Fréttablaðið - 01.07.2008, Qupperneq 26
● lh hestar 1. JÚLÍ 2008 ÞRIÐJUDAGUR6
Rúnar Geir fer eins oft og hann getur út í girðingu til hrossanna sinna. MYND/JENS EINARSSON
Rúnar Geir Ólafsson var
greindur með ólæknandi
vöðvarýrnun þegar hann var
tveggja ára. Hann hefur verið
bundinn við hjólastól frá sjö
ára aldri. Hann lætur fötlun-
ina ekki aftra sér og er á kafi í
hrossarækt.
SKEIÐIÐ ER SKEMMTILEGAST
Rúnar Geir er fæddur og uppal-
inn í sveit og hændist snemma að
hestum. Hann á um tuttugu hross
og fær þrjú til fjögur folöld á ári.
Hann býr nú á Eyði-Sandvík í Flóa
með foreldrum sínum. Þar rekur
fjölskyldan stórt kúabú. Skýrslu-
haldið er á könnu Rúnars. Hrossa-
ræktin er aukabúgrein og þar
heldur Rúnar Geir um stjórnar-
taumana.
„Ég vil hafa hrossin alhliða. Ég
hef aldrei riðið á tölti eða skeiði.
Missti af því. Ég hafði einfald-
lega aldrei mátt til þess. Það var
teymt undir mig í þau skipti sem
ég fór á hestbak. En mér finnst
mest gaman að horfa á skeiðið.
Töltið verður samt líka að vera
gott,“ segir Rúnar Geir.
Hrossahópurinn er á bletti
fyrir utan stofugluggann og þar
má sjá trippi undan Blæ frá Hesti,
Kráki frá Blesastöðum, Akki frá
Brautarholti, Galdra-Lofti frá
Stóra-Hofi og fleiri merkisgrip-
um. Það er greinilegt að Rúnar
Geir er ekki í hrossaræktinni til
að klappa folöldunum.
„Ég er sennilega með krón-
íska búfjárræktardellu. Ég fæ
mest út úr því að horfa á hross-
in hér út um gluggann; spá og
spekúlera hvaða stóðhestur hent-
ar hverri hryssu. Síðan tekur við
spenningurinn að sjá hvað kemur
út úr því. Fyrstu folöldin í minni
ræktun fæddust 2005. Þau trippi
verða tamin næsta vetur. Ég
hlakka mjög til að sjá hvernig
þau reynast.“
VEL ÆTTAÐAR HRYSSUR
Rúnar Geir ætlar sér ekki að
finna upp hjólið í hrossaræktinni.
Í hryssuhópnum er ein Orra dóttir,
önnur undan Otri frá Sauðár-
króki, sú þriðja undan Frama frá
Ragnheiðarstöðum og sú fjórða
undan Atlasi frá Feti. Fyrsta fol-
aldið á Eyði-Sandvík í ár var hest-
ur undan Stála frá Kjarri. Fleiri
eru væntanleg. Í sumar ætlar
Rúnar Geir að leiða undir Hugin
frá Haga, Glym frá Innri-Skelja-
brekku og Krák frá Blesastöðum.
„Eina leiði ég undir hest frá
sjálfum mér, þriggja vetra fola
undan Sæ frá Bakkakoti,“ segir
Rúnar Geir og stoltið leynir sér
ekki í svipnum. „Hann er að vísu
seldur. Þetta gengur víst ekki
öðruvísi en afsetja eitthvað af
gripunum,“ bætir hann við og
greinilegt að hann er bóndi og bú-
maður.
Hann stendur nú á tvítugu.
Lýkur stúdentsprófi frá FSu innan
skamms og stefnan hefur verið
sett á Landbúnaðarháskóla Ís-
lands á Hvanneyri. Búskapurinn
og hrossaræktin eiga hug hans
allan.
AÐGENGI FYRIR FATLAÐA
„Ég fer af og til á hestasýningar
og mót og reyni þannig að fylgj-
ast með hvaða hross eru að gera
sig. Aðgengi fyrir fatlaða er víð-
ast hvar þokkalegt. Það er til
dæmis mjög gott í Ölfushöllinni.
Ég hef líka farið nokkrum sinnum
á sölusýningar í Hestheimum. Þar
keypti ég tvær hryssur sem ég
rækta undan. Ég fór á LM2006 og
þar fengum við að leggja bílnum
á góðum stað svo ég gæti fylgst
með úr honum. Ég vona að það
verði svipað á Gaddstaðaflötum.
Það er auðvitað mikilvægt að það
sé gott aðgengi fyrir fatlaða að
hreinlætis aðstöðu og veitingum,“
segir Rúnar Geir.
Með búfjárræktardellu
Rangárhöllin, reiðhöllin á Gadd-
staðaflötum, var formlega af-
hent hestamönnum í Rangár-
þingi þann 27. júní síðastlið-
inn. Höllin er glæsileg bygging
sem mun setja mikinn svip á
LM2008.
Rangárhöllin er reiðhöll í fullri
stærð með glæsilegu anddyri og
stórum veitingasal. Áhorfenda-
stúkur eru steyptar. Höllin mun
nýtast vel á LM2008. Þar hefur
Hestatorgið aðstöðu og munu
reiðkennarar halda kennslu-
sýningar á svæðinu, sem eru
hluti af dagskrá torgsins. Í höll-
inni verður veitingasala og Net-
kaffi þar sem gestir geta komist
í samband við Veraldarvefinn.
Einnig er í höllinni hluti af sölu-
og markaðssvæði Landsmóts.
Rangárhöllin komin í gagnið á LM2008
Stjórn Hornfirðings: Eydís Benediktsdóttir, Bryndís Björk Hólmarsdóttir, Þorbjörg
Gunnarsdóttir, Árnína Guðjónsdóttir og Ásthildur Gísladóttir.
Ýmislegt bendir nú til að konur
séu að taka öll ráð í sínar hendur
í hestamennskunni. Fram-
kvæmdastjóri Landsmótsins
er kona, Jóna Fanney Friðriks-
dóttir. Meirihluti aðstoðarmanna
hennar er konur.
Dómarar í töltkeppni Lands-
móts eru allir kvenkyns; þær
Hulda G. Geirsdóttir, Sigrún
Ólafs dóttir, Elsa Magnúsdóttir,
Elisabeth Jansen og Eva Peter-
sen. En þetta er ekki það „versta“.
Stjórn hinna ýmsu félaga í hesta-
mennskunni færist líka í ríkari
mæli á kvenna hendur. Til dæmis
eru eingöngu konur í aðalstjórn
Félags tamningamanna. Sömu
sögu er að segja af stjórn hesta-
mannafélagsins Hornfirðings.
Þar verma konur stjórnarsæt-
in. Hvað þessu veldur hafa LH
Hestar enga hugmynd um. Það er
hins vegar vissara fyrir karlana
að gá að sér áður en þeir missa
alveg tökin.
Karlarnir að missa tökin
Dr. Ágúst Sigurðsson, rektor
Landbúnaðarháskóla Íslands á
Hvanneyri, mun fjalla um kyn-
bótamatið, BLUPP, á Hestatorgi
á LM2008. Fyrirlesturinn ber
heitið: Er kynbótamatið málið?
Einhverjir spyrja eflaust hvort
Ágúst sé búinn að missa trúna
á Bluppinu. En því fer fjarri.
„Ræktendur hafa sett kynbóta-
matið á ís undanfarin ár. Það er
mín tilfinning. Ég held að það
sé hins vegar tímabært að dusta
af því rykið. Gagnagrunnurinn
þéttist með hverju ári og kyn-
bótamatið verður öruggara. Líka
kynbótaspáin fyrir yngstu grip-
ina. Tamning og meðhöndlun
gripa er ennþá misjöfn og það er
erfitt að leiðrétta fyrir því. Einn-
ig verða alltaf tilviljanir í bú-
fjárrækt sem tölvulíkön sjá ekki
fyrir. Það er hins vegar engin
spurning í mínum huga að við
ættum að nota Bluppið meira,“
segir Ágúst.
Dustar rykið af
Bluppinu
Dr. Ágúst Sigurðsson, rektor LBHÍ á
Hvanneyri. MYND/JENS EINARSSON
FRÉTTAMIÐLAR:
www.eidfaxi.is
www.hestafrettir.is
www.847.is
www.horse.is
STOFNANIR:
www.feif.org
www.lhhestar.is
www.holar.is
www.landsmot.is
www.worldfengur.is
www.tamningamenn.is
www.fhb.is
HROSSABÚ SÝNISHORN:
www.strandarhofud.is
www.akurgerdi.is
www.arabaer.is
www.armot.is
www.austurkot.is
Hestamenn á netinu
Rangárhöllin var formlega afhent hinn 27. júní. Nöfn á þeim sem eru á myndinni talið
frá hægri: Arnar Bjarni Eiríksson, framkvæmdastjóri Landsstólpa, afhendir Kristni
Guðnasyni, stjórnarformanni Rangárhallarinnar ehf., lyklana að höllinni. Á myndinni
eru einnig Guðmundur Einarsson, Ómar Diðriksson og Þröstur Sigurðsson.
MYND/JENS EINARSSON