Fréttablaðið - 09.05.2008, Qupperneq 48
útlit
smáatriðin skipta öllu máli
12 • FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008
HÁROLÍA FRÁ
ORIGINS nærir og bætir
og veitir hárinu vítamín
og fyllingu. Þessa olíu er
hægt að nota til þess að
fríska upp á skemmt
og þurrt hár.
ANDLITSKREM FRÁ
ORIGINS er krem sem er stút-
fullt af andoxunarefnum. Það fyrir-
byggir vökvatap og sefar rós-
roða og mýkir húðina. Það er
unnið úr lífrænum nellikum,
lavender og ylang ylang.
Hvern dreymir ekki um að líta
sem best út og vera úthvíldur í
erli hversdagsins? Til eru margar
leiðir til þess en ein þeirra er að
búa til heilsulindarstemningu
í baðherberginu heima hjá sér.
Gott er að framkvæma þessa að-
gerð að kvöldi svo maður sofi of-
urvel um nóttina. Byrjaðu á að
kveikja á ilmkerti eða reykelsi.
Svo skaltu skrúbba líkamann
upp úr líkamsskrúbbinu úr bað-
og líkams línunni frá Pier. Best
er að skrúbba líkamann meðan
húðin er enn þá þurr. Nuddaðu öll
þurru svæðin vel, kálfa, olnboga
og hæla. Svo skaltu skola þig með
volgu vatni. Þegar þú ert búin(n)
að skola af þér skrúbbið skaltu
bera á þig líkams leir en hann er
sérlega næringargóður fyrir húð-
ina. Því næst skaltu skola hann
af og láta renna í baðkarið. Til
að fullkomna baðferðina er snið-
ugt að setja baðsalt úr Dauða-
hafinu út í ásamt nokkrum drop-
um af Dauðahafsvatni. Það hefur
áhrif á blóðstreymi til húðar og
má nota daglega í baðið. Þegar þú
ert búin(n) að liggja í baðinu í dá-
góðan tíma skaltu bera á þig Body
Butter og nudda því vel inn í húð-
ina. Eftir þessa meðferð verður
þú eins og bjartasta vorsólin og
munt skína af ferskleika.
martamaria@365.is
Endurnýjaðu líkama og sál heima hjá þér
Breyttu bað-
herberginu í
ekta heilsu lind
1. Dauðahafsvatnið frá Pier má nota á marga vegu. Gott er að setja nokkra
dropa út í baðvatnið. Einnig má setja einn dropa á tannburstann til að fá
hvítari tennur en gæta þarf þess að skyrpa því út um leið og burstun lýkur.
Líka má nudda því á milli tánna til að forðast sveppasýkingar eða setja dropa
út í sjampóið til að næra hárið. Einnig má nota það til að sótthreinsa bólur. 2.
Leirmaski frá Pier er notaður sem fegrunarmeðferð fyrir húðina. Það er best að
bera hann á húðina og láta hann þorna í fimm mínútur áður en hann er skolað-
ur af en hann hreinsar eiturefni úr líkamanum og áferð húðarinnar verður gló-
andi. 3. Body Scrub er borið á þurra húð og nuddað vel inn í húðina svo virknin
verði sem mest. 4. Baðsalt úr Dauðahafinu er sett út í baðið til að fá fullkomna
slökun. 5. Body Butter frá Pier mýkir húðina að baðferð lokinni. 6. Reykelsi frá
Pier fullkomna stemninguna.
1
2
3
4
5
6
Thermal Plankton myndaðist
fyrir um það bil þremur millj-
örðum ára og er talið vera
eitt af fyrstu ummerkj-
um um uppsprettu lífs á
jörðinni. Thermal Plankt-
on er mild örflóra sem
þrífst í fjallalindum sem
eru auðugar af stein-
efnum. Fyrir fimmtíu
árum, þegar líffræð-
ingar Bio therm fengu
fyrst áhuga á Thermal
Plankton, uppgötvuðu
þeir tengsl milli virkni
efnisins og áhrifa þess
á húðina. Í kjölfarið
bjuggu þeir til fyrstu húð-
snyrtilínuna sem innihélt
Thermal Plankton. Núna
hafa líffræðingar Bio-
therm uppgötvað að
þetta virka innihalds-
efni getur örvað nátt-
úrulegar varnir húð-
arinnar gegn utanað-
komandi áreiti. Það
vinnur til dæmis gegn
öldrun, gefur húð-
inni aukinn ljóma og
unglegra yfirbragð.
Thermal Plankton
er í öllum vörum frá
Biotherm, bara í mis-
miklu magni. Hægt er að kaupa
hreint Thermal Plankton til að
bera á húðina. martamaria@365.is
Undraefnið Thermal Plankton
...nema að láta sorg og sút vetrarins
falla í gleymskunnar dá. Líttu á árs-
tíðaskipti sem stóru kaflaskiptin í lífi
þínu. Eyddu öllu því sem minnir á von-
brigði vetrarins og taktu á móti sumr-
inu með sól í hjarta.
...nema að missa þig í
sumarfatnaðinum. Nú
er tíminn til að kaupa
sér ópraktísk sumar-
föt áður en við horf-
umst í augu við blá-
kaldan veruleikann,
þ.e. rigningu og
súld upp á hvern
einasta dag í
sumar. Haltu í von-
ina, hamstraðu stutta blómakjóla og
keyptu upp lagerinn af opnum banda-
skóm. Í versta falli ertu vel birg þegar
þú loks lætur af því að fara í siglinguna
í Karíbahafinu.
...nema að leyfa smáborgaranum í
hjarta þínu að blómstra nú þegar vorar.
Grillið á pallinn, sólhúsgögnin með til-
heyrandi blómamunstri, gúmmísund-
laug í garðinn fyrir krakkana og tramp-
ólín á veröndina. Hvað
þarf meira?
...nema að taka
hjólið fram úr
geymslunni og
leggja bílnum í viku.
Hver veit nema að þú
eigir fyrir sólarlandaferð í enda mán-
aðarins.
...nema að njóta þess að vera í sundi
án þess að trylltir, loðnir túristar liggi
klesstir við þig í heita pottinum og tali
tungum sín á milli. Eitt er víst að það
fer hver að verða síðastur.
þú kemst ekki
í gegnum
vikuna …