Fréttablaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 39
FIMMTUDAGUR 5. júní 2008 3
Le petit prince de la haute couture*
„Yves Saint Laurent horfði ekki, heldur sá konuna, listina, heiminn.“
Þessi orð voru notuð um meistarann sem nú er allur. Snillingur
hönnunar sem bylti tískunni, hafði varanleg áhrif á samtíð sína og sá
fyrir þjóðfélagsbreytingar.
Saint Laurent byrjaði sem barn að hanna. Hann var aðeins átján ára
árið 1955 þegar hann byrjaði hjá Dior og tók svo við hönnuninni þar
árið 1957 við skyndilegt fráfall Diors. Í fyrstu tískulínunni 1958 lagði
hann til hliðar hið reyrða „New look“ Diors og kynnti „Trapèze-
kjólinn“. Hann hitti Pierre Bergé sem varð lífsförunautur hans og
viðskiptafélagi og saman opnuðu þeir tískuhús YSL 1961. Fyrsta
ilmvatnið „Y“ kom á markað 1964 og mörg áttu eftir að fylgja eins og
„Opium“ 1977 sem enn í dag er eitt af fimm mest seldu ilmvötnum í
heiminum.
Yves Saint Laurent varð fyrstur til að opna búðir með fjöldafram-
leiddum lúxustískufatnaði (prêt-à-porter) 1966 á þeim tíma þegar
aðeins þekktust hátískuhús og heimasaumur. Seinna framleiddi hann
tískulínu sem gaf flestum konum, allt frá riturum til kennara, mögu-
leika á að eiga dragt frá tískuhúsinu. Sama ár sýndi hann fyrstu
buxnadragtina, sem var tekin úr klæðaskáp karla, smóking fyrir konur
varð til og er enn í dag í fullu gildi. Seinna fylgir Saharienne-jakkinn,
líkur klæðnaði nýlenduherra, blússan gegnsæja og kvöldkjóll sem
sýnir efst í rasskinnarnar með blúndum. Í frægri mynd Luis Bunuel
„Belle de jour“ gerir Saint Laurent leikkonuna Catherine Deneuve
ódauðlega í hönnun sinni. Upp frá því var hún einn af hans nánustu
vinum.
Saint Laurent var með þeim fyrstu til að nota svartar fyrirsætur í
hátískunni og notaði innblástur bæði frá Afríku og Kína langt á undan
Gaultier og Galliano. Hann var alla tíð hlédrægur og sjúklega hræddur
og því sótti hann í róandi lyf og eiturlyf sem hann hætti þó um síðir að
nota. Árið 2002 sýndi hann í síðasta sinn og lokaði hátískuhúsinu en
nokkru fyrr var fjöldaframleiðslan seld til Gucci-groupe þar sem Tom
Ford tók við hönnuninni en Yves Saint Laurent var ekki hrifinn af
Ford. Hins vegar var hann hæstánægður með Stefano Pilatti sem tók
við af Ford. Eftir að hann dró sig í hlé var eins og slökkt væri á
meistaranum, hann hitti fáa og lokaði sig af, fór aðeins með bílstjóra
sínum í stofnun Pierre Bergé-Yves Saint Laurent sem hefur hið fræga
heimilisfang 5 Avenue Marceau þar sem hátískan var til húsa frá 1977.
Mikill snillingur er genginn. Það er einmitt honum að þakka og
kannski nokkrum fleirum að í Frakklandi og víðar er tískan álitin
listgrein. Pierre Bergé segir Coco Chanel hafa frelsað konur en Yves
Saint Laurent hafi gefið þeim vald. Tveir áhrifamestu hönnuðir 20.
aldarinnar. *LITLI PRINS HÁTÍSKUNNAR bergb75@free.fr
Úr háborg tískunnar
BERGÞÓR BJARNASON SKRIFAR FRÁ PARÍS
Hennes og Mauritz lofar endur-
vinnanlegum og lífrænum efn-
um í fatnað sinn næsta vetur.
H&M tekur siðferðislegar skyld-
ur sínar alvarlega og hefur nú til-
kynnt „stórt ævintýri“ lífrænnar
bómullar næsta vetur. Einnig
ætlar fyrirtækið að fara yfir í
önnur sjálfbær efni svo sem líf-
ræna og endurvinnanlega ull og
pólýester.
„Við notum núna lífræna bóm-
ull í öllum deildum okkar,“ segir
Ann-Sofie Johansson, yfirhönn-
uður H&M. „Við erum stolt af því
að geta mætt auknum áhuga
kúnna okkar og um leið stuðlað að
aukinni eftirspurn eftir lífrænt
ræktaðri bómull.“
Aðdáendur H&M geta því beðið
spenntir eftir kimono-jökkum,
stuttermabolum, túlípanapilsum,
víðum buxum og anorökkum
gerðum úr endurnýtanlegum
efnum.
- mþþ
Lífræn föt í
H&M
Lífræn bómull verður undirstaðan í
mörgum flíkum frá H&M.
Bergstaðastræti 13 • Sími 5516500
www.elina.is