Fréttablaðið - 04.05.2008, Page 77
SUNNUDAGUR 4. maí 2008 21
Á sjötta tug flytjenda hafa skráð
sig í hljómsveitakeppnina Þorska-
stríðið sem útgáfufyrirtækið Cod
Music stendur fyrir. Talsmenn
fyrirtækisins eru hæstánægðir
með þátttökuna og hvetja fólk til
að halda áfram að senda þeim lög.
Lokað verður fyrir innsendingar
þriðjudaginn 6. maí og því þurfa
þeir sem ætla sér að taka þátt að
senda inn efni sem allra fyrst.
Senda skal tvö til fjögur lög á
heimasíðuna Cod.is. Hinn 16. maí
verður síðan tilkynnt hver sigur-
vegarinn er, og fær hann í sinn
hlut útgáfusamning við Cod
Music.
Á sjötta tug flytjenda
Réttarhöld yfir Jack Jordan, sem er sak-
aður um að hafa setið um Umu Thurman,
áreitt hana og beitt þvingunum, hófust í
New York í vikunni. Leikkonan líkir lífs-
reynslunni við martröð.
Uma Thurman bar sjálf vitni í réttarhöldunum á
fimmtudag, en áður höfðu meðal annars fyrrver-
andi aðstoðarkona hennar og foreldrar greint frá
þeim ofsóknum sem hún sætti af hálfu Jacks
Jordan. Joseph La Corte, sem aðstoðaði leikkonuna
með búninga við tökur á myndinni My Super Ex-
Girlfriend, greindi meðal annars frá því þegar
Jordan reyndi að ráðast inn í hjólhýsi Thurman á
tökustað. „Hendurnar á henni skulfu, hún var
grátbólgin og gat ekki setið kyrr,“ sagði La Corte
um atburðinn. Fyrrverandi aðstoðarkona Thur-
man, Lisa Grondin, sagði einnig frá því að álagið
vegna ásóknar Jordan hefði orðið til þess að
Thurman fór aftur að reykja.
Thurman bar vitni á fimmtudag, og sagði meðal
annars frá bréfi sem Jordan hafði sent henni. Í því
var teikning af opinni gröf, legsteini og manni sem
stóð á rakvélarblaði. Í bréfinu stóð meðal annars:
„Hendur mínar ættu að vera á líkama þínum öllum
stundum.“ „Ég missti mig gjörsamlega,“ sagði
Thurman. „Þetta var næstum því eins og martröð,
þetta var hræðilegt,“ sagði hún.
Leikkonunni bárust einnig nokkrir tölvupóstar
frá Jordan, þar sem hann talaði meðal annars um
börn hennar, þau Mayu og Levon, sem Uma á með
fyrrverandi eiginmanni sínum, Ethan Hawke. Í
einum pósti stóð „þú átt engin börn“ og talaði
Jordan um þau sem „ímyndun“. Í sama pósti
skrifaði Jordan um frásögn biblíunnar af því þegar
Abraham býr sig undir að fórna syni sínum, Ísak.
„Ég held ekki að nokkur móðir eða foreldri myndi
vilja að ókunnugur maður fengi börnin manns á
heilann, og sérstaklega að þau séu ekki til. Það var
hræðilegt fyrir mig,“ sagði leikkonan.
Foreldrar Umu greindu einnig frá reynslu sinni
af ofsóknum Jordans fyrir rétti í vikunni, og sögðu
meðal annars frá símtölum sem þeim bárust frá
Jordan. „Hann sagði mér að hann og dóttir mín
hefðu þekkst í fyrra lífi og þeim væri ætlað að
vera saman, að hann vissi þetta en ekki hún,“ sagði
Nena Thurman, móðir Umu, til dæmis.
Lögfræðingur Jordans, George Vomvolakis,
heldur því fram að hann hafi ekki gerst brotlegur
við lög að ásettu ráði, og eigi frekar heima á
geðsjúkrahúsi en í fangelsi. „Hann hugsar ekki
eins og þið og ég hugsum. Hann þekkir ekki
mörkin sem við þekkjum. Honum finnst þetta
rómantískt,“ segir Vomvolakis, sem heldur því
fram að Jordan hefði aldrei skaðað Umu, þar sem
hann elski hana.
Ef Jordan verður sakfelldur gæti hann átt yfir
höfði sér fangelsisvist í allt að eitt ár.
Sat um Umu Thurman
BAR VITNI Á FIMMTUDAGINN Uma Thurman bar vitni gegn
Jack Jordan, sem er sakaður um að hafa setið um hana og
áreitt að ýmsu leyti, fyrir rétti í New York á fimmtudaginn.
NORDICPHOTOS/GETTY
FORSÆTISRÁÐUNEYTI
NETRÍKIÐ ÍSLAND
RÁÐSTEFNA UT-DAGSINS 7. MAÍ 2008
Dagur upplýsingatækninnar verður haldinn 7. maí nk. Í
tilefni dagsins stendur forsætisráðuneytið, í samvinnu
við Skýrslutæknifélag Íslands, fyrir ráðstefnu undir
yfi rskriftinni Netríkið Ísland. Ráðstefnan verður haldin
á Hilton Nordica, miðvikudaginn 7. maí kl. 13:00-
16:15. Þar verður kynnt ný stefna ríkisstjórnarinnar
um upplýsingasamfélagið og nokkur lykilverkefni
sem unnið verður að á framkvæmdatíma stefnunnar.
Skráning og frekari upplýsingar á www.sky.is.
PO
RT
h
ön
nu
n
12:45 Skráning og afhending
ráðstefnugagna
13:00 Ávarp
Geir H. Haarde forsætisráðherra
13:15 Netríkið Ísland
Guðbjörg Sigurðardóttir
13:35 Tryggur - bylting í þjónustu
Tryggingastofnunar
Sigríður Lillý Baldursdóttir
Bragi L. Hauksson
13:55 Staða verkefnis um rafræn skilríki
Haraldur Bjarnason,
Rafræn skráning í fyrirtækjaskrá
Skúli Jónsson
14:15 Upplýsingatækni í menntun
– næstu skref
Sigurður Davíðsson
14:35 Kaffi hlé
14:55 Rafrænar sveitarstjórnar-
kosningar
Geir Ragnarsson
Rafræn þjónusta sveitarfélaga
Álfheiður Eymarsdóttir
15:15 Flutningstilkynningar milli
landa með aðstoð rafrænna
skilríkja
Þorsteinn Helgi Steinarsson
Þorvarður Kári Ólafsson
15:35 Persónulegt heilsufarsyfi rlit
og upplýsingamiðstöð
heilbrigðismála
Gunnar Alexander Ólafsson
15:55 Island.is 2012
Halla Björg Baldursdóttir
Rebekka Rán Samper
16:15 Ráðstefnuslit
Ráðstefnustjóri: Guðfi nna S. Bjarnadóttir alþingismaður
24.990
Alicante
Ashutosh Muni
AUKIN LÍFSGÆÐI – BETRA LÍF
helgarnámskeið 9.-11. maí nk.
Fjallað verður um:
– Andlega vellíðan og tilfinningalegt jafnvægi
– Hvernig við tökumst á við erfiðar tilfinningar á jákvæðan
hátt
– Hvernig við getum hlúð betur að okkur sjálfum og fjöl-
skyldunni í nútíma samfélagi
– Hvernig við sköpum aukin lífsgæði með andlegri iðkun
Ashutosh Muni er einstakur meistari jógavísindanna,
sem miðlar visku sinni og kærleik af sannri umhyggju. Hann
leggur áherslu á að lifa innihaldsríku lífi og elska fjölskyldu
sína. Þetta er tækifæri til að njóta kennslu hjá einstökum
meistara sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Námskeiðið verður í Valsheimilinu (hátíðarsal) að Hlíðarenda.
Nánari upplýsingar og skráning: Einar Ísleifsson 861 2101,
Áslaug Höskuldsdóttir 694 8475, Kristbjörg Kristmundsdóttir
861 1373 og yoga@simnet.is