Fréttablaðið - 18.05.2008, Side 74

Fréttablaðið - 18.05.2008, Side 74
MENNING 44 V erkið er úr bronsi og verður einir fimm metr- ar á hæð. Gabríela kall- ar það minnisvarða – áminningu um mögu leikana, innblásið af gjaf- mildi góðs samstarfs ólíkra aðila og endurspegli þannig undirstöðu þeirrar byggðar sem rísa eigi í Urriðaholti. Hugmyndina að verkinu segir Gabríela að megi rekja til þess þegar M/M-tvíeykið kom hingað til lands í tengslum við frönsku menningarhátíðina Pourqois pas? snemma árs 2007. Þá hófst hug- myndavinna á bak við Tree of Signs og haldin var sýning í Hönn- unarsafni Íslands í Garðabæ á frumteikningum að verkinu. Tréð byggist á sömu leturgerð M/M og notuð var fyrir umslag utan um Medúllu Bjarkar, og notað var sem grunnur undir allt prent- að efni og þrívíða hluti sem þeir Mathias Augustyniak og Michael Amzalag unnu í samstarfi við Gabríelu fyrir Tvíæringinn í Fen- eyjum. Í Táknatrénu verður letur- gerðin hins vegar algerlega þrí- víð og teikningar Gabríelu mótaðar í lágmyndir sem hanga munu í trénu eins og ávextir eða fræ. „Þegar samstarf við Urriða- holt kom til tals og við hófum að kynna okkur hugmyndafræði þess kom hún heim og saman við hug- myndir okkar. Auk þess hafði okkur alltaf langað að setja tréð upp á óbyggðu svæði,“ segir Gabríela. „Við hjá Urriðaholti fréttum af M/M í gegnum menningarfulltrúa Garðabæjar og fórum stuttu síðar með þá Mathias og Michael í skoð- unarferð upp undir Búrfellsgjána. Það er sjaldgæft að menn komist í tæri við jafn ósnortið land svo skammt frá byggð, enda hrifust þeir af náttúrufegurðinni. Skömmu síðar var ákveðið að tréð yrði fyrsta mannvirkið til að rísa í Urriðaholti. Það er skemmtilega táknrænt og gefur áþreifanleg skilaboð um gróanda og vöxt í Urriðaholti,“ segir Sigurður Gísli Pálmason, sem situr í stjórn Urriðaholts ehf. Gabríela segir það besta við Táknatréð að það sé svo að segja stallalaust, ólíkt flestum listaverk- um í opinberu rými. „Í slíkum rýmum finnst mér vera unnið á móti listinni með því að búa til fyr- irfram ákveðinn ramma utan um allt, en þannig nær verkið sjaldan að þróast eðlilega og samsvara sér í umhverfinu,“ segir Gabríela. Hún segir þetta einnig speglast í því að leturgerðin sem notuð er í verkinu rammi ekki inn heldur skapi möguleika. „Hin formræna heimspeki og heimspekin á bak við Urriðaholt eiga vel saman. Það er að segja að spila með möguleik- um náttúrunnar og rekast ekki á hana, heldur nota mjúk form sem mynda meira samspil.“ Gabríela Friðriksdóttir var full- trúi Íslands á Feneyjatvíæringn- um 2005. Sagt er um verk Gabrí- elu að í þeim birtist innra landslag, þar sem ímyndaður kynjaheimur forsögulegs tíma rennur saman við samtímann. Hún framkallar heim þar sem engin rökvís orð geta dregið skýr mörk á milli myrkra tilfinninga og gleði, og í stað öryggiskenndar þarf áhorf- andinn að kljást við tákn og minni. Gabríela leitar fanga í náttúrunni, tónlist og stefnulausum samræð- um fólks og vinnur með ólíka miðla samtímans. Tvíeykið M/M er til húsa í París og í því eru þeir Mathias Augustyniak og Michael Amzalag. Þeir eru meðal þekkt- ustu grafísku hönnuða samtímans. Michael Amzalag stundaði nám við hinn virta skóla École Nationale Supérieure des Arts Décoratifs í París og Mathias Augustyniak útskrifaðist með MA-gráðu frá Royal College of Art í London. Frá því að þeir stofnuðu M/M (París) hafa þeir komið víða við. Þeir hafa starfað með tónlistarmönnum á borð við Björk, hannað listaverka- bækur fyrir söfn eins og Musée d’Art Moderne og Centre Pomp- idou í París og unnið náið með heimsfrægum listamönnum. Þar á meðal má nefna Philippe Parreno og Pierre Huyghe, en sá síðar- nefndi sýndi nýverið verk sín í Listasafni Reykjavíkur á franskri menningarhátíð. Þeir M/M hafa hannað fyrir tískuhúsin Yohji Yamamoto og Calvin Klein, lagt til ritstjórnarefni fyrir tímarit á borð við V Magazine og voru um tveggja ára skeið listrænir stjórn- endur franska Vogue. Hinn áhrifamikli listgagnrýn- andi Hans Ulrich Obrist hefur sagt um M/M að tvíeykið hafi breytt hugmyndum manna í París til grafískrar hönnunar. Nú þykir það sjálfsagt að starf hönnuðar tengist samhliða tísku, myndlist og tónlist, en þannig var það ekki fyrir fimmtán árum. Mathias Aug- ustyniak og Michael Amzalag áttu sinn þátt í að breyta landslaginu í þessum efnum á tíunda áratugn- um með hönnun sinni og eru enn í fararbroddi þeirrar þróunar. Í raun má segja að þeir takmarki sig ekki við grafíska hönnun held- ur skapi þeir sjónrænt tungumál sem brúar bilið milli ólíkra heima. Táknatréð rís í Urriðaholti Verkið í málmsteypu í París. Brátt mun það gnæfa í Urriðaholti og taka á móti vind- um úr norðri og suðvestri. Á morgun rís í Urriðaholti ofan við byggð í Garðabæ stórt verk úr kopar sem Gabríela Friðriksdóttir hefur hannað í samstarfi við franska tvíeykið í hönnunar- fyrirtækinu m/m. Er það fyrsta mannvirkið sem rís í fyrirhuguðu byggingarlandi þar við jaðar Heiðmerkur. PÁLL BALDVIN BALDVINSSON MYNDLIST Í dag opna tvær sýningar á Kjarvalsstöðum í tengslum við Listahátíð á vegum Listasafns Reykjavíkur. Í samstarfi við Félag lands- lagsarkitekta, sem um þessar mundir fagnar þrjátíu afmæli, hefur landslagsarkitektinn og listakonan Martha Schwartz hannað sex metra háan sýningar- skála sem stendur í garðinum við húsið. Verkið er í raun skúlptúr, garður, landslag − allt í senn: hlíð- ar klæddar áli. Verkið kallar listakonan „Ég hata náttúruna Reykjavík“. Það er reist með til- styrk Ingibjargar Kristjánsdótt- ur og Ólafs Ólafssonar. Verk Mörthu kallast á við meg- insýninguna á Kjarvalsstöðum, Drauma um ægifegurð í íslenskri myndlist, sem Æsa Sigurjóns- dóttir tók saman og sett var upp í Brussel fyrr í vetur. Þar tekur Æsa til endurskoðunar náttúru- hugtakið í verkum íslenskra myndlistarmanna í víðum skiln- ingi. Þarna ægir öllu saman: tón- uðum ljósmyndum Vigfúss Sig- urgeirssonar sem kallast á við nýlegar myndir Spessa og Péturs Thomsen. Þar er stór skúlptúr Kristjáns Guðmundssonar frá 1988, Blá færsla úr fimm stórum pappírsrúllum, sem ekki hefur sést áður hér á landi. Þarna er að sjá landslag í verkum Olgu Berg- mann, Ólafs Elíassonar, útlegg- ingar Halldórs Ásgeirssonar, Gjörningaklúbbsins og fleiri á landslagshugtakinu í verkum okkar manna. Mun mörgum koma á óvart hvernig landslagið teygir sig inn í konseptið eftir eftir- fylgjumönnum þess í íslenskri myndlist. Æsa greinir frá athugunum sínum á ægifegurð landslagsins í ítarlegri ritgerð í sýningarskrá og rekur sporin í túni íslenskrar myndlistar, tengir viðleitni okkar að nema land í bókstaflegum skilningi í myndgerð af ýmsu tagi og setur hana í samhengi við- tekinna en stundum falinna hug- mynda í samtímanum og allt aftur til hins rómantíska tíma sem hóf til vegs hugmyndina um hið villta í landinu um það leyti sem sótt var á skóga og öræfi Evrópu uns ekkert stóð eftir nema ókleif fjöll og friðaðir skik- ar. Sýningin um ægifegurð í íslenskri náttúru er samantekin og uppsett með tilstyrk Lands- bankans og menntamálaráðu- neytisins. Sýningarnar á Kjarvalsstöðum verða uppi á Klambratúninu til 7. september. ÆGIFEGURÐ FJALLA Í MANNANNA VERKUM So fucking peaceful, 2001, Daníel Magn- ússson. Birt með leyfi listamannsins.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.