Fréttablaðið - 04.05.2008, Qupperneq 79
SUNNUDAGUR 4. maí 2008 23
Hin glæsilega söngkona Leona
Lewis hefur átt góðu gengi að
fagna frá því hún bar sigur úr
býtum í bresku X-Factor-
keppninni árið 2006. Hún setti
heimsmet þegar fyrsta smá-
skífa hennar seldist í 50 þús-
und eintökum á hálftíma á
Internetinu og Leona er
fyrsta breska söngkonan
sem nær á topp banda-
ríska vinsældalistans í
20 ár. Þrátt fyrir vel-
gengnina telja samstarfs-
menn hennar að söngkon-
an þurfi að losna við
nokkur kíló ef hún eigi
halda í við stórstjörnur á
borð við Janet Jackson, Ma-
donnu og Mariuh Carey.
Einkaþjálfarinn Patricia
Gay hefur verið ráðin í verkið og
mun hún þjálfa Leonu fyrir
næsta tónlistarmyndband
söngkonunnar. Patricia er
vön að þjálfa stórstjörnur
og hjálpaði Mariuh Carey
nýverið að koma sér í
toppform. Leona mun
fara í stífa þjálfun til
Patriciu á stöð henn-
ar í Karíbahafinu,
en síðan mun hún
fylgja Leonu eftir
með reglulegum
heimsóknum til
Bretlands.
Leona Lewis í form
LEONA LEWIS Söng-
konan glæsilega ætlar
að koma sér í betra form
með hjálp einkaþjálfara.
Nú styttist í endanlega niðurstöðu
hjá Eurovision-aðdáendaklúbbun-
um. Tuttugu og sjö klúbbar hafa
birt spár sínar og aðeins átta klúbb-
ar eiga eftir að spá. Hin sænska
Charlotte Pirelli, áður Nilsson, er
langefst eins og hún hefur verið
allan tímann. Þá koma lögin frá
Serbíu, Sviss, Armeníu og Úkraínu,
en Ísland er í sjötta sæti. Munar
þar mest um stigin sem klúbbar í
Noregi, Andorra, Ísrael, Bretlandi
og Kýpur gáfu okkur (8 frá hverj-
um) og aserski klúbburinn gaf
okkur sjö stig.
Talandi um Asera. Aserbaídsjan
er nú fyrsta skipti með í keppninni
og sendir pilta tvo, Elnur og Samir.
Þeir troða upp á fyrra undankvöld-
inu og eru sigurvissir. „Ef við stönd-
um okkur vel á sviðinu þá vinnum
við,“ sagði Elnur nýlega. „Við erum
með eina lagið sem blandar saman
rokki, óperu og mugham – hvað
gæti klikkað?“ Elnur og Samir
koma fram í líki engils og djöfuls.
Lagið „Day after Day“ er um bar-
áttu þeirra. Mikið verður um dýrð-
ir á sviðinu. Engillinn mun breiða
úr geysimiklu vænghafi og hásæti
hans mun springa í loft upp.
Búið er að ráða kynnana. Þau
Jovana Jankovic og Zeljko Joksim-
ovic lýsa öllum þremur Eurovision-
útsendingunum í ár. Jovana er þaul-
vanur sjónvarpsþulur og lýsti beint
þegar dregið var í riðlana tvo fyrr á
árinu. Zeljko er hins vegar einn af
farsælustu lagahöfundum Balk-
an skagans. Hann samdi framlag
Serbíu árið 2004 sem varð í öðru
sæti. Zeljko samdi einnig lag Ser-
bíu í ár sem þykir sigurstranglegt.
Búið að ráða kynnana
KYNNARNIR Í ÁR Serbarnir Jovana og
Zeljko.
Bobbi
Kristina, 15
ára gömul
dóttir Whitney
Houston og
Bobbys
Brown, var
lögð inn á
sjúkrahús
eftir sjálfs-
morðstilraun
í febrúar síðastliðnum, samkvæmt
heimildum National Enquirer.
Hún var flutt á geðsjúkrahús, þar
sem hún dvaldi í nokkra daga, en
samkvæmt fjölskyldumeðlimnum
Ann Davis hefur Bobbi hingað til
„drukkið og skemmt sér og gert
hvað sem hún vill“.
Jessica Simpson
þakkar kærasta
sínum, Tony
Romo, fyrir að hafa
látið henni líða
vel með sjálfa
sig að nýju.
Hún segir
að hún hafi
fundið fyrir
samkeppni
í öðrum
samböndum
sínum, eins og
við Nick Lachey
og John Mayer,
en nú líði henni
vel með sjálfa sig.
„Hann kenndi mér að líða vel með
sjálfa mig að nýju. Við kynntumst
með því að tala saman, sem ég
held að sé best,“ segir
söngkonan.
Mariah Carey gekk
að eiga kærasta sinn,
leikarann og rappar-
ann Nick Cannon,
á heimili sínu
á Bahama-
eyjum í
vikunni.
Brúð-
kaupið
fór
fram á
laun, og
aðeins örfáir
voru viðstaddir
athöfnina. Tals-
menn parsins
hafa enn ekki
staðfest að þau séu nú gift, en
margir fjölmiðlar segjast hafa heim-
ildir fyrir því. Talið er að Carey hafi
neitað að skrifa undir kaupmála
fyrir vígsluna, sem er hennar önnur.
Benji Madden vill giftast Paris
Hilton, og kallar partíprinsessuna
„efni í eiginkonu“. Madden segir
þau skötuhjúin hafa þekkst lengi,
og verið orðin ástfangin löngu áður
en fregnir af sambandi þeirra kvis-
uðust út. Hann seg-
ist alltaf hafa þekkt
„hina sönnu
Paris“. Madden
segir að ekkert
myndi gera hann
hamingjusamari
en að ganga að
eiga Paris á
næstunni, en
kveðst þó
ekki vilja
lofa neinu.
FRÉTTIR AF FÓLKI
17 DAGAR TIL STEFNU
Opið: mán-fös 10:00-18:00 - lau 10:00-16:00 - sun 13:00-16:00 - Bæjarlind 12 - S: 544 4420 - www.egodekor.is
Madrid leðurtungusófi – EINGÖNGU Í BRÚNU LEÐRI
Stærð: 305cmX220cm
Verð áður: 258.000,- -30% Verð nú: 180.600,-
Grando 4 sæta sófi og skemill
Stærð: 290cmX93cm - Skemill: 87cmX70cm
Verð áður: 164.000,- -25% Verð nú: 123.000,-
VORT I LBOÐ Á SÓFUM
20-30% AFSLÁTTUR
Austria tungusófi
Stærð: 333cmX200cm
Verð áður: 188.000,- -20% Verð nú: 150.400,-
Appolo hornsófi og skemill
Stærð: 280cmX220cm - Skemill: 100cmX75cm
Verð áður: 218.000,- -20% Verð nú: 174.400,-
Svefnsófi
Stærð: 280cmX185cm
Fáanlegur í dökkbrúnu og ljósbrúnu tweed áklæði
Verð áður: 187.000,- -20% Verð nú: 149.600,-
4 sæta sófi og skemill
Stærð: 270cmX100cm - Skemill: 100cmX100cm
Fáanlegur í ljósbrúnu og rauðu tweed áklæði
Verð áður: 158.000,- -20% Verð nú: 126.400,-