Fréttablaðið - 09.05.2008, Qupperneq 30
2 • FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008
fréttir
Útgáfufélag 365 prentmiðlar
Ritstjóri Marta María Jónasdóttir
martamaria@365.is
Blaðamenn
Bergþóra Magnúsdóttir
bergthora@365.is
Alma Guðmundsdóttir
Útlitshönnun
Arnór Bogason og
Kristín Agnarsdóttir
Auglýsingar Guðný Gunnlaugsdóttir
gunnyg@365.is sími 512 5462
Föstudagur Skaftahlíð 24
105 Reykjavík, sími 512 5000
FÖSTUDAGUR
Í
gærkvöldi lauk sjónvarpsþættinum Hæðinni sem sýnd hefur verið
á Stöð 2 undanfarnar vikur. Nú hefur Stöð 2 ákveðið að fram-
leiða aðra seríu af Hæðinni vegna mikilla vinsælda fyrstu serí-
unnar. „Þegar við fórum af stað með Hæðina vorum við ekki með
neitt framleiðsluhandrit. Nú er það hins vegar tilbúið og við erum
með það í höndunum og því er ekkert annað í stöðunni en að gera
aðra þáttaröð,“ segir Gulli Helga, stjórnandi þáttarins. Í Hæðinni var
hann í fjögurra manna starfi því hann sá einnig um að verkstýra iðn-
aðarmönnunum, var í samskiptum við pörin, stillti iðnaðarmennina
og tökulið saman og svo þurfti að mynda öll herlegheitin og búa til
heildstæðan sjónvarpsþátt. Þegar hann er spurður að því hvað hafi
verið erfiðast nefnir hann það að klára. „Það var verið að innrétta
á mettíma og mynda það allt jafnóðum. Það tók stundum á.“ Þegar
hann er spurður að því hvað hann ætli að gera öðruvísi í næstu seríu
segir hann að það snúi eingöngu að framleiðsluferlinu. „Við erum
mjög ánægð með Hæðina enda voru allir þeir sem unnu að þættinum
hoknir af reynslu. En eftir fyrstu seríuna sjáum við hvernig mætti
hagræða hlutunum betur.“ Fyrsta verkefnið fyrir nýju seríuna er
að finna húsnæði. „Ég er bara að skoða það núna. Það eru svo marg-
ir möguleikar í boði og þegar við verðum búin að finna húsnæði þá
förum við í það að leita að pörum,“ segir Gulli Helga, til í slaginn, já-
kvæður með bros á vör. martamaria@365.is
GULLI HELGA ER BYRJAÐUR AÐ UNDIRBÚA AÐRA SERÍU AF HÆÐINNI
Leitin er hafin að hentugu húsnæði
Gulli Helga sjónvarpsmaður bíður spenntur eftir að gera aðra seríu af Hæðinni.
„Í dag ætla ég að fagna afmæli
Evrópusambandsins á Hótel
Sögu og í kvöld fer ég í matar-
boð. Annars hafði ég hugsað
mér að hafa það huggulegt í
bænum og fara í göngu upp á
Reykjafell með hundana mína
og sinna blessuðum börnun-
um mínum. Svo er náttúrlega
aldrei að vita nema að manni
verði boðið út. Við vinkon-
urnar úr Mér finnst …
ætlum líka að hittast um
helgina og eyða góðri
stund saman,“ segir
Kolfinna Baldvinsdóttir
sjónvarpskona en hún
og Ásdís Olsen hafa grafið
stríðsöxina eftir að samstarf-
ið sprakk í síðustu viku.
HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ
GERA UM HELGINA?
Kolfinna Baldvinsdóttir
þáttastjórnandi á ÍNN
Sjónvarpskonan Friðrika
Hjördís Geirsdóttir og
unnusti hennar, Stefán
Hilmarsson, aðstoðarfor-
stjóri Baugs, eignuðust
son á frídegi verkalýðs-
ins, 1. maí. Fæðingin gekk
vonum framar og tók
örstutta stund.
Það mun-
aði litlu að
drengur-
inn myndi
fæðast
á leið-
inni því
honum
lá svo
mikið á að koma í heiminn. Ekki
er búið að gefa drengnum nafn
en hann var 15 merkur þegar
hann fæddist. Þegar Föstu-
dagur heyrði í Friðriku var
hún alsæl og sagði að dreng-
urinn væri algerlega til fyrir-
myndar og svæfi vel. Fram
undan eru annasamir
tímar hjá fjölskyldunni
en fyrir eiga þau Frið-
rika og Stefán soninn
Gunnar Helga sem
er 18 mánaða auk
þess sem Stefán á
tvö börn frá fyrra
hjónabandi.
Drengurinn kom í
heiminn á mettíma
Friðrika Hjördís Geirsdóttir sjónvarps-
kona og Stefán Hilmarsson, aðstoðar-
forstjóri Baugs, eignuðust son 1. maí.
D
ansverkið Systur eftir þær
Ástrós Gunnarsdóttur og Láru
Stefánsdóttur var frumsýnt 1.
maí í Iðnó við mikinn fögnuð.
Ekki spillti innkoma sjónvarpsmanns-
ins góðþekka, Þorfinns Ómarssonar,
fyrir en í fyrstu tveimur sýningunum
gerði hann sér lítið fyrir og steig á
sviðið öllum að óvörum á Adamsklæð-
unum einum. „Ég var með í undirbún-
ingsvinnunni fyrir verkið og þær not-
uðu mig upphaflega sem staðgengil
fyrir þetta hlutverk,“ segir Þorfinnur
en þeim Ástrós, Láru og Þórhildi Þor-
leifsdóttur, sem var faglegur ráðgjafi
sýningarinnar, fannst hann henta afar
vel í sjálft hlutverkið. „Ég myndi ekki
gera þetta fyrir hvaða tilefni sem er
eða fyrir hvern sem er en verkið sem
slíkt er mér afar kært og hugleikið
og ég ákvað því að slá til,“ segir Þor-
finnur, sem berar sig fyrir hug-
sjónina eina en ekki frægðina.
Fyrir hverja sýningu er feng-
inn þjóðþekktur karlmaður til
að fara með hlutverk Þorfinns,
hins nakta karlmanns í sýning-
unni, og verður spennandi að
sjá hvaða karlmenn þora að bera
sig. „Það er mikill boðskapur í
verkinu sem á fullt erindi við áhorf-
endur. Hugmyndin á bak við verkið
er afar virðingarverð og heillandi en
þar er kynjahlutverkunum snúið við.“
Margir ráku upp stór augu þegar
Þorfinnur birtist á sviðinu í allri
sinni dýrð enda hafði hann verið þög-
ull sem gröfin. „Mamma vissi ekki
hvaðan á sig stóð veðrið þar sem hún
sat úti í sal á frumsýningunni og var
yfir sig hrifin. Vissulega kom þetta
öllum í opna skjöldu en við ákváðum
að halda þessu leyndu þar sem þetta
átti ekki að vera aðalatriðið í sýning-
unni,“ segir Þorfinnur og bætir því
við að þetta hafi ekki verið það auð-
veldasta sem hann hafi tekið sér fyrir
hendur. „Það að koma nakinn fram
á sviði var mikil áskorun fyrir mig.
Auk þess þurfti ég að halda ákveðinni
stöðu á sviðinu og vera grafkyrr, sem
reyndi mjög á,“ segir Þor finnur,
sem hefur ekki fengið frekari
tilboð um nektarmyndatök-
ur í kjölfar sýningarinnar, að
minnsta kosti ekki enn sem
komið er. „Ég hef ekki enn
þá fengið borgað fyrir minn
hlut og því ljóst að maður
er allavega ekki að
gera þetta fyrir pen-
inginn,“ segir Þor-
finnur að lokum
bergthora@365.is.
Þorfinnur Ómarsson kom mömmu sinni á óvart
Kemur nakinn fram
Þorfinnur Ómarsson kom nakinn
fram í danssýningunni Systur þar
sem eiginkona hans fer með annað
aðalhlutverkið.
Veggspjaldið fyrir Syst-
ur sýnir íturvaxinn karl-
mannslíkama í for-
grunni en ekki er gefið
upp hver á þennan
stælta líkama.
EKKI LENGUR SVARTIR
OG HVÍTIR
Baráttusöngur KR-inga, „Við erum
svartir, við erum hvítir“, verður tæp-
ast kyrjaður á áhorfendapöllum
KR-vallarins í sumar en liðið tók á
dögunum í notkun nýjan varabún-
ing sem verður einungis notaður í
Landsbankadeildinni. Heitustu KR-
ingarnar eru ekki sáttir við búning-
inn. Hann minnir óneitanlega á bún-
inga hollenska lands-
liðsins auk þess sem
hann er í sjálfum Fylkis-
litnum, appelsínu-
gulum, en þessi
tvö knattspyrnu-
félög hafi verið
erkióvinir í ára-
raðir. Harla ólíklegt
verður því að telj-
ast að KR-ingar
mun láta sjá
sig á vellinum
í sumar þaktir
appelsínugulri
andlitsmáln-
ingu.
LÝSI VIAGRA-ÆÐI
SUMARSINS?
Heyrst hefur að eftir að spjallþátta-
drottingin Rachel Ray upplýsti í
þætti sínum á Skjá einum að lýsi
væri ekki bara allra meina bót held-
ur líka kynörvandi hafi lýsisbirgðir
höfuðborgarsvæðisins verulega
látið á sjá. Enda vilja allir halda líf-
inu í tuskunum. Ef þessi kenning
Rachel Ray reynist rétt munu eflaust
erilsamar nætur lögreglunnar um
helgar heyra sögunni til, því um leið
og kynörvandi lýsisinntaka fer að
segja til sín þá vilja jú allir fara heim
og njóta ásta í stað þess að kýla
mann og
annan.