Fréttablaðið - 04.05.2008, Qupperneq 80
24 4. maí 2008 SUNNUDAGUR
FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR FRAM 7. SÆTINU Í LANDSBANKADEILD KARLA 2008
GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2007 7. sæti A-deild 2006 1. sæti í B-deild 2005 9. sæti í A-deild 2004 8. sæti í A-deild 2003 7. sæti í A-deild 2002 8. sæti í A-deild
AÐRIR
LYKILMENN
GENGI Á VORMÓTUNUM
■ Sigrar ■ Jafntefli ■ TöpAUÐUN
HELGASON
PAUL MCSHANE HJÁLMAR
ÞÓRARINSSON
> LYKILMAÐURINN
Reynir Leósson gegnir al-
gjöru lykilhlutverki í Framliðinu.
Öflugur og reyndur miðvörður
sem stóð sig ákaflega vel með
Frömurum á síðustu leiktíð.
Varnarleikurinn verður að
vera í lagi hjá Frömurum
í sumar og þar er Reynir
aðalmaðurinn. Hann er
einnig maðurinn sem
á að reka aðra áfram
og gera Framarar
eflaust þá kröfu að
hann stígi enn frekar
upp sem leiðtogi
liðsins.
> X-FAKTORINN
Heiðar Geir Júlíusson er kom-
inn heim til Fram frá Svíþjóð. Einn
af efnilegri leikmönnum landsins og
ætti að reynast Fram drjúgur.
Það er talsvert breytt lið sem mætir til
leiks hjá Fram í sumar. Liðið hefur misst
markaskorarann Jónas Grana Garðarsson,
miðjumanninn Alexander Steen og varnar-
manninn Kristján Hauksson meðal annars.
Í þeirra stað eru komnir Auðun Helgason,
Jón Þorgrímur Stefánsson, Paul McShane
og Heiðar Geir Júlíusson.
Auðun, Jón og McShane koma með mikla
reynslu í liðið og þarna eru þess utan á ferð-
inni menn sem hafa verið að spjara sig vel í
deild þeirra bestu á síðustu árum.
Framarar skiptu þess utan um mann í
brúnni en Ólafur Þórðarson var látinn víkja
fyrir Þorvaldi Örlygssyni sem hafði verið
að gera áhugaverða hluti með lið Fjarða-
byggðar.
Eins og svo oft áður hafa Framarar verið
að spila ágætlega á undirbúningstímabilinu
en sú spilamennska hefur oftar en ekki
gefið falsvonir fyrir sumarið. Sérfræðingar
telja þó að annar bragur sé á Fram-liðinu
núna en undanfarin ár.
Mikið meiri samheldni sé í liðinu og holn-
ingin allt önnur og betri en hún hefur verið
lengi. Margir efuðust um að Þorvaldur
Örlygsson væri rétti maðurinn fyrir Fram
en ef mið er tekið af vorleikjunum er hann
að berja liðið saman af stakri prýði.
Fram er nýorðið 100 ára og fátt myndi
gleðja stuðningsmenn liðsins meira en að
fylgjast með liði sem berst með hjartanu og
sýnir einhvern stöðugleika en þar hefur
stórlega vantað upp á síðustu ár.
Árangur á afmælisárinu?
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
SENDU SMS JA VBV
Á NÚMERIÐ 1900
- ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
Vinningar eru Bíómiða
r fyrir tvo, DVD myndir
,
varningur tengdur myn
dinni og margt fleira!
Heimsfrumsýnd 7. maí
Levi´s Stores
Kringlunni og Smáralind
2
6
2
HANDBOLTI Aðalsteinn Eyjólfs-
son, þjálfari Stjörnunnar, mun
taka við liði Fylkis í N1-deild
kvenna í sumar. Hann kveður
Stjörnuna hins vegar með bæði
Íslandsmeistara- og bikarmeist-
aratitli.
„Það er æðislegt að labba út
úr Garðabæ sem tvöfaldur
meistari og það er ólýsanlegt að
þetta sé í höfn,“ sagði Aðal-
steinn.
„Liðið kom 100% klárt í
þennan leik. Þær náðu að
stilla spennustigið hár-
rétt og spiluðu frábæran
handbolta fyrstu 25 mín-
úturnar. Svo kom smá-
kafli þar sem þær
voru óheppnar og
gerðu tæknifeila en
þegar það tók að
kreppa skóinn
aftur gáfu þær í og
sýndu gríðarlegan
karakter. Ég hef
aldrei þjálfað hóp sem
á þetta eins mikið skil-
ið og þessi hópur,“
sagði Aðalsteinn sem
er afar ánægður með
samstarf sitt við
Ragnar Hermannsson í vetur.
„Við spiluðum á 28 leikmönn-
um í vetur og ég og Ragnar
vorum alltaf að hnoða saman
nýju byrjunarliði. Við höfum
unnið ótrúlega vel saman og ég
á engin orð til að lýsa þessu sam-
starfi. Ragnar og Boris Acbe-
chev komu stöðugleika á vörn-
ina og unnu í öðrum þáttum en
við gerðum í fyrra. Það fékkst
mikill stöðugleiki við þetta.
Þegar ég kom úr leikbanni
ákváðum við að breyta engu þar
sem það hafði gengið vel og
ákváðum að stuða ekki vinn-
una mikið með því að
fara í allt aðra átt. Við
ákváðum að ég ein-
beitti mér frekar að
sóknarleiknum og að
finna lausnir þar. Það
þrælgekk hjá okkur.
Við gætum ekki verið
glaðari,“ sagði Aðal-
steinn að lokum. -gmi
Aðalsteinn Eyjólfsson, fráfarandi þjálfari Stjörnunnar:
Áttum þetta skilið
STOLTUR Aðalsteinn var í
skýjunum með frammi-
stöðu Stjörnuliðsins í gær.
DJOROVIC
HANDBOLTI Stjarnan tryggði sér
Íslandsmeistaratitilinn í N1-deild
kvenna með góðum sigri á Val, 26-
20, í rafmögnuðum úrslitaleik í
Mýrinni. Hefði Stjarnan tapað stig-
um hefði Fram orðið Íslandsmeist-
ari en bæði lið luku mótinu með 41
stig. Stjarnan hafði betur í innbyrð-
isviðureignum liðanna og hampaði
því bikarnum í leikslok. Valur hafn-
aði í þriðja sæti deildarinnar.
Stjörnustelpur mættu gríðarlega
ákveðnar til leiks. Ekkert stress
var að sjá á liðinu á meðan Vals-
stelpur sem höfðu að engu að keppa
virtust engan veginn tilbúnar í
leikinn. Stjarnan var níu mörkum
yfir eftir 20 mínútna leik, 14-5, en
þá tók sóknarleikur liðsins að
hiksta.
Valsstelpur virtust átta sig á því
að niðurlæging blasti við og náðu
að minnka muninn í sjö mörk fyrir
hlé, 17-10. Berglind Hansdóttir,
markvörður Vals, reif upp barátt-
una í liðinu og með frábæran
varnaleik að vopni náði Valur að
minnka muninn í tvö mörk, 22-20,
þegar fimm mínútur lifðu leiks.
Þá tóku Stjörnustelpur við sér á
ný og kláruðu leikinn eins og sönn-
um Íslandsmeisturum sæmir með
fjórum síðustu mörkum leiksins.
Frábær varnarleikur og hárrétt
spennustig í upphafi leiks varð til
þess að Stjarnan vann í raun örugg-
an sigur þótt Valur hafi saxað
hressilega á forskotið í síðari hálf-
leik.
Frábær undirbúningur
Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði
Stjörnunnar, stýrði liði sínu af sinni
alkunnu snilld í leiknum. Rakel
sagði frábæran undirbúning fyrir
leikinn hafa skilað miklu.
„Við einbeittum okkur að þess-
um leik alla vikuna. Við vorum í
bílstjórasætinu fyrir leikinn og
vissum að við yrðum að leggja allt
okkar í hann. Vikan var frábær.
Það sýndi sig hvernig við byrjuð-
um leikinn. Við fórum í það að
halda í seinni hálfleik en samt sem
áður spiluðum við frábæran leik,“
sagði Rakel og bætti við:
„Öll pressan var á okkur en við
vorum mjög rólegar. Eins og Raggi
þjálfari segir þá spiluðum við með
köldum haus en heitu hjarta. Við
vorum tilbúnar í þennan leik. Það
var ekki neitt stress. Við nutum
dagsins og uppskárum eftir því.
Valur er með frábært lið og spilaði
frábæran varnarleik með frábær-
an markvörð fyrir aftan sig. Við
fórum líka að hægja á okkur í stað
þess að halda áfram að sækja,“
sagði Rakel um ástæðu þess að
Valur komst inn í leikinn eftir
ójafnan fyrri hálfleik.
Stjarnan tapaði þrem leikjum í
röð í desember en vann 15 síðustu
leiki sína í mótinu. „Ég vil þakka
þetta gengi eftir áramót frábærum
karakterum í liðinu sem eru tilbún-
ir að leggja endalaust á sig. Við
erum með frábært þjálfara-teymi.
Öll vinnan í kringum liðið og sam-
staðan á stóran þátt í þessu,“ sagði
kátur fyrirliði Stjörnunnar í leiks-
lok. -gmi
Stóðust pressuna með stæl
Stjörnustúlkur sýndur gríðarlegan karakter og sigurvilja þegar þær tryggðu sér
Íslandsmeistaratitilinn með 26-20 sigri gegn Valsstúlkum í Mýrinni í gærdag.
FYRIRLIÐINN Rakel Dögg þakkar frábær-
um undirbúningi í vikunni fyrir leikinn
hvernig fór í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
ÖFLUG Stjörnustúlkan Alina Petrache var drjúg að vanda og skoraði níu mörk í gær-
dag. Valsstúlkurnar Dagný Skúladóttir, Kristín Guðmundsdóttir og Hafrún Kristjáns-
dóttir reyna hér að stöðva hana. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BIKARINN Á LOFT Rakel Dögg Bragadóttir, fyrirliði Stjörnunnar, lyftir hér Íslandsmeist-
arabikarnum hátt á loft í Mýrinni í gær. Með henni á myndinni eru Stjörnustelpurnar
Kristín Clausen og Sólveig Lára Kjærnested. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON