Fréttablaðið - 04.05.2008, Síða 74
18 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
D
agana 16.-18. maí
næstkomandi
gefst öllum áhuga-
sömum um danska
hönnun tækifæri
til að skoða nýjar
hliðar á Kaupmannahöfn. Dagarn-
ir heita Copenhagen Architecture
and Design Days (CphADD) og
eru nú haldnir þriðja árið í röð.
Eru þeir sannkölluð hönnunar-
veisla þar sem yfir 30 menningar-
stofnanir, arkitektastofur og fyr-
irtæki opna dyr sínar fyrir
almenningi og bjóða upp á ýmiss
konar skoðunarferðir, fyrirlestra
og sýningar. Gestir geta keypt
passa á aðeins tíu evrur og þar
með fengið aðgang að fjölbreyttri
og líflegri dagskrá. Dönsk hönnun
og arkitektúr á sér langa sögu og
undanfarin ár hefur Kaupmanna-
höfn öðlast nýjan sess sem ein af
helstu hönnunarborgum veraldar.
„Í gegnum CphADD getum við
veitt almenningi innsýn í það besta
sem Danmörk hefur upp á að bjóða
í þessum geira,“ útskýrir fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar, Mart-
in Bender, frá ferðamálaráðinu
Wonderful Copenhagen.
Ný og spennandi menningarhús
Allir þeir sem hafa áhuga á arki-
tektúr og menningu ættu að
kynna sér þau þrjú stórfenglegu
menningarhúsnæði sem reist
hafa verið á undanförnum árum
við hafnarlengjuna í Kaupmanna-
höfn. Den Sorte Diamant, eða
Svarti demanturinn, reis fyrir
níu árum og hýsir Konunglega
þjóðarbókasafnið ásamt kaffi-
húsi og frábærum veitingastað
sem nefnist Sören K. Þessi fal-
lega og framúrstefnulega bygg-
ing var hönnuð af arkitektateym-
inu Schmidt, Hammer og Lassen
og þar er samspil ljóss, rýmis og
lífrænna forma í fyrirrúmi. Nafn-
ið Svarti demanturinn er dregið
af sköpunarlagi byggingarinnar
sem er í formi demants sem svo
endurspeglast í sjónum. Árið
2005 voru dyr nýja danska óperu-
hússins opnaðar í tilkomumikilli
byggingu við höfnina. Húsið var
kostað af einu stærsta sjóflutn-
ingafyrirtæki Danmerkur, A.P.
Møller-Maersk, og var hannað af
arkitektinum Henning Larsen.
Hinum megin við vatnið, and-
spænis Óperunni, stendur hið
stórglæsilega Skuespilhus, ný
bygging Konunglega danska leik-
hússins, sem var opnuð í febrúar
síðastliðnum. Leikhúsbyggingin
hefur hlotið afar lofsamlega
dóma um heim allan og er ein-
staklega nútímaleg og norræn
sköpun arkitektanna Boje Lund-
gard og Lene Tranberg. Í fram-
tíðinni verður reist brú á milli
Óperuhússins og leikhússins,
sem mun styrkja menningar-
starfsemina enn frekar á þessum
fallega stað við höfnina.
Áræðið borgarskipulag
Vatn, rými og ljós eru í fyrirrúmi
hjá arkitektum sem hafa sett mark
sitt á danskan arkitektúr undan-
farin ár, en þar má nefna fræg
nöfn eins og Sir Norman Foster,
Henning Larsen, Jean Nouvel,
Daniel Libeskind og Zaha Hadid.
Nýtt borgarskipulag má sjá í
þremur lykilhverfum: Ørestad,
höfninni og í miðborginni. Ørestad
er á eyjunni Amager, þar sem
einnig er að finna Kastrup-flug-
völl, en nú er finnskt arkitekta-
teymi sem nefnist ARKKI að
skapa nýtt og spennandi hverfi
þar sem græn rými eru í fyrir-
rúmi. Náttúruperlan Kalvebod
Fælled er einmitt á Vestur-Ama-
ger en þar er hægt að stinga sér til
sunds, fara í bátsferð, í golf eða
fara í gönguferð í fallegum skóg-
um. Ørestad er sérstaklega hann-
að með tilliti til háskólanema og
fjölskyldna, en þangað flutti ein-
mitt danski tækniháskólinn ITU
inn í framúrstefnulega byggingu
hannaða af Henning Larsen. Í
Ørestad er verslunarkjarninn
Fields en þar má meðal annars
heimsækja nýjasta „Mekka“ hönn-
unar í Danmörku, verslunina Nor-
mann sem er kölluð hið „nýja Ill-
ums Bolighus fyrir nýja kynslóð“.
Horft til fortíðar
Meðal þeirra skemmtilegu mögu-
leika í boði á CphADD er heim-
sókn í herbergi 606 á Radisson
Royal SAS-hótelinu í miðborg
Kaupmannahafnar. Hótelið, sem
var umdeilt á sínum tíma, þar sem
það gnæfir yfir eldri byggingar
borgarinnar, var hannað af guð-
föður danskrar hönnunar, Arne
Jacobsen, árið 1960. Hann hannaði
allt frá byggingunni sjálfri niður í
húsgögnin, litapallettuna, hurðar-
húnana og hnífapörin sem síðar
voru notuð í mynd Kubricks „2001:
A Space Odyssey“. Á áttunda ára-
tugnum var miklum hluta af hönn-
un Jacobsens fargað en herbergi
606 fékk alltaf að vera óhreyft, og
almenningi og ferðamönnum gefst
kostur á að skoða þetta piparmynt-
ugræna „sixtís-herbergi“ og sjá
snilldarhönnun Jacobsens í öllu
sínu veldi, frá stólum eins og egg-
inu, svaninum og dropanum yfir í
færanleg ljós og hillusamstæður.
Hótelið var þó nýverið endurhann-
að með tilliti til anda Jacobsens og
þar má sjá húsgögn hans um allt í
aðeins nútímalegri uppfærslu.
Þetta fimm stjörnu hótel býður
einnig upp á sælkeraveitingastað-
inn Alberto K á tuttugustu hæð og
Café Royal á jarðhæð.
Upplýsingar um hönnunar-
dagana og dagskrá má finna á
www.cphadd.com
The House á Nýhöfn, ný hönn-
unarverslun sem býður upp á
það helsta í danskri hönnun,
meðal annars Jacobsen, Børge
Mogensen, Hans J. Wegner,
Nanna Ditzel, Poul Henningsen
og Verner Panton.
Paustian, hönnunarverslun við
höfnina. Verslunin er hönnuð
af Jørn Utzon, sem teiknaði
Óperuhúsið í Sydney, og býður
upp á danska og alþjóðlega
hönnun. Þar er einnig að finna
vinsælan veitingastað með sama
nafni þar sem er hægt að upplifa
sannkallaða veislu fyrir augu og
bragðlauka.
Fílahúsið Arkitektinn Norman
Foster hannaði þetta stórfenglega
rými fyrir fílana í dýragarðinum
og það opnar nú í júní, en það
er vel þess virði að skoða það að
utanverðu þangað til.
Listasafnið í Ordupgaard Við-
bygging listasafnsins er hönnuð
af íraska arkitektinum Zaha Hadid
og var opnuð árið 2005.
Danish Design Centre á HC
Andersens Boulevard var hannað
af Henning Larsen og þar er
að finna áhugaverðar sýningar
um allt sem tengist danskri og
alþjóðlegri hönnun.
FLEIRI STAÐIR TIL AÐ
UPPLIFA HÖNNUN:
Kastljósinu beint að arkitektúr
Dönsk hönnun hefur verið áberandi á heimsvísu undanfarna áratugi og hefur fengið óspart lof fyrir einfaldleika, gæði og fúnk-
ísstíl. Á síðustu árum hafa einnig sprottið upp stórfengleg menningarhús í Kaupmannahöfn ásamt nýjum hverfum sem borgaryf-
irvöld binda miklar vonir við. Anna Margrét Björnsson kynnti sér nýjustu perlur danskrar hönnunar.
KONUNGLEGA DANSKA LEIKHÚSIÐ Danir eru afar stoltir af hinu nýja Skuespilhus sem liggur við hafnarbakkann.
RANGSÆLIS FRÁ VINSTRI:
1. Radisson Royal SAS-hótelið í Kaupmannahöfn sem
Arne Jacobsen teiknaði árið 1960. 2. Nýja óperuhúsið við
hafnarbakkann, teiknað af Henning Larsen. 3. Stóra sviðið í
konunglega danska leikhúsinu en það er eins og stórfeng-
legur hellir. 4. Restaurant Jacobsen liggur í norðanverðri
Kaupmannahöfn og byggingin var einnig teiknuð af Arne
Jacobsen. 5. Arne Jacobssen, guðfaðir danskrar hönnunar
sést hér í herbergi á Radisson Royal SAS-hótelinu. 6. Nýjar
skrifstofubyggingar í Örestad-hverfinu í Kaupmannahöfn.
1
2
3
4 5
6