Fréttablaðið - 14.06.2008, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 14.06.2008, Blaðsíða 64
36 14. júní 2008 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is Kl. 15 Kristjana Rós Oddsdóttir Guðjohnsen opnar sýningu sína Nammibúðina í Auga fyrir Auga galleríi á Hverfis- götu 35 í dag kl. 15. Á sýningunni verður Kristjana Rós með innsetn- ingu sem samanstendur af málverk- um og skúlptúrum. Kristjana Rós lauk námi úr myndlistardeild Listaháskóla Íslands vorið 2006 og er þetta hennar fyrsta einkasýning eftir útskrift. > Ekki missa af … sýningu fjöllistahópsins SkyrL- eeBob í Skaftfelli á Seyðisfirði. Að SkyrLeeBob standa þau Erna Ómarsdóttir, Guðni Gunnarsson og Lieven Douss- elaere. Síðasti sýningardagur er á morgun, en sýningin hefur vakið talsverða athygli Seyðfirðinga og gesta. Fyrir utan Skaftfell standa jafnframt þrjú verk eftir Pétur K. Ilmvatnssýning Andreu Maack í Gallerí Ágúst hefur vart farið fram hjá myndlistaráhuga- fólki í höfuðborginni, enda velilmandi myndlist með eindæmum. Sýningin, sem er fyrsta einkasýning Andreu, ber hið smellna nafna Smart og hefur vakið mikla athygli hérlendis sem erlendis, en sýningin var hluti af dagskrá hinnar nýafstöðnu Listahátíðar í Reykjavík. Á sýningunni gefur að líta og upplifa ilm sem listamaðurinn vann í samstarfi við ilmvatns- framleiðanda í Grasse, ásamt einni stórri útprentaðri blýants-teikningu sem bútuð hefur verið niður í hvorki meira né minna en 252 bita sem hanga uppi á vegg. Gestum sýn- ingarinnar hefur gefist kostur á að velja sér hluta úr teikningunni með ilminum á til að taka með sér heim, í anda þeirrar hefðar að fá sér ilmvatnsprufur í snyrtivöru- verslunum. Er óhætt að segja að sýningargestir hafi óspart nýtt sér þennan möguleika, enda ekki á hverjum degi sem tækifæri gefst til þess að fá að hafa listaverk með sér heim af sýningum. Nú er svo komið að fyrsta upplagið af tveimur af teikningunni kláraðist nýverið og verður af því tilefni seinna upplag verksins vígt í dag kl. 14 og mun listamaðurinn endur- taka „perfumance“ - gjörning sem upphaflega var framinn á opnun sýningarinnar um miðjan síðasta mánuð. Gallerí Ágúst er til húsa að Baldursgötu 12. - vþ Ilmandi gjörningur Andreu Myndlistarkonan Rúrí er höfundur sýningarinnar Sökkvun sem nú stendur yfir í StartArt-listamanna- húsi á Laugavegi. Rúrí er þjóðinni vel kunn fyrir verk sín sem oft má finna á óvæntum stöðum í um- hverfinu, en á Sökkvun er viðfangsefni hennar náttúr- an og nýting okkar á henni. Sýningin opnaði um miðjan síð- asta mánuð og er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík. Titilverk sýningarinnar er myndbandsinn- setning í stærsta sal sýningarrým- isins; myndskeiði er varpað á vegg og á skjám sem komið hefur verið fyrir í rýminu má sjá svipmyndir af gæsahreiðrum og textabrot. Í tveimur minni sölum má svo sjá ljósmyndir og skúlptúr. „Það er sleginn sami grunntónn í þessum verkum; þau snerta öll á tengslum mannsins við jörðina og umhverfi sitt, en á ólíkan hátt þó,“ segir Rúrí. „Ljósmyndirnar og myndbandsverkin tengjast nýt- ingu okkar á vatnsauðlindum, en þriðja verkið er það fyrsta af nýjum verkum sem ég er að vinna að sem kallast Tilvistarleg. Verkið fjallar um þau efnahagslegu gildi sem virðast hafa sérstöðu í nútím- anum og sýnir okkur því nokkrar tegundir efna sem hafa mikið vægi í efnahagslífinu: svartolíu, maís, vatn og loft.“ Í titilverkinu Sökkvun má sjá myndskeið af náttúrulegu umhverfi sem nú er horfið sjón- um. „Verkið er allt tekið á svæð- inu í kringum Kárahnjúka fyrir nokkrum árum. Myndskeiðið sýnir hvernig lónið stækkar smám saman og drekkir umhverfinu, fegurðinni og hreiðrum gæsanna. Það voru mörg hundruð hreiður sem fóru undir lónið. Þegar maður verður vitni að þessari atburðarás vekur það upp spurninguna: höfum við heimild til þess að taka svona yfir náttúruna og breyta henni? Það hefur tekið jörðina óra- tíð að finna vatninu sínu farveg og við ætlum að breyta því á örskots- stundu. Mannkynið virðist sífellt vilja sigra náttúruna, en það er ekki til neinn sigur gagnvart jörð- inni; það eina sem við getum sigr- að erum við sjálf með því að finna eitthvert gullið jafnvægi með umhverfi okkar. Það er eini sigur- inn sem er raunhæfur.“ Myndin sem sýning Rúríar dregur upp af sambýli mannsins við náttúruna er því bæði átakan- leg og erfið, en fegurðin er þó aldrei langt undan. „Sökkvun sýnir fyrst og fremst fegurðina í náttúr- unni; þetta er fegurð sem ekki er hægt að verðleggja eða mæla á nokkurn hátt.“ Sökkvun stendur yfir í StartArt- listamannahúsi, Laugavegi 12b, til 30. júní. vigdis@frettabladid.is Ómælanleg náttúrufegurð AUÐLINDIR Tilvistarleg inniheldur hráefni sem eru manninum dýrmæt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA HORFIN NÁTTÚRA Rúrí í innsetningunni Sökkvun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Áhugaverð ljósmyndasýning opnar í Café Karólínu, Kaup- vangsstræti 23 á Akureyri, í dag. Sýningin nefnist „Með eigin augum“ og á henni má sjá ljós- myndir af daglegu lífi í Íran eftir listamanninnn Arnar Ómarsson. Arnar er búsettur í Freyjulundi í Eyjafirði. Hann er nemandi í Dieter Roth-akademíunni og er á leið í ljósmyndanám til London í haust, en hann hefur í gegnum tíðina starfað sem ljósmyndari fyrir dagblöð. Hann segir um verkin sem hann sýnir á Café Karólínu: „Þessi sýning er tilraun til að sýna daglegt líf í Íran með mannlífsmyndum. Allar mynd- irnar eru frá ferð um Íran á síð- asta ári.“ Sýning Arnars stendur til 4. júlí. - vþ Með eigin augum „Síðbúin sýn - ljósmyndir úr fórum Nóbelsverðlaunahafans og heims- borgarans Halldórs Laxness“ er yfirskrift sýningar sem opnuð verður í Þjóðmenningarhúsinu á þjóðhátíðardaginn næstkomandi þriðjudag kl. 13. Á sýningunni má sjá ljósmyndir sem Halldór Lax- ness tók á ferðum sínum innan- lands og utan og heima á Gljúfra- steini. Myndefnið er samferðafólk hans, bæði fjölskylda og vinir, og svipmyndir af fólki og umhverfi þess á ýmsum slóðum. Segja má að ljósmyndirnar séu tækifæris- myndir ferðalangsins, eigin- mannsins, fjölskylduföðurins og vinarins Halldórs Laxness. Skáldsögur Halldórs Laxness hafa verið þýddar á fjölmörg tungumál og árið 1955 veitti sænska akademían honum Nób- elsverðlaun í bókmenntum fyrir „litríkan sagnaskáldskap, sem endurnýjað hefði stórbrotna íslenska frásagnarlist“, eins og sagði í ummælum dómnefndar á sínum tíma. Halldór lifði næstum alla 20. öldina frá enda til enda, hann var alþjóðlegt skáld og hug- sjónamaður og virkur þátttakandi í hugsjónabaráttu liðinnar aldar. Verk hans tóku þannig á málefn- um sem voru efst á baugi hjá stóru rithöfundum viðburðaríkrar ald- arinnar. Sýningin verður í Þjóðmenning- arhúsinu fram í febrúar á næsta ári, en hún var fyrst sett upp í þýsku borginni Köln í fyrra. - vþ Ljósmyndir skáldsins Tónlistarmennirnir ástsælu Páll Óskar og Monika halda tónleika í dag kl. 14 í Sólheimakirkju þar sem þau munu flytja áhorfendum hugljúfa tóna. Söngvarinn Páll Óskar og hörpu- leikarinn Monika hófu samstarf sitt árið 2001 og var fyrsta afurð þeirra geislaplatan „Ef ég sofna ekki í nótt“ sem hlaut frábærar viðtökur bæði gagnrýnenda og almennings. Tveimur árum síðar sendu þau svo frá sér jólaplötuna „Ljósin heima“. Þau hafa flutt tón- list við ýmis tækifæri hérlendis sem erlendis og hvarvetna hlotið lof fyrir glæsilegan og ljúfan flutning. Tónlistarunnendur gætu sann- arlega gert margt vitlausara við daginn en að bregða sér í Sólhei- makirkju og hlusta á fagra tóna þeirra Páls Óskars og Moniku. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og eru allir velkomnir. - vþ Tónleikar á Sólheimum PÁLL ÓSKAR OG MONIKA Koma fram á tónleikum í Sólheimakirkju í dag. Listasafn Reykjavíkur stendur að vanda fyrir skemmtilegum uppákomum nú um helgina. Til- raunastofa fyrir börn og fullorðna verður starfrækt í Hafnarhúsinu á morgun á milli kl. 14 og 16, en boðið var upp á slíka tilraunastofu um síðustu helgi með fádæma góðri aðsókn þar sem um sextíu börn komu saman og fengu útrás fyrir vísindamanninn í sér. Tilraunastofan er unnin í samvinnu við Hug- myndasmiðjuna og Myndlistaskólann í Reykjavík og er sett upp í tengslum við sýninguna Tilraunamaraþ- on sem nú stendur yfir í Hafnarhúsinu. Börn og fjölskyldur þeirra fá tækifæri á tilraunastofunni til að vinna saman í tilraunaumhverfi þar sem hug- myndafluginu er gefinn laus taumur innan um óvenjulega hluti sem hvetja til leiks og sköpunar. Fyrir þá sem heldur vilja eyða deginum utandyra mætti stinga upp á því að heimsækja Viðey og njóta þar náttúrufegurðarinnar, en auk þess er þar hægt að skoða listaverk eftir heimskunna listamenn eins og Áfanga eftir Richard Serra og Friðarsúlu Yoko Ono. Hafþór Yngvason, safnstjóri Listasafns Reykajvíkur, mun á morgun segja gestum eyjarinn- ar frá hinu síðarnefnda; tilurð Friðarsúlunnar sem Yoko lét reisa í Viðey á síðasta ári og gildi hennar fyrir borgina í norðrinu. Leiðsögn Hafþórs hefst við Viðeyjarstofu kl. 14.30 og eru allir velkomnir. - vþ Tilraunir eða myndlist utandyra VIÐEY Kyrrð og ró, rétt utan við skarkala borgarinnar. SMART Ilmvatn Andreu Maack sem hnusa má af í Gallerí Ágústi. AUÐUR Á GLJÚFRASTEINI Mynd frá því um 1950. DAGLEGT LÍF Ein af ljósmyndum Arnars.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.