur sig óneitanlega vel út á Harley-mótorhjólinu sínu. Hann mun prjóna í gegnum varnir andstæðinganna á vellinum fyrir aftan. SPORT/VALLI
„Það er ekkert launungarmál að okkur
vantaði mann eins og Marel í fyrra.
Hann hefur sýnt að hann getur skorað
á allan hátt í deildinni hér heima. Er
mjög fjölhæfur. Við lendum í því í
fyrra að Prince var að spila sig inn í
deildina, Magnús Páll var óvæntur
bónus og Kristinn Steindórs auðvitað
ungur á uppleið. Í Marel fáum við
mann sem á að geta skorað tíu mörk
eða fleiri í deildinni,“ sagði Ólafur
Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks, en
Marel er eini leikmaðurinn sem hefur
bæst við leikmannahóp Breiðabliks í
vetur.
„Ég geri mér væntingar um að hann
skori tíu til tólf mörk í sumar. Það má
segja að hann sé púslið sem okkur
vantaði. Marel var eini maðurinn sem
ég vildi fá og ég fékk hann, sem er
frábært. Þetta sumar verður frá-
brugðið síðasta sumri því nú verða
gerðar væntingar. Menn taka okkur
alvarlegar núna en í fyrra og mér
heyrist menn reikna með
okkur fyrir ofan miðja deild.
Ég tel okkur vera menn til að
standa undir því og stefnan er að
enda ofar en í fyrra,“ sagði Ólafur
en hans lið gerði níu jafntefli í
fyrra sem var eðlilega allt of
mikið.
MAREL BALDVINSSON, markaskorari og mótorhjólatöff ari, er kominn aftur í græna búninginn og
hann stefnir á að spóla upp varnir andstæðinganna í sumar. Marel varð markakóngur deildarinnar
síðast er hann lék á landinu og miklar væntingar eru gerðar til hans í sumar.
EFTIR HENRY BIRGI GUNNARSSON
Á AÐ GETA SKORAÐ TÍU MÖRK EÐA FLEIRI Í SUMAR
Marel Jóhann
Baldvinsson
Hæð: 1,91 m
Þyngd: 91 kg
Staða: Framherji
Skónúmer: 45
Hvað hefurðu farið hratt á
Harleyinu: Of hratt
Hvað tekurðu í bekk:
Eitthvað á annað hundraðið
Hver er lengst í speglinum:
Guðmann í greiðslunni
Tanaðastur í liðinu:
Prinsinn
Skemmtilegast við Molde:
Ótrúleg náttúrufegurð
Leðinlegast við Molde:
Fjarvera frá vinum og ætt-
ingjum
Hvað varð um síða hárið
Það fór í frí