Fréttablaðið - 08.06.2008, Síða 70
46 sport
HERBERT FANDEL (ÞÝSKALAND)
Píanóleikari og
yfirmaður í tónlistar-
skóla. Dæmdi frægan
landsleik Danmerkur
og Svíþjóðar í undan-
keppni EM þegar ofur-
ölvi stuðningsmaður
danska landsliðsins
veittist að honum og reyndi að lemja
hann. Fandel flautaði leikinn af á 89.
mínútu en Svíum var síðar dæmdur
3-0 sigur í leiknum.
LUBOS MICHEL (SLÓVAKÍA)
Fyrrverandi kennari
sem talar, auk sló-
vakísku, rússnesku,
ensku, þýsku og
pólsku auk. Jafnan
talinn meðal bestu
dómara heims í dag
en hann dæmdi
úrslitaleik Meistaradeildarinnar í
ár þegar Manchester United lagði
Chelsea að velli í Moskvu.
FRANK DE BLEECKERE (BELGÍA)
Einna Þekktastur
fyrir að gefa hinum
ítalska Marco Mat-
erazzi tvö gul spjöld
fyrir litlar sakir og
þar af leiðandi rautt
spjald í leik inter og
Liverpool í 16-liða
úrslitum Meistaradeildar Evrópu í ár.
TOM HENNING OVREBO (NOREGUR)
Hefur verið valinn
dómari ársins í
Noregi fimm sinn-
um á síðustu sex
árum. Fór mikinn í
seinni leik inter og
Liverpool í 16-liða
úrslitum Meistara-
deildarinnar í ár þar
sem níu spjöld fóru á loft.
TALAR VIÐ
DÓMARANN Í LEIK
Þótt Ísland hafi ekki náð
að tryggja sér þátttökurétt
á EM í Sviss og Austurríki
þá eigum við Íslendingar
einn fulltrúa á mótinu en
það er milliríkjadómarinn
Kristinn Jakobsson. Hann
var valinn til þess að verða
fj órði dómari í keppninni og
Sport sló því á þráðinn til
hans og fékk að heyra um
umfangsmikinn undirbún-
ing fyrir mótið og hvað felst
í hlutverki hans sem fj órði
dómari á EM.
V ið sem vorum tilnefndir í þetta verkefni fengum send gögn upp úr áramót-
um þar sem farið var vel yfir hvað
menn þyrftu að gera í undirbún-
ingnum fyrir mótið. Þar voru til-
greindar þær ráðstefnur sem
menn þurftu að sækja og ítarlegt
æfingarprógram lagt fyrir mann-
skapinn,“ sagði Kristinn sem
hefur verið undir ströngu eftirliti
frá æfingastjóra á vegum UEFA.
„Ég fékk þar til gerðan búnað
sem ég set alltaf upp við æfingar
og þegar ég dæmi leiki, en búnað-
urinn tekur upp allar upplýsingar
um vegalengdir sem ég hleyp og
hjarta- og þoltölur og annað. Eftir
æfinguna eða leikinn sendi ég svo
upplýsingarnar á tölvutæku formi
til dómaraæfingastjóra á vegum
UEFA sem fylgist með því sem
maður er að gera og sér til þess að
allir séu 100% tilbúnir í sitt verk-
efni,“ sagði Kristinn.
ÁTTUNDU AUGU DÓMARANS
Í dómarahópnum sem sér um dóm-
gæsluna á EM í Sviss og Austur-
ríki eru tólf dómarar, tuttugu og
fjórir aðstoðardómarar og átta
menn sem eru sérhæfðir sem
fjórðu dómarar og Kristinn er
einn þeirra. En hvert er nákvæm-
lega hans hlutverk þegar mótið
hefst?
„Dómaranefnd UEFA sér um að
raða dómurunum á leiki eða í raun
dómaratríóum þar sem dómararn-
ir, sem eru frá tólf ólíkum löndum,
vinna alltaf með aðstoðardómur-
um sem eru frá sama landi. Því er
ólíkt farið með fjórðu dómarana,
sem dómaranefndin sér um að
velja, með hvaða dómaratríóum
þeir vinna á mótinu. Ég mun því
vinna náið með því dómaratríói
sem ég mun starfa með og þar
kemur til allur undirbúningur
fyrir leiki, s.s. að taka til alla papp-
íra og leikskýrslur, sjá um sam-
skipti við fjölmiðla, leikmenn og
forráðamenn liða á leikstað og
vera tilbúinn ef eitthvað kemur
upp á. Á meðan á leik stendur verð
ég á milli varamannabekkja lið-
anna og sé um skiptingar og að
halda utan um og skrá niður allt
sem gerist inni á vellinum, það er
að segja skiptingar, áminningar og
mörk. Ég verð svo tengdur ákveðn-
um samskiptabúnaði við dómar-
atríóið á meðan á leiknum stendur
og ef ég sé til að mynda eitthvað
inni á vellinum sem þeir sjá ekki,
t.d. fólskubrot eða annað sem þarf
að taka á, þá á ég að stíga inn og
láta þá vita. Ég er því í raun átt-
undu augu þeirra á vellinum,“
sagði Kristinn sem kvað engum
sérstökum tækninýjungum í dóm-
gæslu beitt á EM.
ENGAR TÆKNINÝJUNGAR
„Það verða engar tækninýjungar í
dómgæslu notaðar á EM sem hafa
ekki verið notaðar áður í Evrópu-
boltanum. Svokallað hawk-eye
kerfi, sem dæmir með fullkomn-
um hætti um hvort bolti sé innan
línu eða utan, verður ekki notað að
þessu sinni,“ sagði Kristinn sem
verður að öllu óbreyttu í sínu
starfi sem fjórði dómari á EM út
riðlakeppnina áður en hann snýr
sér að Landsbankadeildinni á ný.
N ýtt kjörorð fyrir EM í Austurríki og Sviss er „Respect“ eða „virðing“. Það undirstrikar „fair play“ eða „háttvísi“, sem alþjóða knatt-
spyrnusambandið, FIFA, hefur barist fyrir. „Þetta
snýst um að menn sýni hver öðrum virðingu innan
vallar sem utan og berjist gegn illum öflum í samfé-
laginu s.s. kynþáttahatri, alls kyns ofbeldi og fordóm-
um,“ sagði Michel Platini, forseti UEFA.
Kristinn Jakobsson telur að kjörorðið eigi vel við í
sambandi við þær áherslur sem eru að eiga sér stað í
dómgæslunni.
„Þetta snýst náttúrulega um að menn sýni virðingu
í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur, hvort sem þú ert
leikmaður, þjálfari, forráðamaður, áhorfandi eða
dómari. Við dómarar höfum náttúrulega verið að
berjast fyrir því að fá meiri virðingu fyrir okkar
störf og auðvitað þurfum við fyrst og fremst að sýna
leiknum virðingu til þess að við fáum virðingu. Þetta
er bara eins og mamma manns kenndi manni, kurt-
eisi kostar ekkert,“ sagði Kristinn sem ítrekar þó að
megináherslurnar í dómgæslu væru vitaskuld enn til
staðar.
„Það á auðvitað að taka stíft á öllum grófum leik-
brotum svo sem aftan-í-tæklingum og tveggja-fóta-
tæklingum. Einnig verður tekið fast á peysutogi og
leikaraskap sem fyrr og það er búið að fara vel yfir
það á fundum með dómaranefndinni með myndbands-
upptökum af atvikum úr leikjum í Meistaradeildinni
og undankeppni Evrópumótsins,“ sagði Kristinn.
KJÖRORÐ EM ER VIRÐING
Michel Platini, forseti UEFA, leggur mikið upp úr nýju kjörorði
EM í Austurríki og Sviss. NORDIC PHOTOS/AFP
PIETER VINK (HOLLAND)
Hætti sem lögreglu-
þjónn til þess að
einbeita sér að dóm-
gæslunni en hann
dæmdi fyrri leik
Arsenal og Liverpool
í átta-liða úrslitum
Meistaradeildar-
innar í ár og var gagnrýndur fyrir að
dæma ekki vítaspyrnu þegar landi
hans Dirk Kuyt togaði í Alexander
Hleb innan teigs.
MASSIMO BUSACCA (SVISS)
Rekur fyrirtæki
í Sviss en hefur
verið FIFA-dómari
síðan árið 1999 og
dæmdi nokkra leiki
á HM í Þýskalandi
árið 2006. Busacca
dæmdi úrslitaleik
UEFA-bikarsins á milli Espanyol og
Sevilla á Hampden Park í Glasgow
í fyrra þar sem Moisés Hurtado,
leikmaður Espanyol, fékk að líta rautt
spjald.
KONRAD PLAUTZ (AUSTURRÍKI)
Leikari og stjórnandi
áhugamannaleik-
húss í heimabæ
sínum í Austurríki.
Plautz hefur verið
dómari síðan hann
var táningur og
kaus að eigin sögn
frekar að dæma en að berjast við að
komast í heimabæjarliðið sem hægri
bakvörður.
PETER FROJDFELDT (SVÍÞJÓÐ)
Ítalir munu eflaust
reyna að forðast
hann þar sem hann
gaf leikmönnum
Juventus tvö rauð
spjöld í leik gegn
Arsenal á Highbury-
leikvanginum í átta-
liða úrslitum Meistaradeildarinnar
árið 2006.
ROBERTO ROSETTI (ÍTALÍA)
Yfirmaður á
sjúkrahúsi í Tórínó
sem hefur verið
FIFA-dómari síðan
árið 2003. Heims-
meistaramótið í
Þýskalandi árið 2006
var fyrsta stórmótið
sem Rosetti dæmdi á en hann var
óvænt kallaður til þess að dæma þar
í stað landa síns Massimos de Santis
sem lenti í dómarahneykslinu fræga í
ítölsku deildinni.
Það verður nóg að gera hjá Kristni Jakobssyni í hlutverki
hans sem fjórði dómari á EM í Austurríki og Sviss. Hann sér
um allar skiptingar, tekur tölfræði og er tengiliður á milli
dómaratríósins, sem hann kemur til með að vinna með í
viðkomandi leikjum, við fjölmiðla og fleiri aðila.
M
YN
D
/A
N
TO
N
B
RI
N
K
N
O
RD
IC
P
H
O
TO
S/
A
FP
MANUEL MEJUTO GONZALEZ (SPÁNN)
Ástæðan fyrir því að
Skotar eru ekki á EM
í Austurríki og Sviss
samkvæmt Alex
McLeish, þjálfara
skoska landsliðsins,
eftir að dómarinn
dæmdi Ítölum
aukaspyrnu sem þeir skoruðu úr á
lokaandartökum leiks Skotlands og
Ítalíu í undankeppni em. Samt líklega
þekktastur fyrir að dæma úrslitaleik
AC Milan og Liverpool í Meistara-
deildinni árið 2005. KYROS VASSARAS (GRIKKLAND)
Vinnur á ferðaskrif-
stofu í Grikklandi
þegar hann er ekki
að dæma og er mikill
tungumálafröm-
uður en hann talar
auk grísku, þýsku,
spænsku og ensku.
Vassaras hefur verið FIFA-dómari frá
árinu1998 en hann dæmdi sinn fyrsta
landsleik árið 1999 .
HOWARD WEBB (ENGLAND)
Tók sér frí frá starfi
sínu sem lögreglu-
þjónn til þess að ein-
beita sér algjörlega
að dómarastarfinu.
Hann hefur dæmt í
ensku úrvalsdeild-
inni frá árinu 2003.