Fréttablaðið - 14.06.2008, Side 55

Fréttablaðið - 14.06.2008, Side 55
LAUGARDAGUR 14. júní 2008 27 Þ rátt fyrir að The Great Escape sé ekki eldri en þriggja ára eru gárungar strax farnir að kalla hátíð- ina South By South- west Evrópu. Ótrúlegt verður reyndar að teljast hversu rótgróin hátíðin er orðin þrátt fyrir aldur sinn. Allt við hátíðina gekk furðu- lega snurðulaust fyrir sig og hún féll ótrúlega þægilega í hina hlý- legu Brightonborg. Að hátíðinni standa líka fremur traustir aðilar. Þannig er hátíðin rekin af hinni virtu tónleikastaða- keðju, The Barfly, og meðal aðal- styrktaraðila hátíðarinnar eru töff merki á borð við Levi’s, Mojo, X- FM, NME, Uncut og Topman. Ein- hvern veginn á maður erfitt með að trúa að þegar þessir aðilar koma saman og búa til tónlistarhá- tíð að eitthvað geti klikkað. Og sú var auðvitað ekki raunin. The Great Escape nær yfir þrjá daga og fer fram í miðborg Brighton. Þannig má að einhverju leyti líkja henni við Iceland Airwaves en stærðin er meiri og staðirnir margfalt fleiri eða rétt á milli 25 og þrjátíu. Íslendingarnir stóðu sig með prýði Líkt og fyrri ár voru íslenskir listamenn nokkuð fyrirferðar- miklir. Valgeir Sigurðsson sýndi frábæra takta í kirkju góðtempl- ara þar sem andrúmsloftið var til jafns fyllt af dramatík og ham- ingju, Bloodgroup, sem nú virðist ætla að verða næsta stóra „nýja bandið“ frá Íslandi, fór létt með að koma Bretunum í stuð og Sometime var heldur ekki í nein- um vandræðum við að fá Tjallana til að dilla sér og stigu þeir villtan dans við ströndina. Hins vegar kom það bæði mér og öðrum Íslendingum sem hátíð- ina sóttu á óvart að sjá hið alís- lenska nafn Oddur á dagskrárlist- anum. Þegar betur var að gáð reyndist hér á ferð tónlistarmaður að nafni Oddur Rúnarsson sem hefur verið búsettur erlendis til margra ára. Hann hefur hins vegar verið afar virkur tónlistar- maður og var meðal annars óform- legur meðlimur í Manchester- sveitinni Lamb. Af hverju hefur maður eiginlega ekki heyrt af eða frá þessum manni áður? Hann spilaði einsamall á kassagítarinn og framreiddi einkar persónulega tóna sem var auðvelt að finna sig í og heillast af (kannið endilega heimasíðu hans, myspace.com/ oddurmusic). MARGAR hljómsveitir Hljómsveitirnar sem spiluðu á hátíðinni í ár voru vel á þriðja hundrað og spiluðu flestar þeirra tvisvar en sumar þrisvar eða jafn- vel fjórum sinnum. Þess vegna var vægast sagt erfitt að fylgjast með öllu sem mann langaði að sjá. Þannig sá ég á mínum fyrstu tón- leikum á hátíðinni, snemma á fyrsta deginum, að sveitin sem ég var einna spenntastur fyrir á hátíðinni (Vampire Weekend) hafði klárað að spila fyrir rúmlega hálftíma. Meðal annarra athyglis- verðra nafna á hátíðinni má helst nefna Crystal Castles, Iron and Wine, Ting Tings, A Place to Bury Strangers, Futureheads, Santog- old, No Age, Hold Steady, The Black Lips, Okkervil River og Yeasayer. Einna best þótti mér þó frammistaða Bon Iver sem náði hreint út sagt mögnuðu andrúms- lofti með sínum tregakenndu tónum. Fær mig að minnsta kosti ekki til þess að kvarta yfir gæðum The Great Escape. Evrópska South By Southwest Tónlistarhátíðin The Great Escape í hippsterabænum Brighton á Englandi er orðin ein af fyrirferðar- mestu tónleikahátíðum heims. Réttara væri þó að kalla The Great Escape einhvers konar tónlistar- messu, enda flykkjast á hátíðina aðilar úr öllum geirum tónlistarbransans, allt frá símafyrirtækjum og netbóluforritara til umboðsmanna og útvarpsstjórnenda. Steinþór Helgi Arnsteinsson var einn þeirra sem heimsótti hátíðina í ár, ásamt meðal annars íslensku listamönnunum Valgeiri Sigurðssyni, Sometime, Oddi Rúnarssyni og Bloodgroup. Þægindi um land allt Útilegumaðurinn er sérverslun með allt sem þú þarft til ferðalagsins, hjólhýsi, fellihýsi, pallhýsi, húsbíla, fylgihluti og margt fleira. Fossháls 5-9 110 Reykjavík Sími 551 5600 Fax 551 5601 www.utilegumadurinn.is Opið allar helgar frá 12-16 á virkum dögum frá 10-18 Polar hjólhýsi Sérhönnuð fyrir norðlægar slóðir. Evrópskar þrýstibremsur, galvaníseruð grind, iDC stöðugleikakerfi og ríkulegur staðalbúnaður. Rockwood fellihýsi Sérstaklega löguð að íslenskum aðstæðum með galvaníseraðri grind, fjöðrum fyrir akstur á erfiðum vegum og upphituðum lúxusdýnum. 19˝ LCD skjár Séstakur vínkælir DVD spilari 44mm einangrun -40 °C iDC stöðugleikakerfi iDC Evrópskar þrýstibremsur Fjöðrun f. ísl. aðstæður Vatn tengt heitt/kalt CD spilari/ útvarp Upphitaðar lúxusdýnur 12 cm Evrópskar þrýstibremsur Vesturlandsvegur B&L Nesti Grjótháls Fossháls H ér eru m við Sumarg jöf Sólar rafhla ða, fortja ld og gasgr ill fylgir ö llum fe llihýsu m Tilboð ið gild ir til 15 . júní Athugið!Sólarrafhlaða, fortjald, TV, DVD & Alde gólfhitakerfifylgir hjólhýsum.Fortjaldatilboðtil 15. júní Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.