Fréttablaðið - 17.07.2008, Síða 47

Fréttablaðið - 17.07.2008, Síða 47
FIMMTUDAGUR 17. júlí 2008 27 UMRÆÐAN Jón Bjarnason skrifar um um- hverfismál Það vakti aðdáun og sterkar framtíðarvonir þegar Hafn- firðingar höfnuðu stækkun álbræðslunnar í Straumsvík í íbúakosningu fyrir rúmu ári síðan og „Sól í Straumi“ – sam- tök umhverfis- og náttúru- verndarsinna og þeirra sem töldu nóg komið af álbræðslum fögnuðu sigri. Í þeim hörðu átökum lá ljóst fyrir að virkja þurfti enn frekar í Þjórsá til að sjá aukinni álbræðslu í Straumsvík fyrir raforku. Slag- urinn gegn stækkun álbræðslunn- ar í Straumsvík var því nátengdur baráttunni fyrir verndun Þjórsár. Samtökin Sól á Suðurlandi studdu dyggilega baráttu félaga sinna í Hafnarfirði og jafnvel er fullyrt að framlag þeirra á loka- metrum átakanna hafi ráðið úrslit- um um að stækkun álbræðslunnar var felld. En áfram sækja álris- arnir og Landsvirkjun að náttúru- perlum Þjórsár. Í fréttum þessa dagana fagnar forstjóri Lands- virkjunar að hans mati, áfanga sigri í herförinni að Þjórsá og lýsir því yfir að raforka úr næstu virkj- unum í ánni ætti m.a. að fara til aukningar á framleiðslu álbræðsl- unnar í Straumsvík. Nýtur hann þar stuðnings ríkisstjórnar Sjálf- stæðisflokks og Samfylkingar. Um eða yfir 80% af raforkufram- leiðslu landsmanna fara nú til álbræðslna. Íbúar við Þjórsá, Sól á Suður- landi og náttúruverndarsinnar um allt land munu standa með perlum Þjórsár og gegn virkjunaráform- unum og berjast til sigurs þótt það kosti „blóð svita og tár“. Nú þegar stjórnvöld sækja enn á ný og af auknum þunga í orku frá náttúru- perlum Þjórsár til álframleiðslu í Hafnarfirði er eðlilegt að spurt sé: hvar er Sól í Straumi og stuðning- ur annarra þeirra Hafnfirðinga sem börðust svo hetjulega gegn stækkun álbræðslunnar í Straums- vík fyrir aðeins nokkrum misser- um? Það er ekki trúverðugt að vinna verkin, en með „hnút í maganum“ eins og sumir þeir sem svíkja nú dýrustu kosningaloforð sín og náttúruperlur Þjórsár til að geta vermt ráðherrastólana. - „Fagra Ísland“, hvar ert þú? - Þess vegna er enn mikilvægara að náttúruverndarsinnar og aðrir þeir sem telja nóg komið af álbræðslum og mengandi stóriðju þétti raðir sínar. Það er mikil bar- átta fram undan. Höfundur er alþingismaður. UMRÆÐAN Urður Ólafsdóttir skrifar um sjáv- arútvegsmál Mér er það sífellt undrunar-efni hvernig Alþingi gat á sínum tíma ákveðið að afhenda útgerðum kvótann sem safnast hafði á hendur þeirra. Með því að binda hann ekki með nokkrum hætti við byggðarlög er ástandið eins og það er. Sjávarþorp lands- ins eru að leggjast í eyði. Því er ekki flaggað hverjir öfl- uðu kvótans til þessara fyrir- tækja. Það voru sjómenn sem með dugnaði og ósérhlífni sóttu sjóinn og lögðu útgerðunum kvót- ann til. Mér sem ekkja eftir dug- andi sjómann er alveg ljóst að þótt fyrirtæki hafi átt skip og útgerð hefði ekki orðið til kvóti nema að um borð í skip- unum væru dug- miklir sjómenn. Engin útgerð hefði haft skipstjóra á skipi sínu sem ekki hefði komið með afla að landi, og enginn skipstjóri aflað nema með góðri skipshöfn. Það er ekki svo ýkja langt síðan að sjósókn sem lýst er í bók Jóns Kalmans Stefánssonar, Himna- ríki og helvíti, var stunduð á Íslandi. Ósvörin við Bolungarvík er lýsandi minnismerki um þann tíma og líka til að minna okkur á hvað þurfti til að koma okkur upp úr þeirri eymd sem þjóðin var í. Með dugnaði sjómanna varð til afurð sem hægt var að selja úr landi. Hvað ætli margir sjómenn hafi farist við störf sín á síðustu öld? Sem betur fer er ekki her á Íslandi en sjómennskan var í raun eins og herþjónusta. Það var ekki um margt að ræða á atvinnu- markaðinum og því síður í menntamálum svo þá var bara að fara á sjóinn. Í þau 45 ár sem ég hef fylgst með störfum sjómanna hafa þeir tvisvar sinnum staðið saman og siglt til hafnar. Í fyrra skiptið var það útaf síldarverði 1967 og 1975 út af olíuverði sem átti að taka af óskiptum hlut sem þýddi launa- skerðingu. Hvað er að ykkur, sjómenn? Hvers vegna standið þið ekki saman og berjist fyrir rétti ykkar? Þið megið ekki skilja þrjá eða fjóra sjómenn eftir í barátt- unni fyrir rétti ykkar allra. Þetta er réttur sem allar hetjur hafsins sem horfnar eru börðust fyrir og þið eruð búnir að láta ræna af ykkur. Hvar eruð þið, sjómannskonur og verkakonur þessa lands? Látið í ykkur heyra áður en menn ykkar verða allir komnir inn í álverksmiðjur, olíuhreinsistöðv- ar eða í biðröð eftir atvinnuleys- isbótum. Það er ekki pláss fyrir alla á ríkisjötunni til að hækka launin sín. Það er bara fyrir fáa útvalda. Bubba Morthens tókst að koma þjóðinni í skilning um að sjómannslífið snerist ekki um ástir og ævintýr. Það snýst um að komast af, að geta lifað af atvinnu sinni. En þið, sjómenn, þurfið að berjast fyrir því, annars verðið þið sem stétt ekki til eftir nokkur ár. Höfundur er sjómannsekkja. Hvar eruð þið, sjómenn og sjómannskonur? URÐUR ÓLAFS- DÓTTIR JÓN BJARNASON Þjórsá og Sól í Straumi

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.