Fréttablaðið - 17.07.2008, Side 16
16 17. júlí 2008 FIMMTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Fréttablaðið tók saman það helsta sem fer
fram á landsbyggðinni um helgina.
Á Seyðisfirði fer fram listahátíð ungs fólks,
LungA. Hátíðin hófst raunar um síðustu helgi
og hafa ýmsar listasmiðjur verið í gangi í
vikunni. Á föstudag verða tónleikar á vegum
Kimi records og á laugardaginn verður upp-
skeruhátíð. Tónlistarveisla LungA verður svo
á laugardagskvöldið, en þar koma fram Bang
Gang, Bloodgroup, Dísa og FM Belfast.
Kátir dagar verða haldnir í áttunda sinn á
Þórshöfn um helgina og hefjast þeir í dag.
Annað kvöld spilar hljómsveitin Dalton fyrir
dansi og á laugardagskvöld verður grillveisla
á Eyrinni. Að henni lokinni verður stórdans-
leikur í Þórsveri þar sem söngkonurnar Sigga
Beinteins og Bryndís Ásmundsdóttir syngja
meðal annars lög úr Tinu Turner-sýningu
sinni.
Í Hrísey verður svokölluð fullveldishátíð
haldin um helgina. Boðið verður upp á
óvissuferðir, kvöldvökur, vitaferðir og göngu-
ferðir. Þá verður skeljakappát á laugardag. Á
föstudagskvöld verða Ljótu hálfvitarnir með
tónleika, en á laugardag verður grillveisla
og kvöldvaka. Á kvöldvökunni munu Oddný
Sturludóttir, Gréta Ómarsdóttir, Lára Stefáns-
dóttir og Kúrekar norðursins verða meðal
atriða, og að því loknu verður brekkusöngur
og varðeldur.
Bryggjuhátíð verður á Drangsnesi á
laugardaginn. Þar verður meðal annars
háður vináttuleikur í fótbolta milli Drangs-
ness og Hólmavíkur, söngvarakeppni verður
haldin og dorgað verður við höfnina. Þá
verður grillveisla á laugardagskvöld og svo
kvöldskemmtun í Baldri áður en við tekur
dansleikur með hljómsveitinni Kokteil.
HVAÐ ER AÐ GERAST UM HELGINA?
Kátir dagar á Þórshöfn og fullveldishátíð í Hrísey
FRAMKVÆMDASTJÓRN LUNGA Listahátíð ungs
fólks, LungA, er á Seyðisfirði um helgina. Aðeins
ungt fólk skipar framkvæmdastjórn hátíðarinnar.
Mikilvægt
fyrir framtíðina
„Mér finnst ekkert sérlega vel
borgað í þessu. Þessar konur eru
að vinna við þessar aðstæður og
þetta er allt mjög mikilvægt fyrir
framtíðina. Fyrir börn og familíu og
allt svoleiðis,“ segir Sæþór Maríus
Sæþórsson, gítarleikari hljómsveit-
arinnar Sólstafa, um kjarabaráttu
ljósmæðra. „Maður gerir sér grein
fyrir því hvað þetta er. Ég er nú
sjálfur að verða faðir núna í janúar
– heimurinn breytist aðeins – ég
meina, þetta er spennandi náttúr-
lega og maður hefur miklar áhyggj-
ur af konunni. Svo eru náttúrlega
ljósmæðurnar að hjálpa til við að
grislingurinn komi út og allt það.
Þetta er mjög brothætt fyrir famil-
íuna. Þetta er brothætt og tekur á
andlega séð, bæði á familíuna og
konuna sem er að vinna þarna. Ég
ætla að fara út í aðra sálma – ég
hef ekki réttu orðin til að útskýra
þetta en sé myndina fyrir mér. Að
einhverju leyti má segja að við
í hljómsveitinni höfum sérstaka
tengingu við ljósmæður og mér
finnst þær þurfa að fá hærri laun.
Fólk þarf að borða. Það er bara
þannig. Rock on,“ segir hann að
lokum og hlær.
SJÓNARHÓLL
KJARABARÁTTA LJÓSMÆÐRA
SÆÞÓR MARÍUS SÆÞÓRSSON Gítar-
leikari Sólstafa
Gott bú
„Það er ljóst að ég er að taka
við góðu búi frá Gunnari
Guðmundssyni.“
RÚNAR PÁLL GUÐMUNDSSON, NÝ-
RÁÐINN ÞJÁLFARI HK, SEM VERMIR
NEÐSTA SÆTIÐ Í ÚRVALSDEILD
KARLA Í FÓTBOLTA.
Fréttablaðið, 16. júlí.
Eindreginn vilji
„Það er eindreginn vilji
Alþingis og þar með þjóðar-
innar að RÚV starfi á þessum
markaði innan þess ramma
sem nú gildir ...“
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON, MARK-
AÐSSTJÓRI RÚV, UM STÖÐU RÚV Á
AUGLÝSINGAMARKAÐI.
Markaðurinn, 16. júlí.
Þrír félagar hafa tekið
sig til og ætla að hjóla frá
höfuðborginni til Ísafjarðar
og til baka. Fréttablaðið
gómaði Helga Þorsteinsson
þar sem hann var að æfa sig
á nýju hjóli sínu og komst
að því að fjörið varð skyn-
seminni yfirsterkara þegar
ferðin var ákveðin.
„Við vorum nokkrir félagar á
snakki og þá hafði einn orð á því
að það væri gaman að hjóla vest-
ur og allir voru sammála. Þess
vegna var ekkert því til fyrir-
stöðu að láta reyna á það,“ segir
Helgi. „Jú, ég lýg því reyndar,
það var ýmislegt því til fyrir-
stöðu; við áttum til dæmis ekki
hjól en við redduðum því. Önnur
fyrirstaða var síðan að við erum
ekki í neitt sérlega góðu formi en
við erum hægt og bítandi að
vinna í því eftir að við fengum
hjólin.“ Er hann þá ekki smeykur
um að einhver þeirra gefist upp?
„Nei, það er bara bannað,“ svar-
ar hann ákveðinn en viðurkennir
svo að hann hafi undanfarna
daga verið að glíma við það að
bægja þeirri hugsun frá að þetta
væri þeim ofviða.
Upphaflega voru félagarnir
fimm sem ætluðu að hjóla vestur
en afföllin tóku sinn toll. „Einn
verður að vinna og svo kom
annar sér frá þessu með lélegri
afsökun,“ segir Helgi sem lét
enga fyrirstöðu aftra sér frekar
en þeir Ingólfur Arnarsson og
Hávarður Olgeirsson sem hjóla
með honum vestur.
„Við munum leggja af stað frá
barnum Gullöldinni í Grafarvogi
30. júlí og gerum síðan ráð fyrir
því að vera mættir í kaffi í Edin-
borgarhúsinu á Ísafirði 2. eða 3.
ágúst. Síðan verðum við mættir
aftur á Gullöldina stundvíslega
klukkan tíu mínútur yfir fimm
þann 9. ágúst. Og ég á alveg eins
von á því að þá verði áfanganum
vel fagnað.“
Félagarnir munu hafa tjöld
meðferðis en síðan ætla þeir að
nýta sér gistiþjónustu bænda á
leiðinni. En af hverju ákváðu
þeir að hjóla til Ísafjarðar? „Það
er nú bara þannig að Ísafjörður
er nafli alheimsins þó að það viti
fáir af því,“ segir Helgi og brosir
við.
jse@frettabladid.is
Ætla að hjóla til Ísafjarðar
HELGI ÞORSTEINSSON Hann var ánægður með nýja hjólið, en það mun reyna mikið á það rétt eins og eigandann því saman eiga
þau eftir að fara 1.074 kílómetra ef allt gengur að óskum. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN
TIL STYRKTAR MND-
FÉLAGINU Á ÍSLANDI
Hægt er að heita á þá þremenninga
en öll fjárhæðin rennur til MND-
félagsins á Íslandi. Bankanúmer
félagsins er 1175-05-410900 og
kenni tala þess er 630293-3089.
SAMFÉLAGSMÁL „Við erum alltaf að
reyna að efla gönguna, meðal ann-
ars með því að fá fyrirtæki til að
styðja við bakið á samkynhneigð-
um starfsmönnum sínum,“ segir
Heimir Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Hinsegin daga og
fréttamaður á Stöð 2. 365, sem
rekur meðal annars Stöð 2 og
Fréttablaðið, verður fyrsta fyrir-
tækið til að taka þátt í Gleðigöngu
Hinsegin daga þann 9. ágúst.
„Það er mjög ánægjulegt að
starfsmannafélagið hjá 365 miðlum
greip þetta á lofti og það er stefnt
að því að starfsfólk skundi í göng-
una með atriði, sem er mjög ánægju-
legt,“ segir Heimir Már. „Við skor-
um bara á fleiri starfsmannafélög
eða starfsmenn fyrirtækja að taka
sig saman og skrá sig í gönguna.“
Heimir Már segir hátíð Hinsegin
daga verða með glæsilegra móti nú,
enda sé tíunda hátíðin haldin í ár.
Nú hefjist hátíðin á miðvikudegi, og
opnunarhátíð hennar hefur verið
færð frá föstudegi fram á fimmtu-
dag. Stór atriði verða á hátíðinni,
meðal annars söngkonan Carole
Pope, Rut og Vigdis frá Noregi og
hljómsveitin Sterio Total, að
ógleymdum fjölda innlendra lista-
manna. - þeb
365 tekur þátt í Gleðigöngu Hinsegin daga í ár:
Fyrsta fyrirtækið á
Gay Pride-hátíðinni
GLEÐIGANGAN Í FYRRA Gleðigangan
í ár verður sú tíunda, og verður hún
með glæsilegra móti. 365 verður fyrsta
fyrirtækið til að taka þátt í göngunni
með skipulögðum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Viltu skjól á veröndina?
www.markisur.com og www.markisur.is
Veðrið verður ekkert vandamál
Hrein fjárfesting ehf, Dalbraut 3, 105 Reykjavík
Upplýsingar í síma 567 7773 og 893 6337 um kvöld og helgar