Fréttablaðið - 17.07.2008, Blaðsíða 6
6 17. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
BENSÍN Stóru olíufélögin, Olís,
Skeljungur og N1 lækkuðu bensín-
lítrann og dísillítrann um 1,20
krónur í gær. Atlantsolía lækkaði
bensínlítrann hins vegar um 1,30
krónur en dísillítrann um 1,20
krónur. Ástæðan er sjö dollara
lækkun hráolíutunnunnar í fyrra-
dag. Í hráolíutunnu eru 147 lítrar.
„Við ákváðum í morgun [gær-
morgun] að lækka verðið en það
hefur heldur betur saxast á það
síðan þá,“ segir Magnús Ásgeirs-
son innkaupastjóri eldsneytis hjá
N1 en krónan veiktist um 50 aura
gagnvart Bandaríkjadollara og
verðið á tunnu hækkaði um einn
dollara í gær.
Fróðir menn segja yfirlýsingu
Ben Bernanke, seðlabankastjóra
Bandaríkjanna, frá því í fyrradag,
um að mikil streita ríki á fjármála-
mörkuðum hafa haft áhrif á svipt-
ingarnar á markaðnum í gær.
„Þetta sýnir að það er algjör tauga-
veiklun á markaðnum. Við hefðum
viljað sjá framboð og eftirspurn
breyta heimsmarkaðsverðinu, en
ekki yfirlýsingu einhvers seðla-
bankastjóra.“
Magnús segist vona að verðið
haldist lágt því óæskilegt væri ef
bensínlítrinn færi yfir tvö hund-
ruð krónur. „Stefnan hér á þess-
um bæ er að lækka eldsneytis-
verðið strax og það lækkar úti í
heimi,“ segir Magnús.
Már Erlingsson, innkaupastjóri
hjá Skeljungi, segir olíufélögin
finna mikið fyrir þrýstingi sam-
félagsins um að lækka verðið á
eldsneyti þegar heimsmarkaðs-
verðið lækkar. „Stundum finnum
við fyrir óréttmætri gagnrýni en
oftast á hún rétt á sér.“
Atlantsolía lækkaði bensín-
lítrann mest, eða um 1,30 krónur.
Að sögn Huga Hreiðarssonar
,markaðsstjóra Atlantsolíu, mun
bensínið fara lækkandi rétt um
miðjan júlí líkt og undanfarin ár.
Gott sé því að verð á olíu endur-
spegli sem hraðast bæði upp- og
niðursveiflurnar á heimsmark-
aðsverðinu.
„Það er alltaf að verða dýrara
og dýrara að kaupa bensín í þjón-
ustu. Ég er þess fullviss að þró-
unin verði hér eins og í Dan-
mörku - að mannlausar
bensín stöðvar með sjálfsaf-
greiðslu verði æ vinsælli,“ segir
Hugi.
Sem stendur er verðið á bensíni
lægst á Íslandi af öllum Norður-
löndunum en dísillítrinn er hins
vegar næstdýrastur.
vidirp@frettabladid.is
Lítrinn lækkaði á
öllum stöðvunum
Lítrinn á bensíni lækkaði um 1,20 krónur á öllum bensínstöðvum í gær nema
1,30 krónur hjá Atlantsolíu. Innkaupastjóri N1 segist vona að verðið haldist lágt.
Markaðsstjóri Atlantsolíu segir að sjálfsafgreiðslustöðvar munu verða vinsælli.
BENSÍNSTÖÐ Lítrinn var ódýrari í gær en í fyrradag og vonar innkaupastjóri N1 að það haldist lágt. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Fyrirtæki Bensín* Dísel**
Atlantsolía 173,90 191,50
Skeljungur 175,70 193,60
N1 175,60 193,60
Olís 175,60 193,60
*Miðað við algengasta verð 95 oktan
í sjálfsafgreiðslu
**Miðað við algengasta verð í sjálfs-
afgreiðslu
BENSÍNVERÐIÐ
Stefnan hér á þessum bæ
er að lækka eldsneytis-
verðið strax og það lækkar úti í
heimi.
MAGNÚS ÁSGEIRSSON
INNKAUPASTJÓRI N1
SAMFÉLAGSMÁL „Einelti er skelfilegt,“ segir
Erla Skaftadóttir, fyrrverandi kennari Lárusar
Stefáns Þráinssonar sem svipti sig lífi í lok
síðasta mánaðar. Lárus var þá 21 árs gamall.
Móðir hans og faðir segja ástæðuna fyrir dauða
hans fyrst og fremst skýrast af því gegndar-
lausa einelti sem hann varð fyrir í grunnskóla,
eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær. Þau
segja son sinni aldrei hafa náð sér á strik eftir
þá reynslu.
Erla tók við bekknum sem Lárus var í þegar
hann var í 6. bekk eða ári eftir að eineltið hófst.
Hún segir ástandið í bekknum hafa verið mjög
erfitt og viðkvæm börn, eins og hann var, hafa
liðið mjög. Haldnir hafi verið fundir vegna
ástandsins sem orðið hafi til þess að ástandið
skánaði tímabundið en fljótlega hafi allt verið
komið í sama farið. „Þegar svona er komið
getur verið eina lausnin að
börn skipti um skóla,“ segir
hún. Lárus var sendur í
einkaskóla eftir að hann
lauk 7. bekk, en þá hafði
hann sætt einelti í þrjú ár.
Hún viðurkennir að slíkt sé
mjög ósanngjarnt gagnvart
börnunum sem verði fyrir
eineltinu en það geti þó
stundum verið eina lausnin.
Erla segir skóla og
foreldra þurfa að vera mjög
vakandi fyrir líðan barna. Að auki bendir hún á
að foreldrar verði að vera gagnrýnir á sín eigin
börn og koma í veg fyrir að þau vinni öðrum
börnum skaða. Hún segir að mjög erfitt sé að
minnast þessa tíma.
„Ég dáðist að styrk foreldra Lárusar á þeim
tíma sem þau háðu baráttuna fyrir því að sonur
þeirra fengi að vera í friði. Ég dáist enn að
þeim og vil leggja þeim lið,“ segir Erla en
foreldrar Lárusar hafa stofnað minningarsjóð
um son sinn sem þau vilja nota í baráttu sem
þau ætla að heyja gegn einelti í von um að
öðrum börnum verði bjargað. - kdk
Fyrrverandi kennari Lárusar vill leggja foreldrum hans lið gegn einelti:
Kennari segir ástandið hafa verið skelfilegt
LÁRUS STEFÁN
ÞRÁINSSON
MINNINGARSJÓÐUR
LÁRUSAR GEGN EINELTI
Þeim sem vilja leggja baráttu foreldra Lárusar lið
er bent á minningarsjóðinn sem þau stofnuðu
um hann og vistaður er í Kaupþingi.
Reikningsnúmer: 0305-13-303030
Kennitala: 150462-7549
SJÁVARÚTVEGUR „Þeir höfðu sam-
band við mig frá Landhelgisgæsl-
unni og báðu mig um að hætta að
veiða og halda til hafnar sem ég og
gerði,“ segir Ásmundur Jóhanns-
son sjómaður sem veitt hefur án
veiðileyfa undanfarinn hálfan
mánuð.
„Þegar þangað var komið tóku
lögreglumenn á móti mér og sögðu
að ég hefði verið sviptur veiðileyfi
en það eru gömul tíðindi. Málið er
hins vegar það að ég hef ekki
veiðileyfi þar sem ég er ekki með
kvóta en það er þjóðin sem á kvót-
ann. Þannig að ef ég kaupi hann af
Pétri eða Páli úti í bæ þá er ég að
kaupa þýfi og sá sem gerir það er
að brjóta lög.“
Um framhaldið segir hann: „það
verður bara að ráðast hvenær eða
hvort ég fer aftur á sjó. Ég á eftir
að ráðfæra mig við mína lögfræð-
inga. Nú á ég von á því að verða
kærður en það er líka allt í lagi því
þá getum við farið með þetta fyrir
mannréttindadómstól. Það er nú
um mánuður liðinn síðan að þeir
áttu að vera búnir að verða við
kalli mannréttindanefndar og
kippa þessu kerfi í lag svo þeim
veitir greinilega ekki af annarri
áminningu.“
Nokkrir komu saman og tóku á
móti Ásmundi þegar hann kom til
hafnar. Þar á meðal var Grétar
Mar Jónsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins. - jse
Sjómaðurinn sem veitt hefur án leyfis var stöðvaður á veiðum í gær:
Ásmundur bíður eftir kærunni
ÁSMUNDUR JÓHANNSSON Sjómaðurinn
var beðinn um að halda til hafnar í gær
þar sem lögregla tók á móti honum.
Finnst þér að Hafnarfjarðar-
bær eigi að láta fjarlægja
kennslustofurnar tvær úr
Staðar hvammi?
Já 43%
Nei 57%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú skynsamlegt hjá sveit-
arfélögum á höfuðborgarsvæð-
inu að semja við einkafyrirtæki
um hverfisgæslu?
Segðu skoðun þína á vísir.is
KJÖRKASSINN
GANGA.IS
Ungmennafélag Íslands
Auglýsingasími
– Mest lesið
Allra síðustu sætin!
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 6. og 13. júní. Þetta
er einstakt tækifæri til að njóta lífsins í þessari stórkostlega spennandi borg sem
er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og
iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig
um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar byggingar, endalaust úrval verslana
og veitingastaða og mjög hagstætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til
Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000
Akureyri • sími 461 1099 • www.heimsferdir.is