Fréttablaðið - 05.06.2008, Blaðsíða 64
40 5. júní 2008 FIMMTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MARK WAHLBERG LEIKARI ER
38 ÁRA.
„Margir hæfileikaríkir leik-
arar verða líka, þrátt fyrir
allt, að borga reikninga.“
Mark Wahlberg hóf feril sinn
í hljómsveitinni New Kids on
the Block. Í seinni tíð hefur
hann haslað sér völl sem kvik-
myndaleikari.
MERKISATBURÐIR
1915 Danska stjórnarskráin
veitir konum kosninga-
rétt.
1920 Brjóstsykursgerðin Nói
hefur starfsemi sína.
1956 Elvis Presley birtist í sjón-
varpinu og hneykslar
áhorfendur með mjaðm-
adansi sínum.
1967 Sex daga stríðið hefst fyrir
botni Miðjarðarhafs.
1968 Forsetaframbjóðand-
inn Robert F. Kennedy er
skotinn.
1974 Ólafur V Noregskonungur
heimsækir Ísland.
1975 Súesskurðurinn opnað-
ur í fyrsta sinn eftir að sex
daga stríðinu lauk.
1981 Fyrsta tilfelli alnæmis
finnst í Los Angeles.
Bríet Bjarnhéðinsdóttir hin mikla
kvenréttindakona skrifaði grein í
Fjallkonuna um menntun og rétt-
indi kvenna sem birtist þennan
dag árið 1885. Greinin var stórt
skref í baráttu fyrir bættum rétt-
indum kvenna í landinu, og sú
fyrsta sem birtist eftir konu í opin-
beru blaði á Íslandi.
Bríet tók hún burtfararpróf við
skólann við Kvennaskólann á
Laugarlandi í Eyjafirði og var hæst
á því prófi. Ekki var meira um
skólamenntun fyrir Bríeti né aðrar
stúlkur, enda höfðu þær ekki að-
gang að Latínuskólanum í Reykja-
vík, prestaskólanum, læknaskól-
anum né gagnfræðskólanum á
Möðruvöllum.
Sökum þessa snéri Bríet sér að
barna,- og unglingakennslu í
Þingeyjarsýslu. Þegar hún síðar
fluttist suður á mölina hóf hún
að kenna börnum í heimahúsum.
Bríet varð einnig fyrsta konan
sem hélt fyrirlestur hérlendis og
var það árið 1887, umfjöllunar-
efnið var henni hugleikið sem
fyrr; „Hagur og réttindi kvenna“.
Bríet hafði um langa ævi forustu
í baráttu kvenna til náms, kosn-
ingaréttar og kjörgengis og op-
inberra starfa. Hún var fyrsti for-
maður Kvenréttindafélags Íslands
frá árinu 1907 til 1928. Bríet lést í
Reykjavík 1940.
ÞETTA GERÐIST: 5. JÚNÍ 1885
Grein Bríetar birtist í Fjallkonunni
„Ég hef verið innanbúðar þessi þrjá-
tíu ár sem ég hef rekið fyrirtækið.
Þetta er ekki stórt fyrirtæki þannig að
ég kem að öllu mögulegu sem tengist
rekstrinum. Í dag er þetta svokallað
fjölskyldufyrirtæki því sonur minn er
hérna og sér um allan innflutning og
einnig maðurinn minn. Ég rak versl-
unina ein fyrstu fimmtán árin,“ segir
Guðfinna Hjálmarsdóttir eigandi Lita
og föndurs sem fagnar nú þrjátíu ára
rekstrarafmæli.
Í fyrstu voru margir hissa á því að
kona væri að fara út í fyrirtækjarekst-
ur. Oft var Guðfinna spurð hvort hún
nyti trausts í bankanum en hún svarar
því að hún hafi fengið alla þá þjónustu
sem hún hafi beðið um.
„Ég keypti fyrirtækið þegar ég var
þrítug og eigum við verslunin stóraf-
mæli á sama árinu, ég er sextug og
verslunin þrítug sem er mjög ánægju-
legt. August Hakanson átti verslunina
áður en hann seldi mér hana. Í dag eru
þetta Litir og föndur og heildverslun
sem við fjölskyldan eigum sem renna
saman í eitt. Aðeins hafa verið tveir
eigendur að búðinni í öll þessi ár,“
segir Guðfinna.
Það sem stendur upp úr er hvað
verslunin hefur stækkað hægt og ró-
lega og umsvifin aukist. „Það er búið
að vera mjög ánægjulegt að reka þessa
verslun. Ekki er enn kominn sá dagur
að mér leiðist að fara í vinnuna heldur
frekar að mér leiðist að fara úr vinn-
unni,“ útskýrir Guðfinna. Verslunin er
orðin stór þáttur í lífi Guðfinnu og hún
hefur þurft að vera vakandi fyrir öllu
sem tengist búðinni. Guðfinna flytur
inn allar vörur sem eru í búðinni sjálf.
Markmiðið verslunarinnar er að bjóða
upp á mikið úrval og hagstætt verð á
vörunum. Myndlistarmenn hafa verið
tryggustu viðskiptavinirnir ásamt
skólum í landinu enda myndmennt
kennd á öllum skólastigum.
Hjá fyrirtækinu starfa sjö manns
og inn á milli þegar mikið er að gera
þá er bætt við starfsfólki. Guðfinna er
menntaður myndlistarmaður og hefur
verið að bjóða upp á myndlistarnám-
skeið.
„Ég hef verið að bjóða upp á lit- og
formfræði, akríl og olíumálun. Mjög
vel hefur verið tekið þessum nám-
skeiðum mínum. Þetta eru einnar
kvölda námskeið og hentar því mörg-
um að koma svona eftir hentugleika.
Það er viss kjarni sem sækir nám-
skeiðin en alltaf sjást ný andlit og
mikil aukning á ungu fólki sem er
skemmtilegt. Svo fljótlega ætlum
við að opna sýningu á verkum nem-
enda sem sótt hafa námskeið hjá mér.
Það er skemmtileg nýjung hjá mér og
verður ánægjulegt að sjá hvernig það
kemur til með að líta út,“ lýsir Guð-
finna.
Framundan á þessu afmælisári að
í haust verður ýmislegt að gerast hjá
okkur og margt sem mun gleðja við-
skiptavinina sem leggja leið sína í
búðina. „Við erum að skipuleggja allt
þessa dagana og má því segja að við
ætlum að halda þessu leyndu þar til
nær dregur. Þessvegna segi ég bara:
Þetta kemur í ljós síðar hvernig þetta
verður nákvæmlega,“ segir Guðfinna
glöð í bragði.
mikael@frettabladid.is
VERSLUNIN LITIR OG FÖNDUR: FAGNAR 30 ÁRA STARFSAFMÆLI
Heimur listamannsins
BRAUTRYÐJANDI Guðfinna Hjálmarsdóttir hefur rekið verslunina Liti og föndur í hartnær þrjátíu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Runólfur Dagbjartsson
(Dúddi múr)
múrarameistari, Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum,
andaðist 19. maí síðastliðinn. Jarðsungið verður frá
Langholtskirkju í Reykjavík föstudaginn 6. júní
kl. 13.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Kvenfélagið Líkn Vestm.
Ómar Runólfsson Auður Eiríksdóttir
Margrét Runólfsdóttir Sigurður Rafn Jóhannsson
Dagmar Svala Runólfsdóttir Guðjón Sigurbergsson
Kristín Helga Runólfsdóttir Ari Tryggvason
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Kristinn P. Michelsen
Skólabraut, Seltjarnarnesi,
verður jarðsunginn frá Seltjarnarneskirkju föstudag-
inn 6. júní kl. 11.00. Blóm og kransar vinsamlegast
afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á
Parkinsonssamtökin á Íslandi.
Margrét Þorgeirsdóttir
Karl G. Kristinsson Jóhanna Sigurjónsdóttir
Kristín B.K. Michelsen Magnús Sigurðsson
Sólveig H. Kristinsdóttir Björn St. Bergmann
Anna Karen Kristinsdóttir Gestur Helgason
afa og langafabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, tengdasonur,
faðir, tengdafaðir og afi,
Baldur Sigurðsson
Baldurshaga,
lést á heimili sínu þann 30. maí. Útför fer fram
laugardaginn 7. júní kl. 13 frá Hólmavíkurkirkju.
Jarðsett verður í Kaldrananeskirkjugarði.
Erna Arngrímsdóttir
Þórdís Loftsdóttir
Árni Þór Violetta
Hafdís
Steinar Þór
Sölvi Þór
barnabörn og systkini hins látna.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og
amma,
Emma Magnúsdóttir
Hvanneyrarbraut 69, Siglufirði,
lést á Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar mánudaginn
2. júní. Útför hennar fer fram í Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 7. júní kl. 11.00.
Hrólfdís Hrólfsdóttir Baldur Þór Bóasson
Jón Hrólfur Baldursson Ólöf Kristín Daníelsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Pétur Kristinn Elisson
sem lést þriðjudaginn 27. maí, verður jarðsunginn frá
Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 7. júní kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Hjartavernd.
Ela Krystyna Elisson
Adriana K. Pétursdóttir Einar J. Ingason
Gabríel A. Pétursson
Daníel K. Pétursson
Piotr D. Bialobrzeski
Adam S. Ástþórsson
Erika Nótt Einarsdóttir.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og systir,
Brynhildur Jensdóttir
Lilla
Lækjasmára 6, Kópavogi,
lést á Landspítalanum Landakoti fimmtudaginn
29. maí. Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 5. júní kl. 13.00.
Anna Gísladóttir Eiríkur Þór Einarsson
Jens Gíslason Hafdís Jónsdóttir
Brynhildur Jóna Gísladóttir Guðjón Arngrímsson
barnabörn og barnabarnabörn
Jensína Jensdóttir.