Fréttablaðið - 14.06.2008, Blaðsíða 40
● heimili&hönnun
„Ég flutti inn í desember og líður
mjög vel í miðbænum. Þetta var
hins vegar heilmikið verk og í
upphafi hét ég því að ráðast aldrei
í annað eins stórvirki aftur,“ segir
Dóra. „Þegar hafist var handa við
að skipta um þak gekk í garð ein
mesta rigningatíð í manna minn-
um og voru þó nokkrar svefnlaus-
ar nætur sem fylgdu í kjölfarið.
Það lak á vesalings nágranna mína
en þolinmóðara fólk fyrirfinnst
varla. Það var meira að segja svo
komið að eldri börn systur minn-
ar sem voru í fermingarfræðslu
og búa á Ítalíu báðu prestinn og
bekkinn að biðja fyrir betra veðri
í Reykjavík,“ segir hún kímin.
„Ég fékk til mín góða iðnaðar-
menn en hugmyndirnar og hönn-
unin er mín. Ég ætlaði í upphafi
að fá innanhússarkitekt til aðstoð-
ar en síðan var erfitt að finna ein-
hvern sem hafði tíma þannig að á
endanum keypti ég bara fullt af
blöðum og ákvað þetta sjálf.“
Dóra keypti íbúðina með bygg-
ingaleyfi til að bæta við efri hæð-
inni. „Fyrir var gamalt þurrkloft
en húsið er frá árinu 1922. Þak-
inu var lyft og kvistir settir að
sunnanverðu. Þannig bættist við
efri hæðin. Niðri var eldhús og
tvær stofur sem ég vildi gera að
einu rými. Þá þurfti að taka niður
veggi og kom í ljós að þeir voru
skakkir og opna þurfti meira til að
rétta þá af. Ég vildi hafa gólfhita-
kerfi af því mér fannst ofnarnir
taka of mikið pláss og þá var gólfið
opnað. Sást þá að gólfbitarnir voru
orðnir lélegir og einangrað var með
sagi, svo það þurfti að laga,“ segir
hún og þannig undu framkvæmd-
irnar upp á sig. Þær tóku þó ein-
ungis fjóra mánuði og er Dóra afar
ánægð með niðurstöðuna. - hs
Notalegheit í miðbænum
● Lögfræðingurinn Dóra Sif Tynes hefur búið sér fallegt heimili á Skólavörðustíg sem hún
hannaði sjálf. Breytingarnar gengu ekki átakalaust fyrir sig en útkoman er stórglæsileg.
Þegar gera þarf veggi þykkari fyrir upp-
hengt klósett er kjörið að nýta plássið á
þennan hátt.
Stórir gluggar hleypa inn mikilli birtu og gera íbúðina einstaklega sjarmerandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Borðstofuskápurinn er rúmgóður og fékk Dóra hann frá móður sinni sem keypti
hann í Casa fyrir um þremur áratugum. Hann er úr birki og lét Dóra sprautulakka
hann hvítan svo hann passaði betur í umhverfð.
Borðstofustólarnir eru hin víðkunna „sjöa“ Arne Jacobsen, en við innréttinguna fékk
Dóra sams konar barstóla. Hún vildi hafa eldhúsinnréttinguna stílhreina þar sem
opið er yfir í borðstofu. Í baksýn glittir í stigann.
Dóra ákvað að stækka stigaopið og hafa skilrúm úr gleri til að hleypa meiri birtu
í íbúðina. Kistillinn er gömul sjókista frá langafa hennar sem var síðar máluð en
píanóið lærði faðir hennar á og var það áður í eigu Sigfúsar Einarssonar tónskálds.
Gítarinn fékk amma Dóru, Hrefna Tynes, að gjöf frá skátafélaginu Valkyrjum árið
1939 þegar hún fluttist til Noregs.
Fataskápurinn er úr Ikea. Dóra er mjög ánægð með skógrindurnar. Fyrst ætlaði hún
að fá sér rennihurðir fyrir skápinn en ákvað að hafa hann opinn til að hafa góða yfir-
sýn þegar velja á réttu klæðin. Hún segir það líka hvetja sig til að halda öllu í horfinu.
Hugmyndina að baðherberginu fékk
Dóra úr tímariti. Flísarnar á baðherberg-
inu eru frá Parka en blöndunartæki,
glerskilrúm og postulín var keypt í Byko.
Háfurinn er í senn ljós og eldhúsháfur.
Hann fæst í Eirvík en innréttingar eru frá
Kvik og er ítalskur steinn á borðinu frá S.
Helgasyni. Gashellurnar eru frá Eirvík.
14. JÚNÍ 2008 LAUGARDAGUR6